Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1986, Qupperneq 60

Læknablaðið - 15.10.1986, Qupperneq 60
280 LÆKNABLAÐIÐ tíma. Kom fram marktækur munur hjá konum (p < 0,05) milli árabilanna 1960-64 og næstu fimm ára þar á eftir, en þessi breyting á lífslíkum til batnaðar reyndist ekki marktæk meðal karla milli þessara árabila. Hjá körlum fóru lífslíkurnar síðan hægt batnandi síðustu 20 árin en hjá konum varð ekki mikil breyting frá 1965. í hópi A (n = 428) voru 160 (37%) dánir í árslok 1984 (45 karlar og 115 konur). Hjá 105 var aðaldánarorsök skjaldkirtilskrabbamein og var skipting milli kynja 75 konur og 30 karlar. Hlutfallslega fleiri karlar en konur, sem greindust með skjaldkirtilskrabbamein dóu af völdum þess. í hópi A greindust 132 konur yngri en 50 ára (41%) en einungis ein þeirra, greind 49 ára, lést úr totumyndandi krabbameini, þrjár úr merggerðar- og ein úr villivaxtar- krabbameini. Af körlum greindust 32 fyrir 50 ára aldur (30%) en einungis tveir létust úr skjaldkirtilskrabbameini, annar af völdum totumyndandi og hinn skildilsbúskrabbameins. Í töflu VI sést að einungis 1% sjúklinga, sem greindust yngri en 40 ára létust úr skjaldkirtilskrabbameini en 8% sjúklinga greindra á aldrinum 40-50 ára og eftir 50 ára aldur 37%. Mynd 15 sýnir hlutfall sjúklinga eftirvefjagerð, sem höfðu dáið úr skjaldkirtilskrabbameini fyrstu 15 árin eftir greiningu. Þar kemur fram, að dánartíðnin er hæst af völdum krabbameins merggerðar, af þeim vefjagerðum sem sýndar eru, en fjöldi sjúklinga er lítill (n = 6). Hlutfallslega fleiri létust úr skildilsbúskrabbameini (n= 10) fyrstu árin eftir greiningu en af totumyndandi Table VI .Relation of age at diagnosis to mortality due to thyroid cancer. Diagnosis and mortality Age groups <40 years 40-49 years > 50 years n °7o n °7o n °7o Papillary 75 54 167 Dead of disease ... - 2 (4) M2 (25) Follicular 17 11 38 Dead of disease ... 1 (6) - 9 (24) Medullary - 4 11 Dead of disease ... - 3 ( ) 3 (27) Anaplastic - 2 36 Dead of disease ... - 1 ( ) 35 (97) Unclassified 1 - 6 Dead of disease ... - - 4 ( ) Without histology ... - - 6 Dead of disease ... - - 5 ( ) Total number 93 71 264 Dead of disease 1 (1) 6 (8) 98 (37) % years after diagnosis — papillary (n = 44) -- follicular (n = 10) • ■ medullary (n = 6) Fig. 15. Cumulative percentage dying of thyroid cancer by histology. vefjagerð (n = 44). Eftir því sem lengra leið frá greiningu jafnaðist þetta hlutfall og eftir 15 ár voru 15% þeirra sjúklinga, sem greindust með totumyndandi og skildilsbúskrabbamein dánir úr sjúkdómnum. Villivaxtar- krabbamein er ekki sýnt á þessari mynd, en í þeim hópi voru allir dánir innan þriggja ára (36 sjúklingar) af völdum sjúkdómsins, utan tveir sjúklingar, sem greindust í lok athugunartímabilsins. Meðal sjúklinga, sem greindust án vefjagreiningar og þeirra sem voru óflokkaðir, voru níu dánir úr skjaldkirtilskrabbameini (tafla VI). Sé athugunartímabilinu skipt niður eftir greiningarárum í sex fimm ára tímabil eins og áður, þá sést, að fjöldi látinna úr skjaldkirtilskrabbameini hélst svipaðurfyrstu fimm tímabilin eða frá 16 og uppí 23 hvert fimm ára tímabil, en síðustu fimm árin er þessi tala lægri eða átta, enda stuttur tími liðinn síðan sá hópur greindist. Þessar tölur gefa þó ekki heildardánartíðni af völdum skjaldkirtilskrabbameins á íslandi fyrir ofangreint tímabil, þar sem einungis eru taldir með þeir sjúklingar sem greindust á árunum 1955-1984, en ekki þeir sem greindust fyrir 1955 og létust á athugunartímabilinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.