Læknablaðið - 15.04.1992, Blaðsíða 6
120
LÆKNABLAÐIÐ
meðhöndluð með rauðum krypton leysi þó
svo að nýæðar lægju undir FAZ og sjón væri
verri en 6/30. Ljós frá krypton leysi er á
annarri bylgjulengd en ljós frá argon leysi
og telja sumir (3) að nota megi slíkan geisla
í fovea þar sem gula litarefnið þar dragi hann
ekki að sér líkt og argon leysi. Til að meta
árangur meðferðar var mæld sjónskerpa á
Snellen spjaldi. Ef sjúklingar bættu við sig
tveimur línum eða meir var sjón talin betri en
ef sjón versnaði um tvær línur eða meir var
hún talin verri. Þeir sem lásu sömu línu, bættu
við sig eða töpuðu einni línu, voru taldir með
óbreytta sjón.
Samtals var 96 sjúklingum (38.4%) fylgt eftir
í 1-66 mánuði (meðaltal 22.5 mánuðir) (mynd
5).
Öllum sjúklingum sem fengu leysimeðferð,
en þeir voru 41, var fylgt eftir í 1-66 mánuði
(meðaltal 18.8 mánuðir).
NIÐURSTÖÐUR
Af 497 augum sem voru rannsökuð, voru 278
(56.0%) eingöngu með þurrar breytingar en
202 augu (40.6%) með votar breytingar. í 17
augum (3.4%) var ekki að sjá ellihrömun í
augnbotnum (þ.e. annað auga án ellihrörnunar)
(mynd 6). Hjá 79 sjúklingum (31.6%) sást
þurr ellihrömun í báðum augum en hjá 42
(16.8%) sjúklingum var vot ellihrörnun í
báðum augum.
í þurri ellihrömun voru flestir með blandað
form af litarefnistilfærslu og útfellingum
(mynd 7).
I votri aldursrýrnun voru flestir með
örmyndun (Disciform scarring) (mynd 8).
Eitt hundrað og áttatíu sjúklingar (72.0%)
höfðu sjón 1.0-0.5 á betra auga en einungis
21 sjúklingur (8.4% ) hafði sjón á betra auga
0.1 eða minni (lögblindir) (mynd 9).
Mikill munur var á sjón eftir því hvort uin
var að ræða þurra eða vota ellihrömun. Eitt
hundrað níutíu og níu augu (71.5%) sem
höfðu þurra ellihrömun reyndust vera með
sjón 1.0-0.5 en einungis 38 (18.8%) augu sem
höfðu vota ellihrörnun. Tuttugu augu (7.2%)
með þurra ellihrömun voru með sjón 0.1 eða
minni en hinsvegar 112 (55.5%) þeirra sem
voru með vota ellihrömun (mynd 10).
Fjörutíu og eitt auga (16.4%) í jafnmörgum
einstaklingum var meðhöndlað með
Number of patients
0 1-10 11-20 21-30 31-40 41-50 51-60 61-70
Months
Fig. 5. Thefollow up time for 96 paúents.
Number of eyes
AMD
Fig. 6. The fundus appearance of the 497 eyes. Of
those 278 (56.0%) liad atrophic AMD, 202 (40.6%) had
exudative AMD and 17 (3.4%) eyes were normal.
leysimeðferð. Af þeim fengu 56% meðferð
með krypton leysi, 39.0% nteð argon og 5.0%
með bæði argon og krypton leysi.
Sjón var eins eða betri á 24 augum (58.5%)
eftir leysimeðferð, en 17 augu (41.5%)
versnuðu eftir meðferð (mynd 11).
UMRÆÐA
Tvær skilgreiningar hafa verið í gangi á
lögblindu. Hér höfum við kosið að miða við
sjónskerpu 6/60 eða minni á betra auga í
samræmi við fyrri greinar sem hafa verið
skrifaðar hér á landi um svipað efni og þær
erlendu rannsóknir sem við höfum borið okkar
niðurstöður saman við (4-7). Meðal annars
hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreint
lögblindu sent sjón verri en 6/60 á betra auga,
en skilgreining þeirra sem og annarra hefur
verið nokkuð á reiki.