Læknablaðið - 15.04.1992, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 133-9
133
Gunnar A. Baarregaard 1), Jón E. Jónsson 2)
KÖNNUN Á STARFSEMI DAGSPÍTALA
ÁGRIP
Dagspítalarekstur á öldrunarlækningadeild
Landspítalans var kannaður árin 1985 og
1986, en þá var 151 sjúklingur lagður þar inn.
Af sjúklingum voru 52.3% 80 ára eða eldri og
konur reyndust fleiri en karlar (1.7:1.0).
Almenn geta hópsins var góð og fengu 45.7-
84.6% hæstu einkunn við ADL-mat (athafnir
daglegs lífs), en 20% voru taldir með vitglöp.
Lyfjanotkun hópsins var mikil, meðalfjöldi
6.65 lyf/einstakling við útskrift.
Flestir útskrifast heim (37%) eða á sjúkrahús
(33%), en 19% eru enn innskrifaðir við árslok.
INNGANGUR
Dagspítali er oftast deild innan
öldrunarlækningadeildar, en getur verið
sjálfstæð stofnun. Dagspítali nefnist sú deild
sjúkrahúss, sem einungis er rekin að degi til
virka daga. Þar fá sjúklingar sömu umönnun,
rannsóknir og endurhæfingu og á legudeild
öldrunarlækningadeildar. Teymisvinna hinna
ýmsu heilbrigðisstétta, sem sinna öldruðum, er
lykilatriði í meðferð.
í Bretlandi hófst dagspítalarekstur í kringum
1958 og var aðallega ætlaður geðsjúkum
fyrstu árin. Síðar hófst starfsemi dagspítala
í tengslum við öldrunarlækningadeildir
og er sú tilhögun nú talin nauðsynleg.
Hlutverk dagspítala er skilgreint sem
endurhæfing, viðhaldsmeðferð, mat
(rannsókn), læknisfræðileg meðferð, hjúkrun
og félagsleg aðstoð (1). Dagspítala er ætlað
að stuðla frekar að dvöl aldraðra á heimilum
sínum og koma í veg fyrir ótímabæra
stofnanavistun. I Bretlandi er dagþjónustu við
aldraða aðallega skipt í eftirfarandi þætti: A.
Dagspítali (day hospital, sbr. skilgreiningu
Frá 1) Heimilislæknastööinni Uppsölum, Reykjavík,
2) öldrunarlækningadeild Landspítalans. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Gunnar A. Baarregaard.
ofar). B. Dagspítali fyrir einstaklinga með
vitglöp (psychogeriatric ward). C. Dagvistun
aldraðra (day center) (2-5). Dagvistun aldraðra
hérlendis sinnir aðallega félagsþörfum og er
frábrugðin dagspítala varðandi mönnun og
kostnað.
Öldrunarþjónusta hérlendis hefur aðallega
byggst upp á síðustu 20 árum, en mörg
elliheimili höfðu reyndar verið reist áður.
Fyrsta öldrunarlækningadeild hérlendis var
öldrunarlækningadeild Landspítalans (ÖL),
sem var tekin í notkun 25. október 1975.
ÖL er í leiguhúsnæði í níu hæða íbúðablokk
í eigu Öryrkjabandalags Islands að Hátúni
10 b og er þannig fjarri öðrum deildum
Landspítalans. Húsnæðið var upphaflega
ætlað fyrir einstaklingsíbúðir og hefur reynst
óhentugt vegna þrengsla.
Þann 19. mars 1979 var dagspítali deildarinnar
opnaður og þar var framkvæmd sú könnun
er hér greinir frá. Móttökudeild hóf starfsemi
í september 1981. Á fyrstu hæð er aðstaða
fyrir móttökudeild, endurhæfingu, lækna,
hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa og
læknaritara. Á annarri og fjórðu hæð eru
legudeildimar þrjár, hver með 20-24 rúm.
Dagspítalinn er á 9. hæð í um það bil 200
m* 2 rými. Þar er 120 m2 salur, en þiljuð
er af aðstaða fyrir hjúkrunarfræðinga og
skoðunarherbergi. Þá er hvíldaraðstaða fyrir
fjóra sjúklinga og eldhúskrókur ásamt bað-
og salernisaðstöðu. Starfsfólk dagspítalans er:
tveir hjúkrunarfræðingar, tvær starfsstúlkur,
einn sjúkraliði, læknir í 50% starfi og
sérfræðingur í öldranarlækningum gengur
stofugang einu sinni í viku, auk þeirra starfa
þar félagsráðgjafar, sjúkra- og iðjuþjálfar með
aðstoðarfólki.
Þeir sjúklingar, sem koma á dagspítala, hafa
allir verið skoðaðir af læknum deildarinnar
áður, ýmist á öðrum sjúkrahúsum, í
heimahúsum eða á móttökudeildinni. I hverri