Læknablaðið - 15.04.1992, Síða 14
128
LÆKNABLAÐIÐ
NIÐURSTÖÐUR
Dreifing á niðurstöðutölum
kadmíumákvarðana í nýmaberki 30
einstaklinga á aldrinum 17-75 ára, er fengið
höfðu voveiflegan dauðdaga (sbr. á undan), er
sýnd í mynd 5. Af myndinni sést, að magn
kadmíums var mjög lítið (0-9 míkróg/g)
í nýmaberki 14 einstaklinga. í nýmaberki
annarra 14 einstaklinga var magn kadmíums
á bilinu 10-29 míkróg/g (í sjö voru 10-19
míkróg/g og í öðrum sjö 20-29 míkróg/g),
en einungis í tveimur var magn kadmíums á
bilinu 30-39 míkróg/g.
Reynt var að tengja magn kadmíums
í nýmaberki við aldur hlutaðeigandi
einstaklinga. Af mynd 6 sést, að magn
kadmíums er minnst á ungum aldri, en eykst
fram að 70 ára aldri. Eftir það minnkar þéttni
kadmíums aftur, af hverjum sökum sem vera
kann.
Ekki var marktækur munur á þéttni kadmíums
í nýmaberki einstaklinga eftir því, hvort þeir
höfðu búið á höfuðborgarsvæðinu eða annars
staðar á landinu (P>0.05). í aldursflokknum
45-60 ára var þéttni kadmíums að meðaltali
allnokkru meiri í einstaklingum, er búið höfðu
utan höfuðborgarsvæðisins. í aldursflokknum
61-75 ára var þéttni kadmíums hins vegar
rneiri í einstaklingum af höfuðborgarsvæðinu
en annars staðar af á landinu (mynd 7).
UMRÆÐA
Við þessar rannsóknir var notuð örbylgja
til þess að hita upp sýru í þá veru að
sundra sýnum. Notkun örbylgju í þessu
skyni er tiltölulega mjög ný (7-9). Kostir
þessarar aðferðar umfram eldri aðferðir
eru umtalsverðir. Má þar einkum nefna
tímaspamað (sýnum er sundrað á tveimur
mínútum) og lokað kerfi, er kemur í veg fyrir
hugsanlega rnengun (sbr. ntynd 1 og texta).
Anóðustrípun (potentiometric stripping
analysis) er einföld aðferð til ákvörðunar á
ýmsum málmum. Þessari aðferð var fyrst lýst
árið 1976 (10). Aðferð þessi hefur síðar verið
þróuð á marga vegu (11-14). Eins og henni
er lýst hér er aðferðin þó að verulegu leyti
heimaunnin í Rannsóknastofu í lyfjafræði.
Til kosta anóðustrípunar má telja, að
tækjabúnaður er bæði einfaldur og ódýr.
Sundurgreining á málmjónum er einnig
auðveld og tryggir góð sannkennsl á
Fjöldi einstaklinga
Magn kadmíums (mikróg/g)
Mynd 5. Myndin sýnir þéttni kadmíums í nýmaberki 30
einstaklinga, raðað í fjóra þéttnisflokka (0-9, 10-19, 20-29
og 30-39 míkróg/g).
Magn kadmiums (míkróg/g)
Mynd 6. Myndin sýnir þéttni kadmíums í nýmaberki eftir
aldri (raðað í sex aldursflokka).
hlutaðeigandi málmum. Magnákvörðun
er jafnframt tiltölulega auðveld og næmi
aðferðarinnar er einnig mjög viðunandi (sjá
myndir 2,3,4 og texta). Til ókosta má hins
vegar telja, að aðferðin er seinvirk þrátt fyrir
tölvubúnað, er auðveldar aflestur. Hirða og
viðhald á rafskautum er sömuleiðis umtalsverð
og sveiflur í næmi skautanna frá degi til dags
kunna að vera allnokkrar. Af þeim sökum
er ákvörðun á magni málma í sýnum að
jafnaði dreift á tvo daga (sbr. texta). Þá er
það sömuleiðis ókostur, að aðferðina er ekki
unnt að nota til ákvörðunar á öllum málmum.
I Rannsóknastofu í lyfjafræði hefur aðferðin
einkunt sannað gildi sitt við ákvörðun á blýi