Læknablaðið - 15.04.1992, Qupperneq 34
148
LÆKNABLAÐIÐ
stúlkur). Skólahjúkrunarfræðingur (annar af
höfundum) spurði börnin sjálf um hagi þeirra
samkvæmt stöðluðu spumingablaði og fóru
viðtölin fram í október/nóvember öll árin.
Náðist til allra barnanna í þessum aldurshópi.
Við tölfræðilegan samanburð var stuðst við
kí-kvaðrat próf. Munur milli hópa var talinn
marktækur ef p gildi var <0.05.
NIÐURSTÖÐUR
Mynd 1 sýnir vinnuhlutfall útivinnandi mæðra.
Eins og sjá má vinna 75-80% þeirra hálfa eða
fulla vinnu utan heimilis. Tæp 7% mæðra
voru einstæðar. Enginn tölfræðilegur munur
var á milli ára hjá þeim, sem unnu fulla vinnu
utan heimilis borið saman við þær, sem voru
heima eða unnu hlutavinnu. Feður unnu í
öllum tilvikum utan einu fulla vinnu utan
heimilis.
Mynd 2 sýnir hvernig gæslu bamanna er
háttað fyrir eða eftir skóla. Eins og sjá má
eru það móðir eða faðir, sem sjá um gæslu
bamanna í um helmingi tilvika. Fram kemur
að börnin eru ein eða að hluta til ein í allt
að 43% tilvika 1986-87 og gæta jafnvel
yngri systkina. Þetta hlutfall er þó lægst á
síðasta tímabilinu, 1989-90. Munurinn milli
þessara tveggja skólaára reyndist tölfræðilega
marktækur (p<0.05). A myndinni sést einnig
að þessi níu ára böm gæta yngri systkina í 3%
tilvika 1984-85 og 4% tilvika 1986-87. Hér
var um að ræða fjögur yngri systkini alls. Það
yngsta var einungis eins og hálfs árs. Einnig
kom fram tilvik, þar sem eldra systkini (tólf
ára) gætti níu ára barns auk þess að sjá um
þriggja ára systkini.
Árið 1984-85 sögðust 98% barnanna borða
morgunmat, 96% árið 1986-87 og 94% 1989-
90. Samsvarandi hlutföll varðandi hádegismat
voru 97%, 100% og 100%.
Á mynd 3 sést hver tekur til morgunmat.
Mjög mörg barnanna á skólaárinu 1986-87
taka sjálf til morgunverðinn eða alls 40%, en
það hlutfall er mun lægra skólaárið 1989-90
eða 16%. Hér var ekki tölfræðilegur munur
milli þessara tveggja skólaára. Á fyrsta
tímabilinu 1984-85 var ekki spurt um þessi
atriði.
Á mynd 4 sést liver gefur bömunum
hádegismat. Á þesssum tímabilum tóku bömin
til hádegismat sjálf eða stundum sjálf í allt að
25% tilvika. Foreldrar gera það í um 60%
Hlutfall
60
50
40
30
20
10
0
um Heima ussa 50% starf ■■ I00%starf
Mynd 1. Vinnuhlutfall útivinnandi kvenna.
51
1984-85 1986-87 1989-90
Skólaár
1984-85
1986-87
Skólaár
1989-90
Gætir yngra systkinis o Eitt hluta dags Systkini
■■ Foreldri
ihiib Eitt c77A Annar
Mynd 2. Gœsla barnanna heimavið fyrir eða eftir skóla.
Hlutfall
Skólaár
i.. i Sjálf eöa aðrir vm Sjált wm Foreldri
Esa Aörir
Mynd 3. Hverjir taka til morgunmatinn fyrir börnin.