Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.1995, Page 14

Læknablaðið - 15.09.1995, Page 14
CÍFLOX ( ciprófloxacín ) -breiðvirkt sýklalyf Ciflox (ciprófloxacín) Framleiðandi: OMEGA FARMA hf., Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur, J 01 M A 02. Hver tafla inniheldur: Ciprofloxacinum INN, klóríð, mónóhýdrat, samsvarandi Ciprofloxacinum INN 250 mg eða 500 mg. Eiginleikar: Lyfiö er breiðvirkt sýklalyf af kinólónflokki. Verkunarmáti er að nokkru óþekktur, en lyfið blokkar DNA-gýrasa, sem er sýklum nauðsynlegur til frumuskiptingar. Lyfið frásogast um 70-80% frá meltingarvegi. Hámarks blóðþéttni næst eftir 2 klst. og helmingunartimi í blóði er um 4 klst. Um það bil helmingur lyfsins útskilst óbreytt iþvagi, en afgangurínn sem niðurbrotsefni i þvagi, galli og saur. Lyfið verkar á margar sýklategundir, þar á meðal Gram-neikvæða stafi (einnig Pseudomonas aeruginosa, Branhamella catarrhalis); einnig á Gram-jákvæða sýkla. óviss verkun er á loftfælna sýkla. Mjög virkt gegn Neisseria gonorrhoea. Ábendingar. Sýkingar af völdum næmra sýkla, t.d. þvagfærasýkingar, iðrasýkingar (salmonella o.fl.), sýkingar i blöðruhálskirtli. Frábendingar. Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Varúð: Lyfið á ekki að gefa bömum á vaxtarskeiði vegna möguleika á brjóskskemmdum af völdum lyfsins. Einnig ber að gæta varíiðar viö gjöf lyfsins hjá sjúklingum með tilhneigingu til krampa. Aukaverkanir: Ogleði, uppköst og óljós magaóþægindi. Stöku sinnum niðurgangur. Svimi, höfuðverkur og þreytutilfinning. Stöku sinnum sjóntruflanir og einstaka tilvik ofskynjana. Húðútbrot. Timabundin hækkun lifrarenzýma hefur sést. Kristallamyndun i þvagi kemur fyrir, ef þvag er basiskt, en virðist þó ekki valda nýmaskemmdum. Milliverkanir: Lyfið hindrar niðurbrot teófýllins og skyldra lyfja og hækkar þvi blóðþéttni þeirra. Ef nauðsynlegt er að gefa lyfin saman, þarf að fylgjast vel með blóðþéttni teófýllins. Sýrubindandi Ivf, sem innihalda magnesium- eða alúminiumhýdroxið, geta hindrað frásog lyfsins. Athugið: Onæmi getur myndast meðan á lyfjagjöf stendur, t.d. viö beinasýkingar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Þvagfærasýkingar 100-250 mg tvisvar til þrísvar sinnum á dag. Lekandi: 250 mg gefið i einum skammti einu sinni. Iðrasýkingar 500 mg tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Beinasýkingar: 750 mg tvisvar til þrísvar sinnum á dag. -Skammta veröur að minnka, ef kreatininclearance er undir 30 ml/minútu. Lyfið er ekki ætlað bömum. Pakkningar. Töflur 250 mg: 10 stk.; 20 stk.; 100 stk. Töflur 500 mg: 10 stk.; 20 stk. o OMEGA FARMA íslenskt almenningshlutafélag um lyfjaframleiðslu, stofnað 1990

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.