Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 10
914
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
tækt öfugt samband menntunar og dánartíðni af
völdum kransæðasjúkdóma hjá körlum og kon-
um. Dánaráhætta efsta menntahópsins var tæp
70% af dánartíðni þess lægsta hjá körlum
(p<0,02) og rúmlega 20% hjá konum (p<0,01).
Sambandið var áfram fyrir hendi eftir að leið-
rétt var fyrir áhættuþáttum en var ekki mark-
tækt hjá konum (p<0,03 fyrir karla og p>0,10
fyrir konur).
Alyktanir: Menntun er sjálfstætt tillag í
dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma hjá
körlum en ekki með vissu hjá konum. Ætla má
að sama samband sé fyrir hendi meðal kvenna
en dauðsföll þeirra voru mun færri. Menntun
hafði sterkt forspárgildi umfram aðra þætti um
dauðsföll af völdum kransæðasjúkdóma og
þekktir áhættuþættir skýrðu aðeins lítinn hluta
af muni á dánartíðni milli mismunandi mennta-
hópa. Menntun hafði einnig sterk verndandi
áhrif hvað varðaði dánartíðni af völdum allra
orsaka.
Inngangur
Samband þjóðfélagsstöðu við sjúkleika og
dánartíðni hefur lengi verið þekkt (1-6). Eink-
um hefur dánartíðni af völdum hjartasjúkdóma
vakið áhuga (1), enda eru þeir algengsta dánar-
orsök á Vesturlöndum (7) og algengi þeirra
tengist lífsstíl. Fyrr á þessari öld voru hjarta-
sjúkdómar algengari hjá þeim sem betur voru
settir en á síðari árum hefur þetta samband snú-
ist við (1,5,8-11). Niðurstöður nokkurra rann-
sókna hafa jafnvel gefið til kynna að munur á
dánartíðni ólíkra þjóðfélagshópa sé að aukast
(1,8,10,12,13). Því hefur verið haldið fram að
stéttaskiptingar gæti minna hér á landi en ann-
ars staðar í hinum vestræna heimi en margt
bendir þó til að félagslegur jöfnuður hér á landi
sé ekki eins mikill og menn vilja vera láta (14).
Því er áhugavert að kanna hvort þjóðfélagsleg-
ur jöfnuður ríki á íslandi hvað dánartíðni og
dánarorsakir snertir. Einnig er áhugavert að
kanna hvort hugsanlegur stéttamunur á dánar-
tíðni hér á landi gæti skýrst af þekktum áhættu-
þáttum hjarta- og æðasjúkdóma eða hvort leita
þurfi annarra skýringa. Áður hefur verið lýst
sambandi menntunar og áhættuþátta kransæða-
sjúkdóma meðal karla og kvenna sem tóku þátt
í hóprannsókn Hjartaverndar þar sem þekktir
áhættuþættir höfðu að jafnaði meiri styrk með-
al þeirra sem voru minna menntaðir (3).
Hér er gerð grein fyrir framskyggnri rann-
sókn á tengslum menntunar og dánartíðni af
völdum kransæðasjúkdóma á íslandi. Einnig
var kannað samband menntunar og dánartíðni
af völdum krabbameina og slysa í sömu gögn-
um ásamt heildardánartíðni.
Efniviður og aðferðir
Rannsókn þessi var hluti af Hjartaverndar-
rannsókninni en hún er framskyggn hóprann-
sókn sem hófst árið 1967. Þátttakendur í hóp-
rannsókn Hjartaverndar voru karlar fæddir
1907-1934 og konur fæddar 1908-1935, en öll-
um einstaklingum úr þessum árgöngum sem
búsettir voru í Reykjavík og nágrannabyggðar-
lögum samkvæmt þjóðskrá 1. desember 1966
var upphaflega boðin þátttaka í hóprannsókn-
inni, alls 30.853 einstaklingum, 14.945 körlum
og 15.908 konum. Þátttakendum var skipt í sex
rannsóknarhópa (A-F) eftir fæðingardegi og
fæðingarári eins og áður hefur verið lýst (15)
og hafa ákveðnir hópar komið til rannsóknar á
hverju stigi rannsóknarinnar, en þau hafa verið
sex alls.
Þessi rannsókn tók til allra þeirra sem komu
í fyrstu heimsókn sína í hóprannsókn Hjarta-
verndar á stigum I-V, þar sem hópar A-E voru
til rannsóknar, en sumir hafa komið oftar en
einu sinni (15-17). Þátttakendum var fylgt eftir
í 3-27 ár, eftir því hvenær þeir komu inn í rann-
sóknina. Allir þátttakendurnir höfðu fengið
sendan spurningalista fyrir komu, þar sem
spuri var um heilsu og félagslega þætti, þar á
meðal menntun (18). Þátttakendum var skipt í
fjóra hópa eftir því námi sem þeir höfðu lokið
(19): Hópur 1: háskólapróf eða sambærileg
menntun. Þessum hópi tilheyrðu þeir sem lokið
höfðu almennu háskólaprófi og einnig þeir sem
lokið höfðu kennaraprófi ef um stúdentspróf
var einnig að ræða. Þessum flokki tilheyrðu
einnig þeir sem lokið höfðu prófi í forspjalls-
vísindum. Hópur 2: stúdentspróf eða sambæri-
leg menntun. Með því flokkaðist stúdentspróf,
samvinnuskólapróf, verslunarskólapróf og
kennaraskólapróf. Hópur 3: gagnfræðapróf eða
sambærileg menntun. Þeim flokki tilheyrðu
þeir sem lokið höfðu gagnfræðaprófi, ung-
lingaprófi, miðskólaprófi, landsprófi, prófi úr
sjómanna- og stýrimannaskóla, iðnskólaprófi
og prófi úr tækniskóla án stúdentsprófs. Hópur
4: barnaskólapróf eða minni menntun.
Þátttakendur í hóprannsókn Hjartaverndar
rnættu tvisvar til rannsóknar í hverjum áfanga.
1 fyrri heimsókninni, þar sem þátttakendur
mættu fastandi. var blóðþrýstingur mældur