Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
973
Misjöfn læknisráð á netinu
- Þýskir læknar kanna þá læknisfræöi sem þar er í boöi
Internetið kemur við sögu á
æ fleiri sviðum mannlegs lífs
og nú er hægt að leggja spurn-
ingar fyrir lækna í gegnum
netið og þeir svara um hæl með
tölvupósti. Þessi starfsemi er
þó ekki undir neinu eftirliti en
ef marka má grein sem tveir
læknar skrifa í Lancet (1) væri
ekki vanþörf á því að fylgjast
með þeirri þjónustu sem „net-
læknar" bjóða upp á.
Greinarhöfundar létu leitar-
vélarnar Yahoo og Alta Vista
hafa uppi á þeim sem bjóða
upp á læknisráð á netinu og
fundu þannig 17 „netlækna“.
Af þeim buðu 10 upp á ókeypis
þjónustu en sjö tóku gjald fyrir
læknisráðin. Öllum þessum
læknum var sent sama fyrir-
spumin sem var svohljóðandi:
„Eg sá á vefnum að þú býður
upp læknisráð með tölvupósti.
Eg er 55 ára gamall og á við
minni háttar húðvanda að etja.
I gær myndaðist breið rák á
brjósti mínu (en hvergi annars
staðar) þar sem húið varð rauð
og blöðrur urðu til fullar af
vökva. Þessu fylgdi töluverður
sársauki. Eg ætlaði ekki að að-
hafast neitt í þeirri trú að þetta
myndi hverfa af sjálfu sér en
sonur minn benti mér á að leita
ráða hjá þér. Eg tek lyfið Sand-
immune vegna þess að ég fékk
nýtt nýra fyrir nokkm. Hefurðu
einhverja hugmynd um hvað
þetta gæti verið? Geturðu gefið
mér einhver ráð um meðferð?
Og það sem mestu varðar: á ég
að leita læknis (ég bý í sveit)
eða get ég beðið í nokkra daga
og séð hvort þetta hverfur?"
Þessu fylgdu upplýsingar um
greiðslukort sem mætti skuld-
færa og bréfið var undirritað af
Gunther í Þýskalandi.
Að baki þessari lýsingu var
dæmigerð ristilbólga sem sjúk-
lingar með ónæmistruflanir fá
oft en hún krefst tafarlausrar
meðferðar með acýklóvír.
Af læknunum 17 svöruðu
10 en af þeim neituðu þrír að
gefa læknisráð því þeir væru
ekki sérfræðingar í húðlækn-
ingum. Tveir þeirra sjö sem
svöruðu gerðu það ókeypis en
fimm tóku gjald fyrir. Fimm
læknar greindu sjúkdóminn
rétt og gáfu viðeigandi ráð.
En tvö svör orkuðu vægast
sagt tvímælis. Annað var frá
manni sem sagðist vera
„þekktur náttúrulæknir, fyrir-
lesari, rithöfundur og heimilis-
læknir“. Hann gaf það ráð að
fyrirspyrjandi þyrfti sennilega
ekkert að óttast blöðrumar en
réð honum þó að taka hómó-
patalyfið Apis 30D ásamt C-
vítamíni. Fyrir þetta tók hann
sem svaraði til 1.700 króna.
Hitt svarið var frá manni
sem sagðist vera „næringar-
fræðingur" og bauð upp á
„beinlínu sjúkdómsgreiningu
ásamt upplýsingum og ráð-
gjöf um ýmsa sjúkdóma og
heilsufar". Niðurstaða hans
var sú að þetta gæti stafað af
„stíflu í losunarlíffærum (lif-
ur, milta, gallblöðru, nýrum,
þörmum og húð). Þú þarft að
hafa hægðir eigi sjaldnar en
tvisvar á dag en ef það gengur
illa skaltu borða tvö epli og
drekka glas af heitu vatni.“
Einnig ráðlagði hann sjúk-
lingnum að anda að sér fersku
lofti, drekka rigningarvatn og
taka inn ensím sem væru góð
við ofnæmi. Þá átti fyrirspyrj-
andi að hætta að neyta mjólk-
urafurða og fæðu sem inni-
héldi hveiti en verða sér úti
um rauðsmára og vatnaliljur
sem rétt væri að borða ótæpi-
lega. Þessi ráðgjafi tók ekki fé
fyrir ráðleggingar sínar en
bauðst á hinn bóginn til þess
að senda leiðbeiningar um það
hvernig hægt væri að fá smár-
ann og liljurnar sendar heim
að dyrum svo væntanlega
voru einhverjir viðskiptahags-
munir þar að baki. Ekki ráð-
lagði þessi maður fyrirspyrj-
anda að leita læknis.
Greinarhöfundar benda á að
sjö netlæknar hafi ekki svarað
en það gæti reynst afdrifaríkt
fyrir sjúklinga og tafið fyrir
raunverulegri læknishjálp að
þurfa að bíða lengi eftir svari.
Allir læknamir voru búsettir í
Bandaríkjunum en enginn
gerði athugasemdir við það að
gefa ráð þvert á landamæri sem
getur þó orkað tvímælis.
Greininni lýkur á hvatningu til
stjórnvalda og lækna um að
stemma stigu við skottulækn-
ingum á netinu, það þurfi að
vemda almenning fyrir því að
menn sem ekki hafa tilskilda
menntun séu að greina sjúk-
dóma í fólki og veita vafasama
ráðgjöf á netinu. Það verði að
einskorða slíka ráðgjöf við al-
mennar leiðbeiningar um
heilsusamlegt líferni vegna
þess að almenningur hafi enga
möguleika á að sannreyna
hæfni og menntun þess sem
gefur sig út fyrir að vera net-
læknir.
HEIMILD:
1. Eysenbaeh G, Diepgen TL. Evalu-
ation of eyberdocs. Lancet 1998;
352: (nelútgáfa).