Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
933
Mynd 1 sýnir aldur þegar einkenni komu
fyrst fram. I hópnum sem hafði jákvætt próf
fyrir ofnæmi voru einkenni komin fram hjá lið-
lega helmingi við 16 ára aldur og hjá tæplega
70% um 20 ára aldur. Hjá þeim sem ekki
reyndust hafa jákvætt próf fyrir ofnæmi höfðu
um 30% fengið einkenni um 20 ára aldur og
helmingurinn fékk einkenni eftir 35 ára aldur.
Mynd 2 sýnir aldur við upphaf einkenna hjá
þeim sem höfðu jákvætt próf fyrir grasfrjóum
og skiptingu eftir því hvort saga var um of-
næmi hjá foreldrum eða systkinum eða ekki.
Myndin sýnir að þau sem höfðu slíka sögu
fengu einkenni á unga aldri í þessari rannsókn.
Tafla IV sýnir ofnæmisvalda hjá þeim sem
höfðu jákvætt ofnæmispróf. Hæst var hlutfallið
fyrir grösum og þar næst fyrir köttum, birki og
hundum. Rykmaurar greindust aðeins í um tí-
unda hluta hópsins. Hlutfall jákvæðra prófa
fyrir L. destructor var þó ena hærra en fyrir
grösum en fyrir honum var þó einungis prófað
hjá þeim sem unnu í heyi.
Umræða
I þessari rannsókn reyndist tæplega helm-
ingur prófaðra einstaklinga með bráðaofnæmi.
I íslenskri rannsókn sem tekur til sjúklingahóps
með langvinna slímhúðarbólgu í nefi, reyndust
46% hafa ofnæmi (7).
I Evrópukönnuninni Lungu og heilsa sem
Island tók þátt í, og þar sem rannsakað var
bráðaofnæmi hjá 20-44 ára íslendingum völd-
um af handahófi, reyndust 20,5% hafa jákvæð
húðpróf (2). I rannsókn á bráðaofnæmi í tveim-
ur landbúnaðarhéruðum á íslandi reyndust
17,9% vera með jákvæð húðpróf (8). Fyrsta
greinin um niðurstöður húðprófa á íslandi var
birt 1981 og niðurstöður með tilliti til röðunar
algengustu ofnæmisvalda var áþekk og hér (9).
Bráðaofnæmi er fyrst og fremst sjúkdómur
barna og ungs fólks og endurspeglast það í mun
Mynd 2. Aldur við upphaf einkenna hjá þeim sem höfðu jákvœtt
próf jyrir grasfrjóum skipt eftir hvort saga var um ofnœmi hjá
foreldrum eða systkinum.
Tafla IV. Hlutfallsskipting milli ofnœmisvalda hjá þeim sem
höfðu jákvœtt ofnæmispróf
Ofnæmisvaldar %
Gras 61,0
Köttur 45,1
Birki 19,9
Hundur 17,7
Hestur 12,6
Dermatophagoides petronyssinus 9,7
Dermatophagoides farinae 9,7
Túnfífill 4,7
Cladosporium herbarum 2,1
Alternaria alternarius 1,4
lægri meðalaldri þeirra sem hafa ofnæmi, borið
saman við þá sem ekki hafa sjúkdóminn. Nær
helmingur þeirra sem rannsakaðir eru eða 48%
hafa síkvef sem ástæðu rannsóknar en einungis
um 42% þeirra reynast hafa ofnæmi. Liðlega
fjórðungur rannsakaðra hafði einkenni sem
samrýmst gátu frjókvefi en 80% þeirra greind-
ust með ofnæmi. Þetta sýnir að einkenni frjó-
kvefs gefa betri vísbendingu um ofnæmi en sí-
kvef. Það vekur hins vegar upp þá spurningu
hvers vegna fleiri voru ekki jákvæðir í þeim
hópi. Þetta kann að stafa af því að á rannsókn-
arsvæðinu séu ofnæmisvakar frjókorna sem
enn eru ekki þekktir. Frjómælingar hafa verið
gerðar á suðvesturhorni landsins en hófust á
Akureyri í maímánuði á þessu ári. Verður
væntanlega innan tíðar hægt að fá svar við
þeirri spurningu. I þessari rannsókn var rétt um
þriðjungur sjúklinga með astma samfara of-
næmi. Það er nokkuð hátt hlutfall borið saman
við aðrar rannsóknir (10). Islensk rannsókn
hefur sýnt að þeir sem höfðu sögu um ofnæm-
iskvef höfðu sögu um astma í 49% tilvika (7).
Hafa ber í huga að rannsóknarhópurinn var að
stærstum hluta börn og ungt fólk. Tæp 10%
rannsakaðra einstaklinga hafa ekki ákveðna
sjúkdómsgreiningu sem að nokkru leyti kann