Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
957
riti fyrir hvern sjúkdóm með
lýsingum á því ferli sem
sjúklingur fer í gegnum frá
því hann kemur inn og þar til
hann er útskrifaður. Inn í þetta
koma að sjálfsögðu mörg mis-
munandi sjónarmið og vinnu-
skipulag annarra þjónustu-
deilda sem er nauðsynlegt að
hafa samvinnu við í sambandi
við ferli sjúklingsins. Tregðu-
lögmálin eru mörg og það er
mikið verk að samræma alla
þessa starfsemi.
A ráðstefnunni í Noregi
sem ég nefndi heyrði ég að
víða hafa læknar ekki sinnt
gæðamálum nægilega og menn
hafa velt því töluvert fyrir sér
hvernig best væri að fá þá
með. Margir hafa komist að
þeirri niðurstöðu að besta
leiðin sé að fella gæðastarfið
inn í launa- og framgangskerfi
lækna þannig að vinna við
gæðastjórnun leiði til stöðu-
hækkunar."
Hver á að hafa eftirlit?
- Hverjir eiga að hafa eftir-
lit með því að rétt sé staðið að
málum í heilbrigðisþjónust-
unni? A starfsfólkið að passa
upp á sjálft sig eða á einhver
annar að gera það?
„Það getur aldrei orðið
öðruvísi en að fólkið passi
upp á sjálft sig. Ef mér sem
lækni er falið að skera upp
fólk þarf ég að uppfylla lág-
markskröfur en ber líka
ábyrgð á því að mennta mig
og fylgjast með í faginu svo
ég geti unnið mitt starf, það
getur enginn annar fylgst með
því. Það hlýtur að vera verk-
efni hverrar sjúkradeildar að
fylgjast með árangrinum og
grípa til einhverra ráðstafana
ef honum fer að hraka. í því
augnamiði má nota ýmiss
konar aðferðir til árangurs-
mælinga sem meta árangur
starfseminnar og bera hann
saman við árangurinn í fyrra
eða við aðrar deildir en það
verður að vera með jákvæðum
formerkjum svo það virki sem
hvati. Það má ekki vera með
þeim hætti að mönnum finnist
að verið sé að gera þá að söku-
dólgum.“
- I málinu sem upp kom í
Bristol gerðist það að til varð
einskonar samsæri þagnarinn-
ar þar sem menn fóru að
hylma yfir með kollegunum.
Er sú hætta ekki alltaf fyrir
hendi ef menn eiga að hafa
eftirlit með sjálfum sér?
„Jú, ef það er ekki gæða-
stjórnunarkerfi í gangi með
innbyggðu eftirliti. Það þarf
að festa niður ákveðna tíma
þar sem farið er yfir stöðuna
og árangurinn metinn. Reynd-
ar er aðhaldið inni á stofnun-
um orðið miklu meira en það
var hér áður fyrr. Fyrir svona
þremur eða fjórum áratugum
hefði sá skurðlæknir sem
heilsaði upp á sjúkling eftir
aðgerð og sagði honum að allt
hefði gengið vel fengið hæstu
einkunn fyrir mannleg sam-
skipti. Nú væri þessi maður
sennilega rekinn því sam-
kvæmt lögum um réttindi
sjúklinga ber honum skylda til
að upplýsa sjúkling um að-
gerðina og hættur af henni
fyrir aðgerð, útskýra fyrir hon-
um aðra möguleika og láta
hann velja hvað hann vill
gera. Eftir aðgerð á hann svo
að útskýra fyrir sjúklingnum
við hverju hann ntegi búast í
framhaldinu og halda uppi
samskiptum við hann þangað
til hann er útskrifaður.
Þessi samskipti eru nauð-
synleg og að mínu viti gera þau
starfið skemmtilegra, en lækn-
ar þurfa að sinna margvísleg-
um störfum á mismunandi
stöðum á sama degi. Læknir-
inn getur því lent í þeirri að-
stöðu að þurfa að forgangsraða
og jafnvel sleppa sumu og get-
ur það þá orðið á kostnað þess-
ara mannlegu samskipta.
Skipulagið þarf að vera þannig
að það gerist ekki.“
Blóðbankinn í fremstu
röð
- En hvað um þá leið að
sjúkrastofnanir sækist eftir al-
þjóðlegri vottun, rétt eins og
iðnfyrirtæki gera í vaxandi
mæli?
„Jú, það er til í dæminu en
það er feikileg vinna og við á
Ríkisspítölum eigum langt í
land með að sækja um slíkt.
Það er aðeins ein deild sem á
stutt í að geta sótt um slíka
vottun en það er Blóðbankinn.
Hann er kominn mjög langt í
því að búa sér til gæðahand-
bók. Einungis þrír eða fjórir
blóðbankar í heiminum eru
komnir með gæðavottun að ég
held. Hins vegar eru einhver
hundruð í slíkri vinnu en
Blóðbankinn hér er trúlega sá
næsti sem fær þannig vottun.
Þangað er mikið leitað eftir
upplýsingum og erlendir bank-
ar eru að senda fólk hingað til
að læra.
Menn horfa á það að þetta
kostar dálítið, ekki kannski
svo mikla peninga en það þarf
einhver að fá tíma til að setjast
niður og vinna þá vinnu sem
til þarf. Það er ekki hægt að
fullyrða að þær krónur sem
fara í gæðastjórnun skili sér í
krónuformi aftur þótt það sé
afar líklegt, en þær skila ör-
ugglega fleiri ánægðum sjúk-
lingum og starfsfólki eða betri
vöru og ánægðari ytri og innri
viðskiptavinum svo notað sé
orðfæri gæðastjórnunar,"
sagði Leifur Bárðarson. -ÞH