Læknablaðið - 15.12.1998, Page 38
940
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
reynslu mjög óhentugir í hvers konar rann-
sóknum og aðgerðum þar sem þarf að standa
nálægt skyggnimagnaranum, til dæmis við
æðavíkkanir á fótleggjum og í mismunandi
stöðum við sjúklinginn (til dæmis við að-
gerðir um vena jugularis intema). Þetta verð-
ur að bæta í samvinnu við framleiðendur.
6. Nauðsynlegt virðist því verða að nota blý-
gleraugu í rannsóknaaðgerðum, einkanlega
þar sem ekki er hægt að verja sig með loft-
festum skermum. Vandamál er, að ekki er
hægt að fá sérslípuð augngler af þessu tagi
fyrir þá sem þurfa slíkra með.
Það er því brýnt að finna einhvem í Svíþjóð
eða á Norðurlöndum, sem getur slípað blýgler
þannig að slíkt gagn verði að.“
Ulf Nyman, yfirlœknir, myndgreiningadeild
háskólasjúkrahússins í Malmö, Svíþjóð.
1. Guðlaugur Einarsson, Asmundur Brekkan. Röntgen- og
aðrar myndgreiningarannsóknir á íslandi 1993. Lækna-
blaðið 1995;81:790-7.
2. Svensk Förening för Medicinsk Radiologi. Meddelande nr.
7, 1998.
Formoterol Eiginleikar: Verkunarháttur: Formóteról er öflugur sértækur
beta2-örvi sem veldur slökun á sléttum vöðvum í berkjum.
v/A/O Formóteról hefur þess vegna berkjuvikkandi áhrif hjá
nhnlftr* siúk|influm með tímabundna þrengingu í öndunarvegum.
mmUnaiGT Berkjuvíkkun hefst fljótt, innan 1-3 mín. eftir innúðun og
verkunarlengd er að meðaltali 12 klst. eftir einn skammt. Lyfjahvörf: Frásog: Innúðað
formóteról frásogast hratt. Hámarksþéttni í plasma næst um 15 mín. eftir innúðun. í
rannsóknum hefur komið fram að meðalmagn af formóteróli sem berst til lungna eftir
innúðun með Turbuhaler-tæki er um 21-37% af mældum skammti. Heildaraðgengi
(sýstemískt) fyrir það magn sem berst til lungna er um 46%. Dreifing og umbrot Plasma-
próteinbinding er um 50%. Formóteról er umbrotið með beinni glúkúróníðtengingu og 0-
afmetýleringu. Ensímið sem veldur O-afmetýleringu hefur ekki verið greint. Heildar-
plasmaklerans og dreifingarrúmmál hafa ekki verið ákvörðuð. Útskilnaður: Formóteról
skilst að mestu leiti út sem umbrotsefni. Eftir innúðun, útskilst 6-10% af gefnum skammti í
þvagi á óbreyttu formi. Um 20% af skammti gefnum í æð skilst út í þvagi á óbreyttu formi.
Lokahelmingunartími eftir innúðun er áætlaður 8 klst. Ábendingar: Einkenni um
berkjuþrengingu hjá sjúklingum með astma. Oxis Turbuhaler má gefa til að lina berkju-
þrengingu þegar meðferð með barksterum hefur ekki reynst árangursrik. Frábendingar:
Ofnæmi fyrir formóteróli. Meðganga og brjóstagjöf: Takmörkuð reynsla er af notkun
lyfsins hjá konum á meðgöngutíma. í dýrarannsóknum á formóteróli hefur það valdið
fylgjulosi sem og dregið úr lífslíkum nýbura og fæðingarþyngd. Þessi áhrif komu fram við
talsvert hærri þéttni lyfsins en fást við kliníska notkun Oxis Turbuhaler. Þar til frekari
upplýsingar liggja fyrir skal einungis nota Oxis Turbuhaler á meðgöngutima að vel íhuguðu
máli. Ekki er vitað hvort formóteról berst í brjóstamjólk kvenna. Oxis Tubuhaler skal því
ekki gefa konum með barn á brjósti. Formóteról hefur fundist i litlu mæli i mjólk rotta.
Varúð: Astma-sjúklingar, sem þurfa meðferð með beta2-örva, ættu einnig að fá hæfilega
bólgueyðandi meðferð með barksterum. Sjúklingum skal ráðlagt að taka áfram bólgu-
eyðandi lyf eftir að me'ðferð með Oxis Turbuhaler er hafin, jafnvel þó að dragi úr
einkennum. Ef einkennin hverfa ekki, eða ef auka þarf skammta af beta2-örvum, bendir
það til þess að sjúkdómurinn sé að versna og að endurmeta skuli astmameðferðina.
Hvorki skal hefja meðferð né auka skammta við versnun sjúkdóms. Gæta skal varúðar hjá
sjúklingum með skjaldvakaóhóf (thyrotoxicosis) eða alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma
eins og blóðþurrðar hjartasjúkdóma (ischemic heart diseases), hraðsláttarglöp
(tachyarrhythmias) og alvarlega hjartabilun. í byrjun er mælt með tiðari blóðsykurs-
mælingum hjá sykursjúkum vegna hættu á blóðsykurshækkun af völdum beta2-örva.
Alvarleg kalíumþurrð getur orðið við beta2-örva meðferð. Sérstakrar varúðar skal gæta
hjá sjúklingum með bráðan alvarlegan astma, þar sem sú hætta sem er til staðar getur
aukist við súrefnisskort (hypoxia). Kaliumþurrð getur aukist við samtímis meðferð með
xantinafleiðum, sterum og þvagræsilyfjum. Þess vegna skal fylgjast með kaliumgildum i
sermi. Oxis Turbuhaler inniheldur 450 pg af mjókursykri í hverjum skammti. Þetta magn
hefur venjulega ekki í för með sér hættu fyrir sjúklinga með mjólkursykuróþol. Engin gögn
eru fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Áhrif skertrar lifrar- eða
nýrnastarfsemi á lyfjahvörf formóteróls og lyfjahvörf hjá öldruðum eru óþekkt Þar sem
brotthvarf formóteróls byggist aðallega á umbrotum má búast við hærri gildum hjá
sjúklingum með alvarlega skorpulifur. Aukaverkanir: Algengar (>1 %): Miðtaugakerfi:
Höfuðverkur. Hjarta- og æðakerfi: Hjartsláttarónot. Beinagrindarvöðvar: Skjálfti. Sjald-
gæfar (0,1-1%): Miðtaugakerfi: Æsingur, eirðarleysi, svefntruflanir. Beinagrindarvöðvar:
Vöðvakrampar. Hjarta- og æðakerfi: Hraðsláttur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Húð: Útbrot,
ofsakláði. Öndunarvegir: Berkjusamdráttur. Efnaskipti: Kalíumþurrð/-blóðkalíumhækkun.
Skjálfti og hjartsláttarónot geta komið fram en eru venjulega væg og minnka við
áframhaldandi notkun. Eins og við á um alla meðferð með innúðalyfjum, getur þverstæður
(paradoxial) berkjusamdráttur komið fram i einstaka tilvikum. Milliverkanir: Engar
sértækar rannsóknir á milliverkun hafa verið gerðar á Oxis Turbuhaler. Samtimis meðferð
með öðrum adrenvirkum lyfjum getur aukið óæskileg áhrif Oxis Turbuhaler. Samtimis
meðferð með xantínafleiðum, sterum eða þvagræsilyfjum geta aukið hættuna á kalíum-
þurrð við notkun beta2-örva. Kalíumþurrð getur aukið hættu á hjartsláttartruflunum hjá
sjúklingum á meðferð með digitalis. Kínidín, dísópýramíð, prókaínamíð, fentíazín,
andhistamin (terfenadin) og þríhringlaga geðdeyfðarlyf geta lengt QT-bilið og aukið hættu
á sleglahjartsláttartruflunum. Beta-blokkarar geta dregið úr eða komið í veg fyrir verkun
Oxis Turbuhaler. Oxis Turbuhaler skal þess vegna ekki gefa samtímis beta-blokkurum
(þ.m.t. augndropar) nema brýna nauðsyn beri til. Ofskömmtun: Engin reynsla er á meðferð
ofskömmtunar. Að líkindum leiðir ofskömmtun til áhrifa sem eru einkennandi fyrir beta2-
örva: Skjálfti, höfuðverkur, hjartsláttarónot og hraðsláttur. Lágþrýstingur, efnaskipta-
blóðsýring (metabolic acidosis), kalíumþurrð og blóðsykurshækkun geta einnig komið
fyrir. Veita skal stuðningsmeðferð og meðferð gegn einkennum. Skammtastærðir handa
fullorðnum: Venjulegir skammtar: 4,5-9 pg einu sinni til tvisvar á dag. Skammtinn má gefa
að morgni og/eða að kvöldi. Skammt að kvöldi má gefa til þess að koma í veg fyrir að
sjúklingur vakni vegna einkenna næturastma. Sumir sjúklingar geta þurft 18 |ig einu sinni
eða tvisvar á dag. Forðast skal stærri skammta en 18 )ig. í klínískum rannsóknum hefur
verið sýnt fram á að verkunarlengd lyfsins er um 12 klst. Ávallt skal leitast við að gefa
lágmarks skammt sem verkar. Skammtastærðir handa börnum: Engin gögn eru
fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Athugið: Oxis Turbuhaler er tæki
sem er drifið með innöndun. Það þýðir að þegar sjúklingur andar að sér i gegnum
munnstykki tækisins berst lyfið með innöndunarloftinu til loftvega. Mikilvægt er að
leiðbeina sjúklingum um að anda kröftuglega og djúpt að sér í gegnum munnstykkið til
þess að tryggja hámarksskammt. Þar sem litið magn af lyfinu er gefið í hverjum skammti,
er mögulegt að sjúklingur finni hvorki bragð né verði á annan hátt var við lyfið við gjöf.
Upplýsingar um lyfið fylgja hverri pakkningu þess. Geymsla: Lyfið skal geyma i
umbúðunum vandlega lokuðum. Pakkningar og verð (október 1997): Innúðaduft 4,5
míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 3712 (hluti sjúklings 1.499 kr.).
Innúðaduft 9 míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 4512 (hluti
sjúklings 1.500 kr.
Greiðslufyrirkomulag B.
Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco h.f.