Læknablaðið - 15.12.1998, Síða 46
948
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
geta komið. Gerum til dæmis
ráð fyrir mistökum læknis
sem oft er rætt um í fjölmiðl-
um. Fjölmiðlar meðhöndla oft
meint mistök lækna einsog
ásetningarsynd, eins og skipu-
lagt bankarán eða morð af
yfirlögðu ráði. Undantekning-
arlaust er enginn læknir þann-
ig að hann meiði sjúkling sinn
viljandi, þá er hann náttúrlega
bilaður, þar af leiðandi er
sjaldan minnst á fangelsi sem
refsingu vegna mistaka, það
er helst ef læknir fer að stela
peningum. En mistök í starfi,
sem rekja má til þess að lækn-
ir hafi verið í rús, eru túlkuð
mjög, mjög alvarleg.
Árið 1932 voru sett hér
læknalög, hin fyrstu í Evrópu,
og átti Vilmundur heitinn
Jónsson drýgstan þátt í því.
Þessi lög eru mjög merkileg
og þar kemur skýrt fram að
sjúklingur getur ávallt neitað
meðferð. Læknar hafa ekki
alltaf gert sér grein fyrir
þessu. Það var til dæmis eitt
sinn hringt í mig út af sjúk-
lingi með blóðeitrun í fæti.
Læknar höfðu tjáð honum að
ef ekki yrði skorið í fótinn
myndi hann að öllum líkind-
um deyja. Þeir höfðu rætt við
lögfræðinga og fengu þau ráð
að taka manninn og skera
hann. Það væri skylda þeirra
sem borgara að bjarga lífi.
Loks náðist í mig og ég stopp-
aði þá náttúrlega af og spurði
hvort maðurinn væri með réttu
ráði, úrskurður geðlæknis var
að sjúklingurinn væri með réttu
ráð. Ég sagði kollegum mín-
um að maðurinn yrði að fá að
fara heim, þeir gætu ekki ráð-
ist á hann. Þetta bjargaðist nú
sem betur fer þar sem sonur
hans náði í penicillín og mann-
inum snarbatnaði. En málið er
að sjúklingur getur neitað með-
ferð, auðvitað getur læknir
óskað eftir því við sjúkling að
hann leiti eitthvert annað vilji
hann ekki fara að ráðum lækn-
isins, það hefur komið fyrir.“
- Hvað með réttinn til að
deyja?
„Almennt er farið eftir því
óski langveikir einstaklingar
til dæmis ekki endurlífgunar.“
- Stundum finnst mér að
tala megi um ákveðna tækni-
nauðhyggju í læknisfræðinni.
Það er svo mikið til af græjum
sem menn verða að fá að prófa
án nokkurra siðferðilegra
spurninga.
„Lækni ber að halda við lífi
og deila má um hve langt hann
skal ganga Sjálfsagt er lækn-
ismeðferð stundum haldið
áfram of lengi og gengið of
langt, og það er oft á tíðum
ömurleg sjón að ganga um
hjúkrunardeildir og sjá ein-
staklinga sem legið hafa
kannski árum saman án nokk-
urra tengsla við umheiminn.
Vegna þessa hafa menn farið
að tala um líknarhjálp og líkn-
ardauða. Samkvæmt lögum er
aðstoð við líknardauða ekki
leyfileg, en í Hollandi til
dæmis var aðstoð við líknar-
dauða leyfð. Nýlega birtust í
New England Journal of
Medicine niðurstöður rann-
sóknar sem óháðir aðilar
framkvæmdu og þær voru á
annan veg en birst höfðu frá
hollenska læknafélaginu.
Samkvæmt hollensku lögun-
um verður læknir sem aðstoð-
ar við líknardauða að gefa
skýrslu til ríkissaksóknara en í
yfir 70% tilvika hafði engin
skýrsla verið gefin út og í
mjög mörgum tilvikum hafði
læknirinn einn tekið ákvörð-
un. Þetta hefur verið harðlega
gagnrýnt annars staðar og á
alþjóðlegum fundum hafa
Hollendingar fengið mjög
óþægilegar spurningar, reynd-
ar munu þeir nú hafa til athug-
unar að endurskoða þessi
lagaákvæði. Ákvæði varðandi
líknarhjálp og gegn líknar-
dauða verða að vera mjög
ströng og ég býst ekki við að
eiga eftir að sjá Alþingi Is-
lendinga samþykkja einhverja
frílistun í þessu efni og er því
algjörlega mótfallinn.“
- Er læknisfræði að þróast
úr lækningum yfir í iðnað?
„Það er oft stutt á milli, en
samt er það svo að alltaf er
sjúklingurinn á bakvið og
menn verða að geta metið
hvað sjúklingurinn vill ganga
langt. Ef til vill skortir skýrari
ákvæði í lögum um að læknar
skýri aðgerðartækni og mögu-
legar afleiðingar aðgerða nán-
ar fyrir sjúklingum. Ég skal
ekki segja hvort framtíðin sé
sú að þú verður kannski kom-
in með líffæri úr fimm til tíu
manneskjum, þú heitir þá
naumast lengur Birna, en ég
er að minnsta kosti ánægður
að þurfa ekki að taka afstöðu
til svona mála, komi þau upp
verð ég löngu fallinn frá. Ég
vona þó að almenn heilbrigð
skynsemi og mannleg sam-
skipti komi í veg fyrir að
læknisfræðin breytist í tækni-
undur.“
Heilbrigðismál hafa
ekki glögg landamæri
- Hvar liggja mörk heil-
brigðismála?
„Það getur verið erfitt að
afmarka þau en auðvitað er
margt sem varðar heilbrigði.
Eitt er þó alveg ljóst, það er að
ákvarðanir um aðgerðir sem
hafa mest áhrif í heilbrigðis-
málum eru margar teknar utan
heilbrigðisþjónustunnar. Það
er hægt að horfa til alls heims-
ins og þá blasir við að mesti
heilbrigðisvandi í dag stafar