Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1998, Síða 82

Læknablaðið - 15.12.1998, Síða 82
980 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 for the Protection of Human Rights and Fundamental Free- doms, Rome 4.XI. 1950). A.Fyrstur er Sáttmálinn um mannréttindi og læknis- fræði (Convention for the Protection of Human Rights and Dignity of the Hunran Being with regard to the Application of Bio- logy and Medicine: Con- vention on Human Rights and Biomedicine. Adopted by the Committee of Minis- ters on 19 November 1996), sem undirritaður var af meirihluta aðildarríkja Evr- ópuráðsins í Oviedo, Ast- urias á Norður-Spáni 4. apríl 1997, þar á meðal af fulltrúa Islands. í fyrstu grein samningsins er kveðið á um það, hverja vernd aðilar Sáttmálans skulu veita hverjum og einum, að því er varðar beitingu líffræði og læknisfræði og þar segir í lokin „að hver samnings- aðili skal í landslögum gera nauðsynlegar ráðstafanir til að fullncegja ákvœðum samnings þessa í annarri grein er mann- veran sett ofar öðru enda skuli „hagsmunir og velferð mannverunnar vera fremri eiginhagsmunum samfélags og vísinda Tíunda grein er um cinkalíf og rétt til að fá upplýsing- ar og þar segir meðal ann- ars „Allir eiga rétt á að einkalíf þeirra sé virt, að því er varðar upplýsingar um heilbrigði þeirra “ og „að fá að vita um hverjar þœr upplýsingar, sem safn- að er“. í elleftu grein er bann við hvers kyns mismunun vegna erfðauppruna. I næstu grein er fjallað um forspár- erfðapróf „Prófum, sem segja fyrir um erfðasjúk- dóma eða koma að haldi annað hvort við að bera kennsl á þann er ber gen, sem veldur sjúkdómi eða við að uppgötva arfbundna hneigð til sjúkdóms eða nœmi fyrir sjúkdómi, má aðeins beita í heilbrigðis- skyni eða í vísindarann- sóknum tengdum heilbrigð- ismarkmiðum og sé það háð því, að veitt sé viðeigandi erfðaráðgjöf“. B.í þessu samhengi ber að geta þess, að 1992 sam- þykkti Ráðherranefnd Evr- ópuráðsins ályktun til að- ildarríkjanna um erfða- prófanir og erfðaskimun. Þar segir meðal annars í sjöundu meginreglu um ^u matran sumatriptan TÖFLUR; N02CX04 R, E Hver tafla inniheldur Sumatriptanum INN, súkkínat, 70 mg eða 140 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 50 mg eða 100 mg. STUNGULYF sc; N 02 C X 04 R, E 1 ml inniheldur Sumatriptanum INN, súkkínat, 16,8 mg, samsvarandi Sumatriptanum INN 12 mg, Natrii chloridum 7 mg, Aqua ad iniectabilia ad 1 ml. Eiginleikar: Súmatriptan virkjar sérhæft serótónínviðtaka af undirflokki 5-HTid í heilaæðum. Lyfið veldur þannig samdrætti í heilaæðum, einkum greinum a. carotis. Víkkun þessara æða er talin orsök verkjanna við mígreni. Verkun lyfsins hefst um 10-15 mínútum eftir gjöf undir húð, en 30 mínútum eftir inntöku. Aðgengi eftir gjöf undir húð er nánast 100%, en að meðaltali 14% eftir inntöku . Blóðþéttni nær hámarki innan 25 mínútna eftir gjöf undir húð, en oftast innan 45 mínútna eftir inntöku. Dreifingarrúmmál er 2,7 l/kg. Binding við plasmaprótein er 20-30%. Lyfið umbrotnar að miklu leyti (80%) í óvirk umbrotsefni í lifur og skilst út í nýrum. Ábendingar: Erfið mígreniköst, þar sem ekki hefur náðst viðunandi árangur með öðrum lyfjum. Cluster (Hortons) höfuðverkur. Lyfið á einungis að nota, þegar greiningin mígreni eða Cluster-höfuðverkur er vel staðfest. Frábendingar: Kransæðasjúkdómur, alvarlegur háþrýstingur, blóðrásartruflanir í útlimum, nýrnabilun, lifrarbilun. Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Ekki má nota samtímis lyf, sem innihalda ergótamín. Sumatran má ekki gefa fyrr en 24 klst. eftir gjöf ergótamíns og ergótamín má ekki gefa fyrr en 6 klst. eftir gjöf Sumatran. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er vitað hvort lyfið geti skaðað fóstur, en dýratilraunir benda ekki til þess. Ekki er vitað hvort lyfið skilst út í móðurmjólk. Aukaverkanir: Allt að 50% sjúklinganna fá einhverjar aukaverkanir. Ýmis þessara óþæginda hverfa eftir 30-60 mínútur og gætu sum þeirra verið hluti af mígrenikastinu. Algengar (>1%): Þreyta, sljóleiki. Tímabundin blóðþrýstingshækkun og húðroði. Ógleði og uppköst. Máttleysi og spenna í vöðvum. Náladofi og hitatilflnning. Svimi. Þrýstingstilfinning með mismunandi staðsetningu, oftast fyrir brjósti. Sjaldgæfar (0.1%-1%): Hækkun lifrarenzýma í blóði. Milliverkanir: Ekki má notasamtímis lyf sem innihalda ergótamín. Engar sérstakar milliverkanir hafa fundist við própranólól, díhýdróergótamín, pízótífen eða alkóhól. Varúð: Vara ber sjúklinga við.stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins. Við notkun lyfsins geta komið fram tímabundin einkenni eins og brjóstverkur og þrýstingstilfinning, sem getur verið töluverð og leiðir stundum upp í háls. Þó þessi einkenni líkist hjartaöng, heyrir til undantekninga að þau séu af völdum samdráttar í kransæðum. Herpingur í kransæðum getur leitt til hjartsláttartruflana, blóðþurrðar og hjartavöðvadreps. Sjúklinga, sem verða fyrir slæmum eða langvarandi einkennum, sem líkjast hjartaöng, svo og þá sem hafa aukna áhættu á kransæðasjúkdómum, ber að rannsaka með tilliti til blóðþurrðar. Athugið: Stungulyfið má ekki gefa í æð vegna herpings í kransæðum og mikillar blóðþrýsingshækkunar, sem getur átt sér stað. Vegna takmarkaðrar klíniskrar reynslu er ekki mælt með notkun lyfsins handa sjúklingum eldri en 65 ára. Skammtastærðir handa fullorðnum: Lyfið á ekki að nota í fyrirbyggjandi augnamiði. Lyfið á að gefa við fyrstu merki um mígrenikast en getur verkað vel þó það sé gefið síðar. Sumatran er ekki ætlað til varnandi meðferðar. Töflur: Venjulegur upphafsskammtur er ein 100 mg tafla. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra töflu að minnst tveimur klst. liðnum og ekki er mælt með hærri sólarhringsskammti en 300 mg. í sumum tilvikum getur verið nægjanlegt að nota 50 mg töflur. Töflurnar á að gleypa heilar með vatni. Stungulyf: Venjulegur upphafsskammtur er 6 mg (ein sprauta) undir húð. Ef ekki fæst fullnægjandi árangur má gefa aðra sprautu (6 mg) innan 24 klst., en minnst ein klst. verður að líða á milli lyfjagjafa. Takmörkuð reynsla er af gjöf fleiri en fjögurra skammta (24 mg) á mánuði. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningarog verð: Töflur 50 mg: 12 stk. (þynnupakkað) Verð kr. 11.355 Töflur 100 mg: 6 stk. (þynnupakkað) Verð kr. 9.655 Stungulyf: Einnota dæla 0.5 mg (=6 mg virkt efni) x 2 + lyfjapenni (Glaxo Pen) Verð kr. 7.961 Afgreiðslutilhögun: R Greiðsluþátttaka: E Apríl 1998 /pEtttk,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.