Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 85

Læknablaðið - 15.12.1998, Page 85
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 983 hætti í grunni sem þessum. Stjórn Læknafélags Islands hefur fengið Dr. Ross And- erson, aðal ráðgjafa breska læknafélagsins í öryggis- málum heilsufarsgagna- banka, til ráðgjafar í máli þessu. Dr. Anderson telur, að dulkóðun, eins og sú sem kynnt hefur verið, sé allsendis ófullnægjandi. Gögnin í grunninum verði eftir sem áður persónu- greinanleg. 3. Aðeins sjúklingar eða for- ráðamenn þeirra geta leyst lækna undan þagnarskyldu. Læknir, sem sendir upplýs- ingar frá sér um samskipti sín og sjúklinga án leyfis viðkomandi, brýtur með því siðareglur lækna og 15. grein læknalaga nr. 53/1988 um þagnarskyldu. Að mati Stjórnar Siðfræðiráðs L.í. er upplýst samþykki sjúklings forsenda þess að hægt sé að setja á fót grunn sem þenn- an. Einnig þarf sjúklingur að geta dregið samþykki sitt til baka hvenær sem er og án þess að þurfa að gefa neinar skýringar á því. Lík- legt er að endurnýja þurfi slíkt upplýst samþykki með reglubundnum hætti. Setja þarf reglur til verndar þeim einstaklingum sem ekki geta vegna ástands síns gef- ið slíkt samþykki. Einnig þarf að vera til aðili sem verndar rétt barna og lát- inna. 4. í frumvarpinu er gert ráð fyrir sérstakri nefnd sem getur heimilað aðgang vís- indamanna þeirra stofnana, sem vinna upplýsingar í grunninn. Er henni einkum ætlað að meta hvort við- skiptahagsmunir rekstrar- leyfishafa skerðist við af- hendingu upplýsinga úr gagnagrunninum. Fulltrúi sérleyfishafa í slfkri nefnd hefur í raun neitunarvald yfir því að veita öðrum en sérleyfishafa upplýsingar. Sérleyfishafi einn hefur ákvörðunarvald um aðgengi allra annarra að grunninum og sölu upplýsinga úr hon- um. Siðfræðiráð telur ofan- greind ákvæði frumvarps- ins algerlega óviðunandi. 5. Allar vísindalegar rann- sóknir eru háðar leyfi Vís- indasiðanefndar. Stjórn Siðfræðiráðs telur óeðli- legt, að sérleyfishafi þurfi ekki að leita slíks samþykk- is við leit í grunninum eins og aðrir vísindamenn, eink- um í ljósi þess, að ekki er fyrirhugað að afla upplýsts samþykkis sjúklinga um flutning gagna inn í grunn- inn. í frumvarpinu eru við- skiptahagsmunir sérleyfis- hafa settir ofar hagsmunum einstaklingsins. 6. Furðu vekur, að hvergi er tekið tillit til samþykkta Evrópuráðsins um lífsið- fræði. í þeim er sjálfsfor- ræði sett í öndvegi og sér- staklega tekið fram að hagsmunir og velferð ein- staklingsins skuli vera fremri eiginhagsmunum samfélags og vísinda. Af þeim samþykktum leiðir að ekki má safna neinum upp- lýsingum nema viðkomandi fái um það ráðið og að alls ekki má nota lífsýni eða upplýsingar úr þeim, nema að fyrir liggi samþykki þess, sem sýnið er tekið úr. Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins 1. gr. I ljósi framangreindra at- hugasemda sem gerðar hafa verið er ljóst að miðlægur gagnagrunnur verður ekki með ópersónugreinanlegum heilsufarsupplýsingum. Um persónugreinanlegar heilsufarsupplýsingar gilda skýrar reglur og þeirra er ekki gætt í frumvarpinu. í stefnu heilbrigðisyfirvalda, sem mörkuð var 1997 til að tryggja varðveislu upplýsinga, er lögð áhersla á friðhelgi einkalífs- ins. í framhaldi af því segir: „Þeirri megin reglu verður fylgt að upplýsingar séu varð- veittar þar sem þær verða til. Ekki er áformað að setja upp miðlægan gagnabanka með persónutengdum upplýsing- um um heilsufarsmálefni". Hér var lögð áhersla á dreifða gagnagrunna og með því talið, að gagna væri betur gætt. Stjórn Siðfræðiráðs er sammála þessu sjónarmiði. 2. og 3. gr. Fram kemur í 2. gr. að frumvarpið taki ekki til líf- sýna. Unnt verður að sam- keyra upplýsingar um lífsýni, aðrar erfðafræðiupplýsingar og ættfræðiupplýsingar við gagnagrunn þennan. Yfirlýst- ar viðskiptahugmyndir gefa til kynna, að þetta sé fyrirhugað. Frekari umfjöllun um þetta er nauðsynleg, því mjög strangar reglur gilda um varðveislu og notkun lífsýna. Að þessu leyti er gagna- grunnurinn skilgreindur á mjög óljósan hátt. 4., 5. og 6. gr. Vakin er athygli á því að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.