Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1998, Side 90

Læknablaðið - 15.12.1998, Side 90
988 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 ég, úr því sem komið er, að ís- lenskir læknar eigi heimtingu á því að þeim sé vísað á þær fyrirætlanir, einkum þá þætti er varða öryggisþátt upplýs- inga í gagnagrunni. Það er þeim mun mikilvægara vegna þess að stjórn LI lýsir því yfir að ÍE hafi aldrei skýrt frá því að öryggisáætlun væri til. Ein- hverjir hafa annað hvort ekki heyrt eða skilið. Það er rétt að geta þess að RA tekur fram að hann láti IE njóta vafans í umfjöllun sinni. Það ber að þakka því annars er viðbúið að umsögn hans hefði orðið enn harkalegri en raun ber vitni. Það er vert að minna á að þótt frumvarpið verði sam- þykkt þá er enn eftir að semja reglugerðir, velja rekstrarleyf- ishafa og ráðuneytið á eftir að semja við hann. Það er minn skilningur að ef Tölvunefnd og Vísindasiðanefnd telja ekki sómasamlega frá hlutun- um gengið í því ferli þá verður ekki hægt að fara af stað. Komist málið yfir þá hindrun er enn eftir að semja við þá aðila sem nú eru með upplýs- ingar í vörslu sinni eða koma til með að breyta kerfum sín- um þannig að upplýsingar verði í framtíðinni færðar sjálfkrafa í gagnagrunninn að settum ákveðnum reglum. Ljóst er að þar munu læknar eiga stórt hlutverk bæði er varðar það að hafa upplýsing- arnar sem áreiðanlegastar en ekki síst að gæta réttinda sjúk- linga. Hér er rétt að minna á, að ekki er verið að tala um að inn í grunninn fari texti sjúkra- skrár heldur fyrirfram ákveðn- ar upplýsingar sem hægt er að færa á tölulegt form. I 1. gr. frumvarps um mið- lægan gagnagrunn á heil- brigðissviði er lýst því megin- markmiði að heimila gerð og starfrækslu miðlægs gagna- grunns með ópersónugreinan- legum heilsufarsupplýsingum. RA og vissulega fleiri hafa haldið því fram að þessi meg- inforsenda frumvarpsins stand- ist ekki og sé rétt að miða við afdráttarlausan mœlikvarða. Það felur í sér að heilsufars- upplýsingarnar skuli ætíð telj- ast persónugreinanlegar ef frœðilega er mögulegt að bera kennsl á einstaklinga, til dæmis með því að komast framhjá aðgangshindrunum og brjóta upp dulkóða. Breyti þar engu þótt persónugreining af þessu tagi útheimti aug- ljóslega ólögmætt atferli ger- andans. Til að renna stoðum undir fullyrðingar af þessu tagi hafa ýmsir andstæðingar gagnagrunnsins gripið til óljósra tilvísana til ýmissa laga og alþjóðasáttmála. Það er því mikilvægt að ekki ríki vafi um úrlausn á því álitaefni við hvaða kennimörk sé rétt að miða, þegar meta á hvort heilsufarsupplýsingar séu í raun ópersónugreinanlegar í skilningi laga. í ítarlegri álitsgerð Laga- stofnunar Háskóla Islands frá 21. október síðastliðnum kem- ur skýrt fram að rétt er að miða við sanngirnismœli- kvarða þjóðarréttar í þessu efni. Þar er hinum afdráttar- lausa mælikvarða RA hafnað. Sanngirnismælikvarðinn gerir ráð fyrir því að heilsufarsupp- lýsingar teljist ópersónugrein- anlegar þegar fengist hefur já- kvæð niðurstaða af heildar- mati á öryggisráðstöfunum sem beitt verður við starfrækslu gagnagrunnsins og öðrum þáttum sem máli skipta, sam- anber eftirfarandi tilvitnun á blaðsíðu 38 þar sem segir: „Við mat á því hvort upp- lýsingar í fyrirhuguðum miðlæguin gagnagrunni á heilbrigðissviði teljist óper- sónugreinanlegar verður að taka tillit til allra þeirra ráð- stafana í heild sem tryggja eiga persónuvernd, þ.e. dul- kóðunar upplýsinganna, að- gangshindrana, eftirlits op- inberra aðila með rekstri gagnagrunnsins, réttinum til þess að hafna þátttöku í gagnagrunninum, þagnar- skyldu þeirra sem koma að gerð og starfrækslu gagna- grunnsins og allra annarra ráðstafana sem gripið kann að verða til. Ef heildarmat á þessum ráðstöfnunum öll- um leiðir til þeirrar niður- stöðu að persónugreining gagnanna teljist ekki með sanngirni raunhæfur mögu- leiki án verulegrar fyrir- hafnar þá eru upplýsingarn- ar samkvæmt mælikvörð- um þjóðaréttar ópersónu- greinanlegar. Eins og frum- varpið er nú fram sett og að teknu tilliti til þeirra sjónar- miða sem að framan eru rakin um nánari útfærslu verklags og vinnuferla, telj- um við að þjóðaréttur standi því ekki í vegi að löggjafinn meti það svo að upplýsingar í gagnagrunn- inum teljist ópersónugrein- anlegar.“ í yfirlýsingu stjómar Lækna- félagsins kemur fram sú full- yrðing að fulltrúar IE, þeir Kári Stefánsson og Hákon Guðbjartsson, hafi viðurkennt að unnt yrði að rekja gögnin til nafntengdra einstaklinga. Sú fullyrðing tengist þessu sama túlkunaratriði, það er að segja hvenær gögn skuli telj- ast persónugreinanleg og er mikilvægt að læknar almennt geri upp við sig hvernig þeir,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.