Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Blaðsíða 17
Real Madrid komst í annað sæt-
ið í spænsku deildinni með því að
leggja UEFA meistarana í Sevilla 3-
2 á heimavelli í frábærum fótbolta-
leik sem bauð upp á allt sem góður
fótboltaleikur getur boðið. Spenna,
drama og mikið af umdeildum atvik-
um sem hægt er að ræða langt fram í
næstu viku.
Það voru gestirnir í Sevilla sem
náðu forustu með marki ítalans
Enzo Maresca með góðu skoti. Fa-
bio Capello setti Guti inná í stað Raúl
og fóru hjólin þá að snúast fyrir leik-
menn Real.
Hann sannaði ágæti sitt með því
að leggja upp þrjú mörk á 24. mínút-
um. Fyrst fyrir Ruud van Nistelrooy
svo fyrir Robinho og að lokum aftur
fyrir van Nistelrooy.
Brasilíumaðurinn Robinho fagn-
aði marki sínu með því að fara úr
treyjunni og fékk að líta sitt annað
gula spjald og þar með rautt. Luis Fa-
biano og Aitor Ocio leikmenn Sevilla
fóru sömu leið.
Javier Chevanton minnkaði svo
munin undir lokin en lengra kom-
ust gestirnir ekki og landaði því Real
þremur mikilvægum stigum.
Þeir eru nú tveimur stigum á eft-
ir Barcelona í öðru sæti deildarinn-
ar. Sevilla féll niður um eitt sæti í það
þriðja og eru með tveggja stiga for-
ustu á Valencia þegar fimm leikjum
er ólókið í Spánar sparki.
„Þessi úrslit gera okkur enn beitt-
ari að vinna titilinn,“ sagði yfirmaður
íþróttamála hjá Real Predrag Mija-
tovic. „Við erum að spila góðan fót-
bolta á þessu mikilvæga stigi deild-
arinnar og þó það verði ekki auðvelt
er ég viss um að við náum þessum
tveimur stigum af Barcelona.“
Barcelona fór til Sociedad og tók
þar á móti heimamönnum í Real.
Eiður Smári Guðjohnsen byrjaði á
varamannabekk Barca en kom inná
eftir að Andres Iniesta meiddist og
lék á miðjunni.
Iniesta og kamerúninn Samuel
Eto‘o skoruðu mörk Barcelona sem
fagnaði 2-0 sigri. Mark Eto´o var sér-
lega glæsilegt. Ronaldinho gaf þá
ótrúlega sendingu á Eto´o sem hlóp
af sér varnarmann og skoraði auð-
velt mark. Sociedad eru nú þrem-
ur stigum frá öruggu sæti í deild-
inni og virðist tíminn vera að hlaupa
frá þeim. Valencia heldur áfram að
narta í hælana á toppliðunum en
liðið lagði Deportivo La Coruna á
laugardag 2-1. Fyrrum leikmaður
Newcastle Hugo Viana skoraði fyrsta
mark leiksins en Sebastian Taborda
jafnaði fyrir heimamenn í Depor.
David Silva tryggði svo Valencia
sigurinn með snotru marki eftir góð-
an undirbúning frá Miguel Angulo.
Fallbaráttan harðnar enn
Í fallbaráttunni vann Levante 2-
0 sigur á botnliði Gimnastic. Cesar
Nevas kom Levante yfir á 28. mínútu
og Riga Mustapha bætti öðru marki
við skömmu fyrir leikhlé. Levante er
nú þremur stigum frá fallsvæðinu en
Gimnastic virðist dæmt til að falla.
Celta frá Vigo er enn í fallsæti en
liðið lagði Villareal 1-0. Jose Enrique
skoraði eina mark leiksins á 68. mín-
útu. Celta er með 30 stig, þremur
stigum á eftir Athletico Bilbao.
10 menn frá Espanyol unnu
sætan sigur á Atletico Madrid 2-1 á
ólimpíuvellinum í Barcelona. Moha
skoraði fyrsta markið á 10. mínutu en
þeir misstu Ito af velli þegar klukku-
tími var liðin. Walter Pandian skor-
aði annað mark heimamann þegar
stundarfjórðungur var eftir en Búlg-
arinn Martin Petrov minnkaði mun-
inn í uppbótartíma.
Getafé heldur enn í von um að
komast í Evrópukeppni en liðið lagði
Real Betis þökk sé mörkum Daniel
Guiza og Francisco Casquero.
Real Mallorca skoraði þrjú mörk á
móti Osasuna. Fernando Varela, Jon-
as Gutierrez og Bosko Jankovic skor-
uðu mörk heimamanna en Raul Gar-
cia minnkaði muninn.
Leikir Real Zaragoza - Racing
Santander og Recreativo - Athletic
Bilbao enduðu markalausir.
DV Sport mánudagur 7. maí 2007 17
Úrslit helgarinnar
spænska úrvalsdeildin
Bayer Leverkusen - Bielefeld 1 - 2
Wichniarek 19 Barbarez 30 Kamper 83
Hertha Berlin - Werder Bremen 1-4
Rosenberg 19, Rosenberg 50, Diego 59,
Gilberto 61 Rosenberg 82
M’gladbach - Bayern Munich 1-1
Makaay 12 Kluge 52
Frankfurt - Aachen 4-0
Huggel 3 Vasovski 30 Takahara 57
Kohler 80
Hamburg - Bochum 0-3
Gekas 60, Grote 66 Misimovic 80
Schalke - Nuremberg 1-0
Kuranyi 64
VfB Stuttgart - Mainz 2-0
Fernando Meira 26 Hilbert 65
Wolfsburg - Dortmund 0-2
0-1, Smolarek 13 0-2 Valdez 90
staðan
Lið L U J T M S
Schalke 32 20 5 7 51:29 65
Stuttgart 32 19 7 6 56:34 64
W.Bremen 32 19 6 7 73:38 63
Bayern M. 32 16 6 10 47:38 54
Nurnberg 32 10 15 7 40:30 45
Leverk. 32 13 6 13 49:46 45
Hannover 32 12 8 12 40:44 44
Bochum 32 12 6 14 45:47 42
Dortm. 32 11 8 13 38:41 41
Hertha 32 11 8 13 46:51 41
Cottbus 32 11 8 13 37:44 41
Hamb. 32 8 15 9 37:37 39
Bielef. 32 10 9 13 43:46 39
Frankf. 32 8 13 11 43:55 37
Wolfsb. 32 8 12 12 35:41 36
Aachen 32 9 6 17 44:64 33
Mainz 32 7 10 15 29:52 31
Gladba. 32 6 8 18 23:39 26
Monaco - Olympique Marseille 1-2
Jeremy Menez (12) Franck Ribery (45),
Mamadou Niang (84pen)
St Etienne - Lille 2-1
Matt Moussilou (30,61) Kevin Mirallas
(59)
Auxerre - Troyes 1-0
Ireneusz Jelen (82)
Nancy - Nice 3-0
Marc-Antoine Fortune (29), Benjamin
Gavanon (31pen), Kim (39)
Sedan - Lorient 3-1
Nicolas Marin (45+1), Stephane Noro
(75),Gregory Pujol (88) Nabil Taider (41)
Sochaux - Valenciennes 1-0
Anthony Le Tallec (88)
Le Mans -Nantes 1-1
Daisuke Matsui (27) Claudiu Keserue
(90+3)
Lens - Toulouse 2-0
Seydou Keita (84), Daniel Cousin (89pen)
Rennes - Bordeaux 0-0
Paris St Germain - Lyon 1-1
Edouard Cisse (47)Juninho Pernambu-
cano (90+4)
staða efstu liða
Lið L U J T M S
Lyon 35 22 9 4 58:25 75
Lens 35 15 11 9 47:35 56
Bordeaux 35 16 8 11 37:30 56
Marseille 35 16 7 12 48:36 55
Toulouse 36 15 8 13 41:41 53
Rennes 35 13 13 9 31:26 52
Sochaux 35 13 12 10 41:42 51
St.Etienne 35 14 7 14 51:46 49
Auxerre 35 11 15 9 35:37 48
Lille 35 12 10 13 41:39 46
Lorient 35 11 13 11 30:34 46
Nancy 35 12 10 13 31:38 46
Monaco 35 11 12 12 41:36 45
Le Mans 35 10 14 11 40:42 44
París SG 36 10 13 13 39:40 43
Valenci 35 10 9 16 33:44 39
Nice 35 8 14 13 30:37 38
Troyes 35 8 11 16 33:50 35
Sedan 35 7 13 15 44:54 34
Nantes 35 6 13 16 27:46 31
*Þrjár umferðir eru eftir og verður
Nantes að vinna alla leikina til að bjarga
sér frá falli.
Rangers komst í Meistaradeildina
Kris Boyd skoraði fyrsta mark
leiksins, sitt hundraðasta mark í
skosku deildinni, með góðu skoti
sem Artur Boruc réði ekki við. Charl-
ie Adam bætti öðru marki við þegar
hann þrumaði boltanum undir varn-
arvegg Celtic-manna úr aukaspyrnu.
Walter Smith tók við starfi sem stjóri
Rangers eftir að Paul Le Guen sagði
af sér og hefur Rangers ekki tapað
undir stjórn Smiths. Liðið hefur hlot-
ið 72 stig, en grannar þess og erkió-
vinir í Celtic eru fyrir löngu orðnir
meistarar. Aberdeen er í þriðja sæti
með 61 stig og mætir Hearts sem er
í fjórða sæti um UEFA-sæti.
„Ég hef fengið frábær viðbrögð frá
leikmönnum, starfsfólki og stjórn-
inni frá því að ég tók við,“ sagði Walt-
er Smith glaðbeittur eftir leikinn. „Við
höfum ekki tapað leik eftir að ég kom
inn, þannig að ef það hefði verið sag-
an allt tímabilið værum við kannski
ekki í öðru sæti. Markmið okkar er
að láta Celtic fá meiri keppni á næsta
ári. Okkar markmið sem við höfum
haft frá því að ég tók við var að ná
þessu öðru sæti sem gæfi rétt til að
spila í Meistaradeildinni,“ sagði hinn
geðþekki Smith í leikslok.
Kollegi hans hjá Celtic, Gordon
Strachan, sagði að Rangers hefði átt
sigurinn skilið. „Mér fannst Rang-
ers vera sterkari aðilinn allan leik-
inn. Það spilaði vel en við aftur á
móti hræðilega. Það eru leikmenn
sem ákveða hvernig þeir vilja senda
boltann og fara í tæklingar. Það eru
blendnar tilfinningar eftir þennan
leik, við erum vissulega meistarar
en við vorum ekki að spila eins og
meisturum sæmir í þessum leik.“
Sáttir með stuðninginn Leikmenn glasgow rangers þökkuðu að sjálfsögðu fyrir
sig enda hávaðinn á Ibrox með ólíkindum.
Glasgow-risarnir, Rangers og Celtic, mættust á laugardag:
eVertOn
Í eVrÓPU-
KePPni franska úrvalsdeildin
Real Madrid vann Sevilla með þremur mörkum gegn einu í toppslag Spánarsparks í gær.
Barcelona vann einnig sinn leik og því eru þessir fornu fjendur enn á ný að berjast hat-
ramri baráttu um spænska meistaratitilinn.
Annað markið Samuel Eto´o er hér við
það að skora síðara mark Barcelona gegn
real Sociedad
KlassÍsK barátta
real Og barca