Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2007, Qupperneq 23
Menning
Föst í vef
köngulóar-
innar Arakne
Nú stendur yfir sýning
Guðrúnar Öyahals í Hliðarsal
Gallerís Foldar við Rauðarár-
stíg. Listamaðurinn nefnir sýn-
inguna Arakne, sem er vísun í
gríska goðafræði, en þar segir
frá ungri konu með þessu nafni
sem þótti afar hæfileikaríkur
vefari. Hin herskáa gyðja Aþ-
ena breytti henni í könguló og
dæmdi hana og alla hennar af-
komendur til að hanga í þráðum
og vefa fullkominn vef um alla
eilífð.Þetta er níunda einkasýn-
ing Guðrúnar og að þessu sinni
sýnir hún teikningar unnar með
lími og blýi auk smáskúlptúra úr
postulíni og tvinna og bera verk-
in þess merki að listamaðurinn
hafi verið fangaður í vef köngu-
lóarinnar Arakne.
Myndlist fyrir fólk á ferð
Um helgina hófst einkasýning Þorvaldar Þorsteinssonar í Jónas Viðar
Gallery í Listagili Akureyrar. Á sýningunni eru stór prentverk sérstak-
lega unnin fyrir vegfarendur á hraðferð upp eða niður Gilið án þess að
þeir eigi á hættu að verða fyrir töfum á ferðum sínum.
tónlist
tónlist
DV Menning mánudagur 7. maí 2007 23
Sjötta hljóðversskífa Bjarkar Guðmundsdóttur kemur út í dag:
Volta er komin
Nýjasta afurð Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Volta, kemur út í dag – en hún
er sjötta hljóðversskífa hennar og
sú fyrsta í þrjú ár. Björk stýrði sjálf
upptökum á hljómplötunni en fékk
til liðs við sig
fjölmarga tón-
listarmenn,
eins og Antony Hegarty í Antony
and the Johnsons sem syngur með
henni í tveimur lögum, Timbaland
sem vann í töktum sem Björk samdi,
Mark Bell oftast kenndan við LFO
og trommuleikarana Chris Cors-
ano og Brian Chippendale. Chris er
tilraunakenndur spunatrommari
sem hefur meðal annars unnið með
Sonic Youth og Brian er meðlim-
ur rokksveitarinnar Lightning Bolt.
Björk fékk einnig til liðs við sig afr-
ísku tónlistarmennina Toumani Di-
abate frá Malí og Konono No. 1, sem
heldur tónleika á Listahátíð seinna í
þessum mánuði. Tíu kvenna íslensk
brasssveit spilar á plötunni sem og
hin kínverska Min Xiao-Fen. Björk er
nú á viðamiklu tónleikaferðalagi um
heiminn sem hófst með tónleikum í
Laugardalshöll í síðasta mánuði og
hefur til dæmis staðfest komu sína á
margar tónlistarhátíðir í sumar, eins
og Glastonbury, Werchter og Hró-
arskeldu. Volta hefur fengið frábæra
einkunn í erlendum tónlistartíma-
ritum. Fjóra af fimm mögulegum
í breska dagblaðinu The Guardi-
an sem og í tímaritunum Uncut og
Mojo. Platan fékk svo fullt hús, fimm
af fimm, í tímaritinu Attitude.
Skoska salsasveitin Salsa Celtica
hefur vakið athygli fyrir skemmti-
lega samsetta blöndu af ekta salsa,
skoskum hálandastefjum og kelt-
neskri þjóðlagahefð. Sveitin var
stofnuð árið 1995 og lék við mikl-
ar vinsældir á börum og klúbbum
í Edinborg og Glasgow fyrst um
sinn. Sveitin sendi frá sér plötuna
Monstruos y Demonios 1997 og
hélt í vel heppnaða tónleikaferð
um Skotland í kjölfarið. Salsa Celt-
ica fór að svo búnu til Kúbu þar sem
meðlimirnir drukku í sig salsaáhrif-
in í sjálfri vöggu salsatónlistarinn-
ar, Havana. Þegar heim var komið
gerði sveitin samning við skoska
útgáfufyrirtækið Greentrax og gaf
út tvær plötur í kjölfarið: The Great
Scottish Latin Adventure (2000) og
El Agua De La Vida (2003). Vin-
sældir hljómsveitarinnar jukust til
muna og El Agua De La Vida náði
fimmta sæti á evrópska vinsældar-
listanum yfir heimstónlist. Um það
leyti var platan gefin út í Bandaríkj-
unum og við tóku mikil tónleika-
ferðalög, sem raunar standa enn
því sveitin ferðast nú um allan heim
og er meðal annars bókuð í allt
sumar á hátíðir í Bretlandi, Þýska-
landi og Mexíkó svo dæmi séu tekin
– auk Íslands. Salsa Celtica gaf sjálf
út sína fjórðu plötu, El Camino, fyr-
ir ári síðan og er á fullu um þessar
mundir að kynna hana.
Hljómsveitin er væntanleg til
Íslands í næstu viku því hún leikur
á tónlistarhátíðinni Vorblóti sem
stendur frá 17. til 19. maí, en sveit-
in spilaði á þeirri hátíð í fyrra þegar
hún var haldin í fyrsta skipti. Toby
Shippey, trompetleikari og for-
sprakki sveitarinnar, segist hlakka
mikið til að koma til Íslands. „Ég
hef komið tvisvar sinnum áður til
Íslands, fyrra skiptið var í tengsl-
um við norræna kvikmyndahátíð
en svo spiluðum við á Vorblótinu í
fyrra og skemmtum okkur frábær-
lega - ég get hreinlega ekki beðið
eftir að koma aftur. En við ætlum
að nota tækifærið í þetta skiptið og
skoða okkur betur um,“ segir hann.
Toby hafði búið til alls kyns tón-
list, til dæmis hip-hop, þegar hann
heillaðist af latin-tónlist og setti
saman hljómsveit sem einbeitti sér
að salsa. „Þetta er bara svo ofboðs-
lega skemmtileg tónlist að maður
sogast bara inn og við urðum alltaf
meira og meira heillaðir – fórum til
Kúbu og tókum þetta bara alla leið.“
Eitt af einkennum Salsa Celtica er
hvernig hún blandar saman kelt-
neskri þjóðlagahefð og salsa, með
því að notast við þjóðleg hljóðfæri
og stef. „Það er mjög rík þjóðlaga-
hefð í Edinborg og á sínum tíma
voru margir tónlistarmenn að
gera tilraunir með að bræða sam-
an þjóðlega tónlist, til dæmis kelt-
neska og afríska. Við fórum þá leið
að blanda saman keltneskri tónlist
og salsa með hefðbundnum hljóð-
færum eins og fiðlum, banjói og
skoskum pípum.“ Slík blanda getur
verið viðkvæm og Toby viðurkenn-
ir að ekki sé sjálfsagt að hún gangi
upp í öllum tilfellum. „Nei, það er
alls ekki sjálfgefið að það komi gott
út úr slíkri blöndu, en þá skiptir
sköpum að starfa með frjóum og
hæfileikaríkum tónlistarmönnum
sem kunna til verka.“
Tónleikar Salsa Celtica verða
á NASA, föstudaginn 18. maí, en
nánar má lesa um tónleikana og
dagskrá Vorblóts á vefsíðunni vor-
blot.is.
Á börum Edinborgar varð til undarlegur bræðingur keltneskrar þjóðlagatónlistar og
suðræns salsa fyrir rúmum áratug. Toby Shippey, forsprakki Salsa Celtica,
segir það skipta sköpum að starfa með frjóum og hæfileikaríkum mönnum
þegar slíkar tónlistartilraunir eru gerðar.
Hýrnar um
hólma og sker
Árlegir vortónleikar kvenna-
kórsins Léttsveitar Reykjavíkur
verða haldnir í Bústaðakirkju
þriðjudaginn 8. maí og mið-
vikudaginn 9. maí, klukkan 20.
Gestur kórsins að þessu sinni er
Bergþór Pálsson einsöngvari en
á efnisskránni er að vanda fjöl-
breytt tónlist. Þar má finna lög
eftir Inga T. Lárusson, í tilefni
ferðar kórsins til Austurlands
seinna í mánuðinum, slagara frá
stríðsárunum og dægurlög frá
tímum blómabarna 7. áratugs
síðustu aldar. Stjórnandi Létt-
sveitarinnar er Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir en undirleik annast
þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir,
píanóleikari kórsins, og Tómas
R. Einarsson bassaleikari.
Hádegisverð-
arfyrirlestur
Hádegisfyrirlestur Sagnfræð-
ingafélags Íslands verður hald-
inn 8. maí kl. 12:05–12:55 í Þjóð-
minjasafninu. Fjallað verður
um miðlun
menningar-
arfs. Í frétta-
tilkynningu
segir að það
sé ekki verk-
efni stjórn-
málamanna eða embættis-
manna að gefa út fyrirmæli um
það hvernig beri að túlka menn-
ingararf Íslendinga þótt þeir
geti haft sínar skoðanir eins og
allir aðrir. Fyrst og fremst verð-
ur þessi túlkun til í fræðasam-
félaginu og meðal þjóðarinn-
ar sjálfrar. Túlkun og útlegging
menningararfsins er í sífelldri
breytingu og sköpun, þar sem
takast á hefð og endurskoðun,
gömul þekking og ný, fastheldni
og endurmat. Fyrirlesari er Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill.
Frábærir dómar Volta hefur
fengið mjög góða umfjöllun
í fjölmiðlum undanfarið.
Toby Shippey Forsprakki og trompetleik-
ari Salsa Celtica.
FRUMLEGT Keltasalsa