Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 9
DV Fréttir mánudagur 2. júlí 2007 9 Yfirvöld í Bretlandi búast við hryðjuverkaárás á hverri stundu. Í ávarpi til bresku þjóðarinnar á laug- ardagskvöldi bað Gordon Brown, forsætisráðherra þjóðina um að sýna lögreglunni og yfirvöldum skiln- ing og þolinmæði við vinnu þeirra við að hafa uppi á þeim hópi fólks sem staðið hefur fyrir tilraunum til hryðjuverka síðustu daga. Ávarp Gordon Brown var sjónvarpað eft- ir að alelda bíl var keyrt inn í flug- stöðvarbyggingu Glasgow flugvallar. Það atvik er talið tengt tveimur bíl- sprengjum sem fundust í London fyrir helgi. Brown sagði Breta ekki bugast þrátt fyrir ógnanir al-Kaida hryðjuverkasamtakanna en hann fullyrti í útvarpsviðtali í gær að sam- tökin tengdust þessum atvikum. Í gær hafði lögreglan handtekið fimm manns, þar af tvo menn sem keyrðu bifreiðinni inn í bygging- una. Annar þeirra var illa haldinn vegna brunasára. Innanríkisráðherra land- ins, Jacqui Smith sagði að ekkert myndi hindra Breta í að lifa sínu hefðbundna lífi. Ráðherrann mun taka hryðjuverkatilraunirnar upp á breska þinginu í dag. Á föstudag fundust tvær Benz- bifreiðar í námunda við nætur- klúbb í miðbæ London. Sprengju- búnaður og naglar fundust í báðum bifreiðunum. Í kjölfar at- viksins í Glasgow var flugvellinum lokað eftir en opnaður aftur í gær- dag. Viðbúnaður lögreglu í tengsl- um við minningartónleika um Dí- önu prinsessu í London í gær var aukinn til muna vegna hættunn- ar og tónleikagestir beðnir um að mæta snemma til að koma í veg fyrir tafir vegna leitar á öllum gestum. Hafa handtekið fimm manns grunaða um hryðjuverkatilraunir: Aukinnar óánægju gætir meðal blaðamanna í Frakklandi og leiðtoga stjórnarandstöðunnar með það tak sem Nicolas Sarkozy, forseti landsins hefur á fjölmiðlum landsins. Hafa þeir bent á að margir af yfirmönnum og eigendum helstu fjölmiðla landsins séu vinir forsetans og dæmi eru um að þeir hafi látið undirmenn sinn fara í kjölfar óþægilegrar umfjöllunar um hann. Þannig var ritstjóri vikublaðs- ins ParisMatch rekinn í fyrra fyrir að birta myndir af eiginkonu Sarkozy og elskhuga hennar. Eigandi blaðsins er sagður tala um forsetann sem bróður sinn samkvæmt frétt The Times. Ann- ar vinur hans rekur stærsta sjónvarps- fyrirtæki Frakklands, TF1. Nýlega var sjónvarpsfréttatími einnar stöðvar þess tekinn upp á skrifstofu forsetans. Þingmenn Jafnaðarmannaflokksins, stærsta stjórnarandstöðuflokksins hafa sagt þetta jafngilda því að stöðin tæki þátt í kosningabaráttu Sarkozy. Það þykir einnig til marks um ítök forsetans að fáir fjölmiðlar sögðu frá frammistöðu hans á blaðamanna- fundi í tengslum við fundarhöld G8- ríkjanna í byrjun júní. Í frétt belgískr- ar sjónvarpsstöðvar var því haldið fram að forsetinn hefði verið undir áhrifum áfengis á fundinum. Því hef- ur hann síðar neitað. Ákvörðun sjónvarpsstöðvarinnar TV5 að taka af dagskrá þátt þar sem fjallað var um stjórnmál á óhefð- bundinn hátt er líka sögð runnin undan rifjum forsetans. Dagblaðið Libération er sagt eina blaðið sem haldi úti gagnrýni á forsetann og hefur það meðal annars gert mikið úr áhrifum hans á fjölmiðla. Stærsti eigandi þess er samt sem áður einn af vinum Sarkozy. Forsetafrú í framboð Argentínski þingmaðurinn Christ- ina Fernandez sem jafnframt er eiginkona Nestor Kirchner forseta landsins hyggst bjóða sig fram í forsetakosningum í landinu í okt- óber næstkomandi. Þetta upplýsti talsmaður ríkisstjórnarinnar í gær en Christina verður frambjóð- andi stjórnarflokksins sem maður hennar hefur veitt forystu hingað til. Þessi tilkynning bindur enda á margra mánaða vangaveltur um hvort þeirra myndi bjóða sig fram en samkvæmt skoðanakönnunum eiga þau bæði góða möguleika á að vinna. Neitaði að lesa frétt um Hilton Fréttakona MSNBC sjónvarps- stöðvarinnar í Bandaríkjunum neitaði að lesa frétt um París Hilt- on fyrir helgi. Sagði hún sjónvarps- áhorfendum að hún hefði sjálf ekki valið þessa frétt sem helstu tíðindi dagsins og fannst það rangt val hjá yfirmanni sínum. Því næst reyndi hún að kveikja í blaðinu með texta fréttarinnar á. Þegar það gekk ekki gekk hún frá myndavélinni og í átt að pappírstætara. Myndbrot af þessu athæfi var eitt vinsælasta efnið á heimasíðu YouTube um helgina. Ísabella prinsessa Friðrik krónprins og Mary krón- prinsessa fóru óhefðbundna leið þegar þau skírðu dóttur sína Ísa- bellu í gær. Ekki er hefð fyrir nafn- inu í dönsku konungsfjölskyldunni en alla jafna fá meðlimir hennar nöfn sem verið hafa í fjölskyldunni í aldir. Prinsessan unga fékk þrjú aukanöfn sem öll voru eftir bókinni og heitir fullu nafni Ísabella Henrí- etta Ingrid Margrét. Hún verður þriðja í röðinni til að erfa krún- una á eftir föður sínum og bróður, Kristjáni Valdimari prins sem verð- ur tveggja ára í haust. borga brú yFir til ÞýskalaNds eiga að geta keyrt yfir brúna líkt á Eyrarsundsbrúnni. Eykur losun gróðurhúsalofttegunda Þýskir fjölmiðlar hafa ekki veitt viðræðum um brúarsmíðina eins mikla athygli og þeir dönsku enda hafa Danir sótt það mun fastar að verkefnið yrði sett á dagskrá. Ráðamenn í Slesvík-Holstein og Hamborg fögnuðu þó á föstu- dag og telja brúna verða vítamín- sprautu fyrir efnhagslíf svæðisins. Sama gildir um íbúa á Lálandi í Danmörku. Haft er eftir sænska viðskiptaráðherranum að brúin verði mikilvæg samgöngubót fyr- ir landa sína og til að mynda stytt- ist ferðatíminn milli Málmeyjar og Hamborgar um tvo tíma. Um- hverfisverndarsamtök í báðum löndum segja hins vegar föstu- daginn vera svartan dag enda muni sú aukna bílaumferð sem brúnni fylgir valda mun meiri út- blæstri á gróðurhúsalofttegund- um. Benda þau á að aðildarríki Evrópusambandsins hafa skuld- bundið sig til að draga úr losun koltvísýrings um fjórðung fram til ársins 2030 og erfitt sé að sjá að aukin bílaumferð auðveldi þeim að ná því marki. Bretar á varðbergi Vinir forseta Frakklands stjórna helstu fjölmiðlum landsins: blaðamenn vilja frelsi frá forseta Ferjursiglingar í dag eru tíðar ferjusiglingar á milli rødby í danmörku og Puttgarden í Þýskalandi en brúin mun liggja milli þessara tveggja staða. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands Þykir hafa tangarhald á helstu fjölmiðlum Frakklands í gegnum vini sína. Slökkviliðsmenn í Glasgow mikill viðbúnaður var á flugvellinum í glasgow á laugardag eftir að alelda bíll keyrði inn í flugstöðvarbygginguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.