Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Blaðsíða 27
Nú þegar árið er rúmlega hálfnað er ekki úr
vegi að líta um öxl og líta á bestu plötur ársins
samkvæmt erlendum vefmiðlum. Það sem af er
þessu ári hafa fjöldamargar hljómsveitir og tón-
listarmenn sent frá sér frumburði sína og eiga
aðdáendahóp sem stækkar ört, dag frá degi. Í
því samhengi nægir að nefna Klaxons, sænska
tekknó-meistarann The Field að ógleymdum hin-
um léttstígandi Mika sem gaf út sína fyrstu plötu
fyrr i vetur.
Sameinaður vettvangur
Á netinu má finna ógrynni af erlendum vefsíð-
um sem gagnrýna nýútkomnar plötur. Metacritic.
com er í raun sameinaður vettvangur þar sem ein-
kunnir eru teknar saman í gagnabanka og nýjum
plötum gefin einkunn sem er vegið meðaltal frá
um þrjátíu gagnrýnendum um víða veröld.
Samkvæmt vefsíðunni er besta plata ársins
það sem af er platan frá sænska plötusnúðnum
Axel Willner sem kallar sig The Field. Platan sem
kallast From Here We Go Sublime kom út þann
3. apríl síðastliðinn og er hún af mörgum talin
vera tímamótaverk á sviði elektrónískrar tónlistar,
ekki vegna þess að platan fer ótroðnar slóðir held-
ur er platan einföld og stílhrein og tekst Willner
óvenjulega vel til á plötunni. Á vefsíðu Metacrit-
ic fær platan 90 af 100 mögulegum en einkunnin
byggir á gagnrýni frá fjórtán öðrum virtum blöð-
um og vefsíðum. Til dæmist gaf Pitchforkmedia
plötunni níu í einkunn af tíu mögulegum.
Í öðru sætinu á eftir The Field á Metacritic
kemur tiltölulega ung hljómsveit sem kallast The
Battles. Sveitin gaf út sína aðra plötu fyrr á þessu
ári og kallast hún Mirrored. Tónlistin sem sveitin
spilar er sérstök og í raun erfitt að setja hana und-
ir einn ákveðinn hatt. Hún flöktir á milli stíla og
mætti helst líkja henni við hrærigraut sem inni-
heldur hráefni sem enginn vissi að væru til. Mir-
rored fær 87 hjá Metacritic.
Í þriðja sætinu kemur svo hljómsveit sem er
öllu þekktari en The Field og Battles en það er
kanadíska indírokk sveitin Arcade Fire, sem fylgdi
eftir hinum stórkostlega frumburði sínum Funer-
al, með plötunni Neon Bible. Platan sem kom út
þann 6. mars síðastliðinn hefur fengið einróma
lof gagnrýnenda og fær hún einkuninna 87 hjá
Metacritic, rétt eins og Mirrored platan, og 8,4 hjá
Pitchforkmedia.com sem þykir mjög gott á þeim
bænum. Á Metacritic síðunni getur hver sem er
gefið plötum einkunn. Alls hafa 502 gefið plötunni
einkunn og er hún með meðaleinkunnina 8,9 frá
almennum notendum.
Misjafnir dómar
Samkvæmt Amazon.com er bestu plötur árs-
ins hingað til plöturnar Writers Block með hinum
sænsku Peter Bjorn og John og Wincing the Night
Away með The Shins. Plöturnar deila efsta sæt-
inu saman en þær eru með einkuninna 9,6. Báðar
þessar sveitir hafa komið hingað til lands en Peter
Bjorn og John héldu tónleika fyrr á þessu ári og
The Shins spiluðu á Iceland Airwawes árið 2004.
Á eftir þessum plötum kemur svo platan Some
Loud Thunder með Clap Your Hands Say Yeah en
hún fær 9,4. Það vekur athygli að platan fær að-
eins 6,2 á Metacritic en plötur Peter Bjorn og John
og The Shins eru báðar með einkunn í kringum
átta á Metacritic. einar@dv.is
mánudagur 2. júlí 2007DV Bíó 27
á næstu mánuðum munu margir þekktir tónlistarmenn og
stórar hljómsveitir gefa út nýtt efni. margir hafa beðið með
mikilli eftirvæntingu eftir nýjustu afurðu The Chemical Brothers,
en síðast gáfu þeir út plötuna Push The Button árið 2005. Platan
fer í almenna sölu á morgun og ber hún nafnið We are The
night. Platan hefur fengið ágæta dóma og meðal annars fengið
fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá breska blaðinu The
guardian.
á morgun fer einnig í sölu nýjasta platan frá Velvet revolver
en hún ber heitið libertad. líkt og með margar aðrar plötur
þeirra félaga hefur platan nú þegar lekið á netið. í næstu viku
munu svo tvær hljómsveitir sem gert hafa garðinn frægan á
mismunandi tímum í rokksögunni koma með nýtt efni. Billy
Corgan og félagar í Smashing Pumpkins voru eitt stærsta nafnið
í rokkinu á tíunda áratug síðustu aldar. Þeir munu loksins gefa út
nýja plötu en síðasta plata þeirra kom út árið 2000, en það var
platan The machines of god. nú þegar hefur lagið Tarantula
fengið að hljóma á útvarpsstöðvum og ef afgangurinn af
plötunni er jafn góður og Tarantula þá geta aðdáendur
sveitarinnar verið sáttir við sína menn.
Önnur hljómsveit sem verið hefur að gera það gott á
undanförnum árum er hljómsveitin Interpol. Þetta verður þriðja
plata þeirra félaga en árið 2004 kom platan antics út og árið
2002 gáfu þeir út plötuna Turn On The Bright lights. Báðar
fengu plöturnar mikið lof frá gagnrýnendum og er því pressan á
þá félaga mikil að fylgja plötunum eftir. Seinna í sumar munu
mörg þekkt nöfn koma með nýtt efni og nægir í því samhengi
að nefna Korn, Editors og Sum 41. auk þess ríkir mikil eftirvænt-
ing eftir nýjustu plötu 50 cent en hún kemur út þann fjórða sept-
ember næstkomandi og mun hún bera nafnið Curtis. í lok ágúst
mun svo Kanye West gefa út plötuna graduation en kappinn gaf
síðast út plötuna late registration árið 2005. einar@dv.is
LENGI LIFIR Í
GÖMLUM GLÆÐUM
Margar hljómsveitir
eru á leið með nýtt
efni á næstunni:
Á Netinu eru til margar erlendar vefsíður sem sérhæfa sig í gagnrýni á nýútkomna
tónlist. Vefsíðan Metacritic.com er ein þeirra og samkvæmt þeirra einkunnagjöf á
sænski plötusnúðurinn Axel Willmer sem kallar sig The Field, plötu ársins. Rétt á
eftir honum kemur hljómsveitin Battles með plötuna Mirrored og Arcade Fire með
plötuna Neon Bible:
BESTU
ERLENDU
PLÖTUR
ÁRSINS
2007
Peter Bjorn og Jon
plata þeirra þykir sú
besta það sem af er
ári samkvæmt
amazon.com.
Battles eru með eina af plötum ársins samkvæmt metacritic.
Arcade Fire Sviðsframkoma
sveitarinnar þykir mjög
flott. Þeir hafa fengið
frábæra dóma fyrir nýjustu
plötu sína neon Bible.
Missti af
barnæskunni
að vera frægur er sko enginn barnaleik-
ur. Söngkonan lily allen er aðeins 22 ára
gömul en í nýlegu viðtali við daily
Express, segir allen að hún sé jafnvel
farin að búa sig undir það að hætta í
tónlistinni. allen segir ástæðuna vera þá
að hún hafi misst af barnæskunni. „Ég
ætla að reyna vera harðdugleg á næstu
árum og reyna að þéna eins mikið og ég
get. Þegar ég verð orðin 30 ára gömul
ætla ég að vera búin að safna nógu
miklum peningum til að geta hætt. Þá
fyrst get ég farið að njóta barnæskunar,“
segir lilly.
Carrey bætir
við sig hlut-
verkum
Fagtímaritið Variety greindi frá því fyrir
helgi að leikarinn jim Carrey hefði í
hyggju að framleiða og leika í kvikmynd-
inni Sober Buddies. Kvikmyndin fjallar
um drykkfelldan forstjóra sem fær
sérstakan fylgdarmann með sér í
viðskiptaferð til las Vegas, til þess eins
að halda sér edrú. allt fer þá út um þúfur
þegar fylgdarmaðurinn, sem leikin er af
Carrey dettur í það. Carrey hefur úr
mörgu að velja um þessar myndir;
hlutverk í mynd Tim Burtons, ripley‘s
Believe it or not og gamanmyndina I
love You Philip morris og me Time.
Bara ein Bond
mynd í viðbót
Breski leikarinn daniel Craig segist ekki
ætla að leika í meira en einni Bond mynd
til viðbótar. Segist leikarinn hafa meiri
áhuga á því að leika í fjölbreyttari
hlutverkum. „Ég vil ekki bara leika í
njósnaramyndum og svo leik ég ekki í
myndum, bara vegna þess að launin eru
góð,“ segir Craig. Craig sló í gegn sem
siðvandi njósnarinn og mun næsta Bond
mynd, sem fengið hefur nafnið Bond 22
verða frumsýnd í nóvember 2008. Það er
leikstjórinn marc Forster sem leikstýrir
henni, en áður hefur hann gert myndir á
borð við monsters Ball og Finding
neverland.