Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Blaðsíða 21
DV Sport mánudagur 2. júlí 2007 21
ÍÞRÓTTAMOLAR
Kvennalandslið valið
guðríður guðjónsdóttir landsliðs-
þjálfari u-17 ára landsliðs kvenna
hefur valið fjórtán
manna hóp sem
mun taka þátt í
Ólymíuleikum
Æskunnar. Þeir
fara fram í
Belgrad í Serbíu
21.-28. júlí næstkomandi. Hópurinn
er skipaður eftirfarandi leikmönnum:
aðalheiður Hreinsdóttir Stjarnan,
arna Valgerður Erlingsdóttir akureyri,
Elín Helga jónsdóttir Fylkir, Emma H.
Sardarsdóttir akureyri, Esther Viktoría
ragnarsdóttir Stjarnan, Hanna rut
Sigurjónsdóttir Fylkir, Heiða
Ingólfsdóttir íBV, Karen Knútsdóttir
Fram, nataly Valencia Fylkir, rut
jónsdóttir HK, Sandra Sif Sigurjóns-
dóttir Haukar, Stella Sigurðardóttir
Fram, Sunneva Einarsdóttir Fram,
Þorgerður atladóttir Stjarnan.
Helga framlengir við HauKa
Helga Torfadóttir markvörður
bikarmeistara Hauka í handbolta
hefur framlengt
samning við sinn
við félagið. Helga
sem leikið hefur
með Haukum frá
árinu 2004 hefur
verið lykilmaður í
afar sigursælu liði
Hauka allt frá því
hún gekk til liðs
við félagið.
Haukar hafa einnig samið við Hind
Hannesdóttur sem er 25 ára gömul
hefur leikið með Stjörnunni
undanfarin ár. Hún getur leikið í
stöðu leikstjórnanda og skyttu. Það
er því ljóst að fórráðamenn Hauka
ætla sér stóra hluti en liðið hafnaði í
fjórða sæti deildarinnar sem er
slakasti árangur Hauka á íslandsmóti
síðan árið 2000.
Kona í nefnd Hjá uefa
í fyrsta skipti í sögu KSí var kona frá KSí
skipuð í nefnd á vegum Knattspyrnu-
sambands Evrópu
á dögunum. Það
var guðrún Inga
Sívertsen, gjaldkeri
KSí, sem var skipuð
í nefnd um
kvennaknatt-
spyrnu. aðrir frá
KSí í nefndum á
vegum uEFa eru
geir Þorsteinsson
sem er einn varaformanna í leikvanga-
og öryggisnefnd, lúðvík georgsson er í
leyfisnefnd og loks er Þórir Hákonarson,
framkvæmdastjóri KSí, í fjölmiðlanefnd.
KSí leggur mikla áherslu á að vera virkt í
starfi uEFa og er þessi nefndarskipan
viðurkenning á því starfi.
„gott að Henry sé farinn“
didier drogba, leikmaður Chelsea, er
ánægður með að arsenal skuli hafa selt
Thiery Henry því
nú mundi arsenal
missa af lestinni í
barátunni um
sigur í ensku
úrvalsdeildinni.
„Það er gott fyrir
okkur að Thiery
Henry sé farinn frá
arsenal því það
þýðir að við hjá
Chelsea höfum einum keppinaut færra í
barátt-unni,“ segir drogba. “arsenal eiga
eftir að vera í vandræðum með að fylla
skarð Henry. Ég held því að við þessar
breytingar muni Chelsea og united
vera í baráttu um Englandsmeistatitil-
inn,“ bætti drogba við.
Klinsman Hafnaði CHelsea
jürgen Klinsmann hefur sagt frá því að
hann hafi í sumar fengið tilboð frá
Chelsea að taka
við liðinu. „Ég
áttaði mig á því að
ég yrði að flytja til
Evrópu ef ég
ætlaði að taka við
starfinu. Það er
kannski ekki
vandamál fyrir mig
en slæmt fyrir
fjölskyæduna,“
sagði Klinsman í viðtali við Sunday
mirror.
„Ég vil ekki leggja það á fjölskydu mína
að setja á þau þá pressu sem fylgir því
að stýra Chelsea. Ég vil að börnin mín
alist upp í umhverfi þar sem þau eru
látin vera og nafn mitt ásækir þau ekki,“
sagði Klinsman.
Venesúela vann sinn fyrsta sigur í fjörutíu ár í Suður-Ameríkukeppninni:
Frábær byrjun á Suður-Ameríkukeppninni
Suður-Ameríkukeppnin í knatt-
spyrnu sem fram fer í Venesúela hef-
ur farið fjörlega af stað. Keppnin er
sannkölluð veisla fyrir áhorfendur
því í henni er varnarleikur látinn sitja
á hakanum. Í fyrstu umferðinni voru
skoruð 24 mörk í sex leikjum, sem
gerir fjögur mörk að meðaltali í leik.
Argentínumenn eru taldir sig-
urstranglegir og þeir stóðu und-
ir væntingum í fyrsta leik sínum,
gegn Bandaríkjunum. Þar var Hern-
an Crespo, framherji Inter Milan, á
skotskónum og skoraði tvö mörk í 4-
1 sigri.
Roque Santa Cruz er þó marka-
hæsti leikmaður keppninnar en
hann skoraði þrennu í fyrsta leik
Paragvæ þegar liðið vann Kólumb-
íu 5-0. Santa Cruz hefur látið hafa
eftir sér að hann vilji fara frá Bay-
ern München og byrjun hans í Suð-
ur-Ameríkukeppninni hefur án efa
hækkað verðmiðann á kauða.
Á laugardaginn hófst önnur um-
ferð riðlakeppninnar. Úrúgvæ vann
1-0 sigur á Bólivíu og heimamenn í
Venesúela unnu Perúmenn 2-0 í æsi-
legum leik þar sem tveir leikmenn
fengu að líta rauða spjaldið. Pedro
Garcia, leikmaður Perú, var fyrsti
leikmaðurinn til að fá rautt spjald í
keppninni þegar hann gaf Giancarlo
Maldonado olbogaskot í andlitið.
Sigurinn Venesúela var fyrsti sig-
ur þjóðarinnar í Suður-Ameríku-
keppninni í fjörutíu ár. „Þessi úrslit
eru söguleg,“ sagði Richard Paez,
þjálfari Venesúela, og hitti naglann
á höfuðið.
Í kvöld eru tveir leikir á dagskrá.
Argentínumenn taka á móti Kólumb-
íu en byrjun þessara liða var eins ólík
og hugsast getur. Hinn leikur dags-
ins er leikur Bandaríkjanna og Para-
gvæ en öll þessi lið eru í C-riðli. Lík-
legt verður að teljast að Argentína
og Paragvæ hrósi sigri í kvöld en þó
er ómögulegt að spá í úrslit í þessari
mögnuðu keppni. dagur@dv.is
Þrenna í fyrsta leik roque Santa Cruz, leikmaður Paragvæ og Bayern münchen,
skoraði þrennu í fyrsta leik Paragvæja í keppninni þegar þeir unnu Kólumbíu 5-0.
Brasilímenn sigruðu Chile í ágæt-
um leik í Suður-Ameríkukeppninni.
Leikar enduðu þrjú - núll og var kant-
maðurinn knái Robinho hetja liðs-
ins en hann skoraði þrennu í leikn-
um. Með sigrinum komust Brassar í
þrjú stig í riðlinum og þurfa á sigri að
halda í lokaleiknum til þess að kom-
ast áfram.
Brasilíumenn spila í keppninni
með hálfgert varalið þar sem þeir
voru án leikmanna á borð við Kaka,
Ronaldinho og Ronaldo svo ein-
hverjir séu nefndir.
Fyrri hálfleikur var bragðdaufur.
Brasilíumenn voru meira með bolt-
ann til þess að byrja með, án þess
að ógna markinu verulega. Ander-
son hinn nýji leikmaður Manchester
United spilaði með Brasilíumönnum
án þess þó að sýna nokkurn tímann
hvers vegna enska liðið borgaði 17
milljónir punda fyrir krafta hans.
Hann var tekinn af leikvelli í hálfleik.
Helst var lífsmark með kant-
manninum Robinho sem skildi
varnarmenn Chile-liðsins nokkrum
sinnum eftir á hælunum eftir að hafa
dansað með knöttinn framhjá þeim.
Fyrsta alvöru færi leiksins leiddi
jafnframt til fyrsta marksins. Ro-
binho sendi fyrir markið en boltinn
breytti um stefnu af varnarmanni.
Þaðan fór knötturinn að nærstöng
þar sem aðvífandi kom Wagner Löve
leikmaður CSKA Moskva. Honum
var hins vegar brugðið innan teigs af
varnarmanni Chile þegar hann gerði
sig líklegan til að setja boltann í net-
ið. Chilemenn mótmæltu en Robin-
ho var alveg sama um það og skor-
aði örugglega úr vítaspyrnunni sem
dæmd var.
Í síðari hálfleik sóttu Chilemenn í
sig veðrið og voru oft nálægt því að
jafna leikinn. Sérstaklega var Humb-
erto Suazo sóknarmaður Chile-liðs-
ins skeinuhættur. Besta færið fékk
hann þegar hann komst einn í gegn
eftir að hafa sólað hálfa vörn Brasil-
íumanna og þar á meðal markvörð-
inn Doni. Skot hans var hins vegar
slakt og varnarmennirnir náðu að
verja á línu.
Brasilíumenn gerðu út um leik-
inn um sjö mínútum fyrir leikslok
þegar maður leiksins Robinho skor-
aði fallegt mark eftir laglega sókn.
Löwe sendi knöttinn á Robinho sem
lyfti knettinum snyrtilega yfir Clau-
dio Andrés Bravo markvörð.
Robinho kórónaði svo frábæra
frammistöðu sína með glæsilegu
þriðja marki. Hann sólaði tvo varn-
armenn Chile áður en hann skaut
góðu skoti neðst í hornið. Sannar-
lega vel gert hjá þessum hæfileika-
ríka kantmanni.
Með sigrinum settu Brasilíu-
menn sig í aðstöðu til þess að gera
góða hluti á mótinu eftir vonbrigði
í fyrsta leiknum gegn Mexíkó sem
þeir töpuðu tvö - núll. Brasilíumenn
þurfa nú sigur á móti Ekvador til
þess að komast áfram upp úr riðl-
inum.
Úrslit leiksins gáfu ekki endi-
lega rétta mynd af leiknum þar sem
Chilemenn voru nokkrum sinnum
nálægt því að jafna metinn í stöð-
unni eitt - núll. Næsti leikur þeirra
er gegn Mexíkó og nokkuð ljóst að
þeirra bíður erfitt verkefni ef þeir
ætla sér áfram upp úr riðlinum í 16-
liða úrslitin. vidar@dv.is
Hulk og bróðir hans Þeir félagarnir
hafa aðeins bætt á sig i sumarfríinu.
Brasilíumenn komu sér í ágæta stöðu fyrir lokaleik riðilsins með þrjú-núll
sigri liðsins á Chile. robinho átti frábæran leik og skoraði þrennu.
ROBINHO SÝNDI
SNILLDARTAKTA frábær í leiknum robinho var munurinn á liðunum og skoraði þrennu fyrir þá gulklæddu.