Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 10
Hvort sem fólk gerir sér grein fyrir því eða ekki, ætti að vera auðsætt að við búum í heimi sem er ekki lengur til. Hinn æskilegi brást eða við misstum hann út úr höndunum fyrir sakir flónsku eða einfeldni. Hvorugt er afsökun og refsingin lendir óhjákvæmi- lega í lokin á almenningi sem nýtur ekki sömu að- stöðu og stjórnmálamenn. Til dæmis Tony Blair sem hóf siðferðisstríð með sínum líkum, Bush og Aznar, en þegar það ekki bara tapaðist með manndrápum heldur eyddi velsæld heimsins var hann valinn af nýjum jafningjum til að þvo burt sökina og leysa eitt- hvað óleysanlegt. Þrímenningastríðið batt endahnút á heim fyrri tíð- ar. Nú er til lítils að koma eins og siðavandur Breti sem leggur undir sig lönd og gerir þau að nýlendum und- ir kjörorðinu: Lög og regla. Hið breska boðorð hefur alltaf skapað ólög og óreglu. Á flestum stöðum sigla stjórnmálamenn reyndar eins undir fölsku flaggi og boða það sem þeir brjóta um leið og fólk veitir þeim völdin í kosningum. Þetta gildir um konur og karla. Einræðisherrar eru ekki lengur til vegna lýðræðis í orði en sama flónskan og áður hjá almenningi fær- ir hliðstæður þeirra á valdastóla. Sem dæmi er Ingi- björg Sólrún. Hún hafði varla sest hjá Birni Bjarnasyni þegar hún breyttist í málpípu þess sem hún blístraði á hálfum mánuði áður en þeytir nú sameiginlega her- lúðra. Að hennar mati þarf auknar dýrar varnir sem þjóðin þarf að borga. En umhyggjan er ekki fyrir land- inu heldur er ástæðan sú að félög líkt og Alcoa heimta tryggingu gegn hryðjuverkum. Erlend auðfyrirtæki stjórna orðið, ekki Alþingi. Á vegum þess snýst allt í höndum þingmanna sem missa ekkert beinlínis út úr höndunum eins og almenningur. Í starfi þeirra ríkir samhjálp þegar á hólm glötunarinnar er komið. Þeir velta ekki fremur en Tony Blair niður brekkuna ofan í gröfina heldur færast þeir um set, til dæmis í emb- ætti sendiherra. Það sorglega við störf þeirra er það að þeir hafa fært okkur ógn og hnignun. Íslendingar vita varla lengur hvort þeir eru af nokkru þjóðerni eða hvaða tungu þeir tala í landi sínu. Útlendingar vinna illa launuðu skítastörfin á meðan þeir liggja úrkynj- aðir í eitulyfjum og krefjast aukinnar hjálpar. Ekki má einu sinni nota yfir þannig fólk orðið ræflar. Það sær- ir viðkvæmar sálir. Í staðinn kemur tegundarheitið „þjónustuþegar“. Steingrímur J. Sigfússon upplýsir í blaðaviðtali að hann hafi boðið Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að verða forsætisráðherra mynduðu flokkar þeirra ríkisstjórn að loknum kosningum. Ingibjörg Sólrún þáði ekki boðið og það lýsir viljastyrk hennar og meiri metnaði fyrir Sam- fylkinguna en hana sjálfa. Það hefði verið fráleitt að gangast inn á slíkt fáum dögum fyrir kosningar. Allt benti til að ekki yrði hægt að mynda ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar nema með aðkomu Framsóknarflokksins. Framsóknarflokkurinn varð að fá frí frá völdum. Aðkoma þess flokks var komin á endastöð og það var hárrétt metið hjá Ingibjörgu Sólrúnu að ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokks yrði ekki mynd- uð, nema þá aðeins að farið yrði í vondar reddingar með Framsóknar- flokki. Það hefði aldrei gengið. Hugmynd Steingríms um að Framsókn myndi verja minnihluta- stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna falli var afleit. Framsókn varð að fá frí og hefur blessunarlega fengið það. Öll viðbrögð Guðna Ágústs- sonar, núverandi formanns Fram- sóknarflokksins, eru bestu sann- anir þess hversu grátt flokkurinn var leikinn og hversu brýnt var að hann hvíldi og að enginn ætti neitt undir hans vilja. Það er ekkert að því að Steingrímur hafi viljað reyna allt til komast í ríkisstjórn. Sumt að því sem hann reyndi, og hann hefur nú sagt frá, kom aldrei til greina. Kannski í huga stjórn- málamanna og kannski hefðu þeir í blindum eigin metnaði getað kom- ið þannig stjórn að. Þjóðin vildi það ekki og það sást skýrt á niðurstöð- um kosninganna. Sem betur var slík tilraun ekki gerð. Steingrímur er dæmdur í stjórnarandstöðu að sinni og hann verður að sætta sig við að aðeins voru tveir möguleikar í stöðunni. Núverandi ríkisstjórn eða rík- isstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Valið var Sjálfstæðisflokks- ins. Flóknara var það ekki. Steingrímur játar að í eigin flokki sé innibyrgð óánægja vegna hversu slælega hann og aðrir í forystu flokksins gagnrýndu Samfylkinguna. Vel má vera að það sé rétt. Hitt er líka vitað að meðal flokksfélaga Stein- gríms er mikil gagnrýni á Framsóknarflokkinn og enginn vilji til að starfa með þeim flokki. Þess vegna er óvíst að flokksfélagar Steingríms hefðu samþykkt veika stjórn þar sem Framsókn hefði eftir sem áður möguleika á að gæla við sig og sína. Ekki björt mynd það. Framsóknarflokkurinn getur ekki annað en leitað jafnvægis með eigin geð. Í flokknum eru eflaust margir félagar sem hafa pólitískar hugsjónir. Um leið og þær verða ofan á getur ekki annað gerst en að flokkurinn eflist. Þangað til er hann ekki stjórntækur. Það vissi Ingi- björg Sólrún og það vissi Steingrímur J. Sigfússon þó svo hann hafi um tíma gengið um í þoku afneitunar. Sigurjón M. Egilsson. mánudagur 2. júlí 200710 Umræða DV Gott hjá Ingibjörgu Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta fréttaskot mánaðarins. 512 7070 frettaskot@dv.is Það vissi Ingibjörg Sól- rún og það vissi Stein- grímur J. Sigfússon þó svo hann hafi um tíma gengið um í þoku afneit- unar. GuðberGur berGsson rithöfundur skrifar „Þrímenningastríðið batt endahnút á heim fyrri tíðar.“ ÚtGáfufélaG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjórI: Hjálmar Blöndal rItStjórI oG áByrGðarmaður: Sigurjón m. Egilsson fulltrÚI rItStjóra: janus Sigurjónsson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. fréttaStjórI: Brynjólfur Þór Guðmundsson aðStoðarrItjórI: Sigríður Dögg auðunsdóttir auGlýSInGaStjórI: auður Húnfjörð Í horfnum heimi einsömul í settinu Einhverjir hafa eflaust tekið eftir því að aðeins einn sá um frétta- lestur í kvöld- fréttatíma Stöðvar 2 á laugardags- kvöld. Ekkert væri athugavert við það fyrir- komulag nema að venjan er allt önnur. Áhorfendur hafa átt því að venjast að einn kvenlesari og einn karl- lesari sjái um lestur kvöldfrétta og urðu því margir hissa þeg- ar Sólveig Bergmann birtist ein í fréttasettinu á laugardagskvöldi. Einhverjum gæti hafa dottið í hug að niðurskurður sé hafinn eftir orðróm þess efnis að til standi að leggja niður fréttastofu Stöðvar 2 eða gera á henni miklar breyting- ar. Sumarleyfi lesara á víst að vera ástæðan fyrir breytingunni, mörg- um hefur þó eflaust fundist tilval- ið að gera það ekki svo skömmu eftir umtalið um endalok frétta- stofunnar, sérstaklega þar sem ekki hefur verið gripið til svipaðra ráðstafana áður vegna sumar- leyfa, alla vega ekki nýlega. Trúnaðurinn Viðtal Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna í Frétta- blaðinu í gær vakti nokkra at- hygli, sérstak- lega þá um- mæli hans um trúnaðarsamtöl hans og Ingi- bjargar Sólrún- ar Gísladóttur, formanns Sam- fylkingarinnar, í kringum síðustu kosningar. Guðmundur Magn- ússon veltir fyrir sér á bloggi sínu hvort sá tími sé liðinn þegar fólk beið spennt eftir endurminningum og þar með uppljóstrunum stjórn- málamanna. „Nú virðist orðin svo brýn þörf að kjafta frá öllu sam- tímis að svo að segja ekkert er eftir fyrir æviminningarnar.“ Líkir á toppnum Einhverju sinni þótti enginn miðill góður nema hann lumaði á minnst einum topp tíu lista. Eða í versta falli topp 5 lista. Þetta virðist fyrr- um blaðamaðurinn Símon Birgis- son vita því hann raðar upp bestu pistlahöfundum landsins í færslu á bloggsíðu sinni. Efstur trjónar Jónas Kristj- ánsson, fyrr- um yfirmaður Símons á DV, og næstur annar fyrrum DV-rit- stjóri Illugi Jök- ulsson. Aðrir á listanum eru Þráinn Bertels- son, Guðmundur Steingrímsson og Össur Skarphéðinsson. Vinsælasta stjórnin Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er fádæma vinsæl, og raunar vinsældirnar með eindæm- um. Engin stjórn hefur notið jafn mikils fylgis síðan mæl- ingar hófust. Svo er spurn- ing hversu vel ríkisstjórnin spilar úr þess- um vinsældum sínum. Þannig er skemmst að minnast þess að George W. Bush mældist vinsælli en nokkur annar forseti Bandaríkjanna eftir hryðju- verkaárásirnar 11. september 2001 en mælist nú sá óvinsælasti. Sandkorn Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.