Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 11
DV Sport mánudagur 2. júlí 2007 11 Sport Mánudagur 2. júlí 2007 sport@dv.is 90 keppendur kepptu í götukörfubolta Råikkönen í fimmta gír í Frakklandi Um þrjú þúsUnd manns sóttU Vestmannaeyjar heim VeGna shell-mótsins. bls. 14-15. Handboltamaðurinn Kristinn Björgúlfsson sem leikið hefur með Runar í Noregi hefur skrifað und- ir eins árs samning við gríska liðið Paok. Hann heldur utan í lok júlí en mótið þar hefst um miðjan septemb- er. Kristinn er uppalinn ÍRingur en lék með Gróttu/KR áður en hann hélt út til Noregs sumarið 2005. Þar lék hann með Runar sem tryggði sér í vetur rétt til að leika í efstu deild á næstu leik- tíð. Paok, liðið sem Kristinn geng- ur í, er staðsett í norður Grikklandi, nánar tiltekið í borginni Thessalon- iki en þar búa um ein og hálf milljón manna. Forráðamenn félagsins ætla sér stóra hluti næsta vetur en liðið lenti í fimmta sæti grísku deildarinn- ar í vetur. Kristinn segir að þetta verði ábyggi- lega mikið ævintýri fyrir sig að fara til Grikklands og að breytingin verði mikil frá Noregi og norska boltanum. „Paok eru sterkir í fótbolta og körfu- bolta og nú er ætlunin að vinna allt sem í boði er í handboltanum. Þetta er mjög spennandi dæmi fyrir mig og mikið ævintýri. Það hefur enginn Íslendingur leikið í Grikklandi áður sem gerir þetta enn meira spennandi. Það verður auk þess töluverð breyt- ing að fara úr 20 stiga frosti í Noregi 20 stiga hita í Grikklandi. Ég hef æft með ÍR í sumar en núna þarf ég að fara í það að flytja allt mitt drasl frá Íslandi og Noregi til Grikklands. Þangað verð ég að vera kominn 28. júlí til að hefja æfingar,“ sagði Kristinn. Kristinn Björgúlfsson, hjá Runar í Noregi, ákvað að flytja sig til Grikklands: Kristinn til Paok Hátíð í Bæ Á vit ævintýranna Kristinn Björgúlfsson heldur til grikklands á næsta tímabili.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.