Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Side 12
mánudagur 2. júlí 200712 Sport DV HÁTÍÐ Í BORG Mix mótið í götukörfubolta fór fram í blíðskaparveðri við Miklatún í gær. 36 lið skráðu sig til leiks og þurfti að spila 98 leiki til að krýna sigurvegara. „Stefnum að því að gera þetta stærra með hverju ár- inu,“ segir Sverrir Bergman einn af skipuleggjendum mótsins. Mótið hófst upp úr klukkan 11 í gær- morgun og voru 36 lið sem mættu til leiks. Veðrið lék við keppend- ur framan af deginum og þeir sem voru lengst voru orðnir rauðir í and- litum, enda búnir að sleikja sólina í níu klukkutíma. Tilþrifin sem sáust á körfuboltavöllunum á Miklatúni voru ósvikin og baráttan var til fyr- irmyndar. Mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra og tókst með miklum ágætum en nú kom KKÍ, Ölgerð Egils Skallagrímssonar og útvarpsstöðin X-ið 977 að mótinu og var það stærra í sniðum fyrir vikið. Lið frá Reykja- vík, Njarðvík, Keflavík og Hólma- vík. Sverrir Bergman, einn skipu- leggjandi mótsins segir að þátttakan hafi farið fram úr björtustu vonum. „Við vorum svo heppnir með veður. Það skiptir alveg megin máli, það er aldrei búið að vera hvasst. Smá rign- ingadropar en það er allt í lagi. Björt- ustu vonir eru samt 200 liða mót sem fyrst. Það verður að vekja risann. Það er loksins smá aðdráttarafl, kannski af því að eitthvað annað en Suður- nesja lið vann körfuna hér heima. Svo eru komnar nýjar hetjur inn í NBA boltann. Það eru búnar að vera nokkrar gamlar hetjur hérna, við bönnuðum reyndar úrvalsdeildarleikmenn. Það er kjánalegt að vera úrvalsdeildar- leikmaður og mæta á svona mót. Stefnan er að hafa svona mót aft- ur í ágúst. Við ætlum að reyna að ná tveimur svona mótum í sumar. Svo þrisvar næst og svo höldum við alls- herjar götukörfuboltamót í sumar á Sauðárkróki. Þar er mekka körfu- boltans,“ sagði hress og kátur, tölvu- leikjagúruið, Sverrir Bergman. Benedikt BóaS hinRikSSon blaðamaður skrifar: benni@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.