Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Side 20
Ferrari sigur mánudagur 2. júlí 200720 Sport DV ÍÞrÓTTaMOLar Franskur miðjumaður til West Ham West Ham hefur gengið frá kaupum á franska leikmanninum julien Faubert frá Bordeaux. Kaupverðið er 6,1 milljón punda, um 780 milljónir króna. Faubert hefur leikið einn landsleik fyrir Frakkland. „Ég er mjög ánægður að geta boðið julien velkominn til upton Park og er viss um að hann verður góður leikmaður fyrir félagið,“ sagði Eggert magnússon, stjórnarformaður West Ham. Federer kominn í 8-liða úrslit roger Federer komst áfram í 8-liða úrslit á Wimbledon mótinu um helgina þegar Tommy Haas þurfti að draga sig úr leik vegna meiðsla. Federer er sigurstranglegur á mótinu enda í efsta sæti á heimslistanum. Hann mætir Spánverjanum juan Carlos Ferrero eða janko Tipsarevic í leik um það hver kemst áfram í undanúrslit. Erfiðlega gengur að spila leikina á Wimbledon sökum rigninga á Bretlandseyjum. Pókersamband íslands stoFnað Vinsældir pókers hafa aukist gríðarlega hér á landi að undanförnu. Fyrir vikið hafa áhugamenn um hann stofnað Pókersamband íslands. markmið sambandsins er meðal annars að stuðla að lögleiðingu áhugamanna- pókers á íslandi, að því er segir í lögum félagsins. Stofnun sambandsins kemur í kjölfar þess að lögregla stöðvaði pókermót í upphafi júnímánaðar á grundvelli almennra hegningarlaga. luPoli yFirgeFur arsenal arthuro lupoli gekk í gær til liðs við Fiorentina á frjálsri sölu frá arsenal. Hinn tvítugi lupoli spilaði einungis einn deildarleik fyrir arsenal á tímabilinu, en hann spilaði nokkra leiki í deildarbikarnum. lupoli var megnið af tímabilinu í láni hjá derby County í ensku fyrstu deildinni. lupoli kom frá Parma árið 2004 og þótti mikið efni. Hann náði hins vegar ekki að standa undir væntingum hjá lúndúnarliðinu. Heargraves loks til mancHester united manchester united gekk loks formlega frá kaupum á Owen Heargraves í gær. Hann skrifaði undir fimm ára samband við félagið. „Þetta tók svolítið langan tíma,“ segir Heargraves um félagaskipt- in, en Bayern münchen samþykkti tilboð í kappann fyrir tveimur mánuðum. Ekki fékkst gefið upp kaupverð en fjölmiðlar í Bretlandi telja það nema um sautján milljónum punda. áður hefur united keypt nani frá FC Porto og portúgalska kantmann- inn nani frá Sporting lisbon. kimi räikkönen og Felipe massa, ökumenn Ferrari, skipuðu tvö efstu sætin í kappakstri helgarinnar sem fram fór í Frakklandi: Finnski ökuþórinn Kimi Räikkönen hrósaði sigri í æsilegum kappakstri um helgina. Räikkönen var þriðji á ráslínu en með kröftugum akstri og mikilli baráttu náði hann að skjóta þeim Felipe Massa og Lewis Hamil-ton ref fyrir rass og vann sinn annan sigur á tímabilinu. Felipe Massa hóf kappaksturinn fremstur, með þá Lewis Hamilton og Kimi Räikkönen fyr- ir aftan sig. Massa hélt forystunni en Räikkön- en komst fram úr Hamilton í fyrstu beygjunni. Hamilton náði aldrei að komast fram úr Ferrari- félögunum og endaði í þriðja sæti. Félagi hans hjá McLaren, Fernando Alonso, hóf keppni í tí- unda sæti og endaði í því sjöunda. Räikkönen komst fram úr Massa þegar sá síðarnefndi tók þjónustuhlé. Massa fór á und- an Räikkönen í þjónustuhlé og Finninn knái tók þjónustuhlé tveimur hringjum á eftir Massa en kom aftur á brautina tveimur sekúndum á und- an honum. Forystunni hélt Räikkönen allt til enda og hrósaði sínum öðrum sigri á tímabilinu. Hann varaði keppinauta sína við eftir kappaksturinn og sagði að hann ætti meira inni. „Þetta var mjög kærkomið. Ég held að ég hafi átt mjög erfitt en ég bjóst alltaf við að ná mér á strik á ný. Fólk er alltaf búið að afskrifa mig þeg- ar ég næ ekki góðum úrslitum,“ sagði Räikkön- en. „En við höfum lagt hart að okkur og reynt að komast á rétta braut og ég held að við get- um enn bætt okkur. Við erum ekki þar sem við viljum vera en erum klárlega ánægð- ari með bílinn nú en við vorum í síðustu keppni.“ Räikkönen sagði að byrjun hans í keppninni hafi lagt grunninn að sigr- inum. „Loksins náði ég góðri byrjun og það hjálpaði mikið. Mér fannst bíllinn góður allan tímann en samt ekki full- kominn. En ég er ánægður með bíl- inn. Ég reyndi að halda í við Felipe af því að ég vissi að ég ætti að fara inn á eftir honum. Rétt fyrir fyrra þjónustuhléið lenti ég í smá um- ferð en eftir það síðara náði ég að komast fram úr honum. Þetta var góður dagur fyrir mig og fyrir liðið,“ sagði Räikkönen. Jarno Trulli, öku- maður Toyota, þurfti að hætta keppni eft- ir að hann ók aftan á Heikki Kovalainen, ökumann Renault, á fyrsta hring. Trulli var áttundi á ráslínu en Kovalainen sjötti. Sá síðar- nefndi náði að klára kappakst- urinn en end- aði í fimmtánda sæti. „Þetta var kappakstursslys. Brautin var mjög erfið á fyrsta hring og í raun misreikn- aði ég mig við að bremsa. Ég var ekki að sækja að neinum en ég bremsaði of seint og keyrði á Kovalainen. Ég er mjög miður mín hans vegna, vegna þess að þetta eyðilagði keppnina fyrir honum og einn- ig fyrir mér. Því miður gerði ég mistök,“ sagði Jarno Trulli eftir keppnina. „Þetta var mjög leiðinlegt vegna þess að ég var sannfærður um að við værum með mjög góða taktík og ég átti von á að ná í stig í dag,“ bætti Trulli við. Staðan í keppni ökumanna Ökumaður Lið Stig lewis Hamilton mclaren-mercedes 64 Fernando alonso mclaren-mercedes 50 Felipe massa Ferrari 47 Kimi räikkönen Ferrari 42 nick Heidfeld BmW 30 robert Kubica BmW 17 Fisichella renault 16 Heikki Kovalainen renault 12 alexander Wurz Williams-Toyota 8 jarno Trulli Toyota 7 nico rosberg Williams-Toyota 5 david Coulthard red Bull-renault 4 Takuma Sato Super aguri-Honda 4 mark Webber red Bull-renault 2 ralf Schumacher Toyota 2 jenson Button Honda 1 Sebastian Vettel BmW 1 Scott Speed STr-Ferrari 0 rubens Barrichello Honda 0 anthony davidson Super aguri-Honda 0 adrian Sutil Spyker-Ferrari 0 Christijan albers Spyker-Ferrari 0 Vitantonio liuzzi STr-Ferrari 0 Staðan í keppni bílaSmiða Lið Stig mclaren-mercedes 106 Ferrari 71 BmW 39 renault 25 Williams-Toyota 13 Toyota 9 red Bull-renault 6 Super aguri-Honda 4 STr-Ferrari 0 Honda 0 Spyker-Ferrari 0 sigurgleði Kimi räikkönen og Felipe massa fögnuðu vel og innilega með samstarfsmönnum sínum hjá Ferrari eftir keppnina um helgina. enn efstur lewis Hamilton endaði í þriðja sæti um helgina en heldur þó enn efsta sætinu í keppni ökumanna. sigurvegari helgarinnar Kimi räikk- önen hrósaði sigri um helgina og er í fjórða sæti í keppni ökumanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.