Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Page 22
mánudagur 2. júlí 200722 Sport DV
LIÐ ÁTTUNDU UMFERÐAR
Markvörður
Stefán Logi Magnússon KR.
Kom eins og þruma úr heiðskíru
lofti inní lið KR gegn Fram. Var ör-
uggur í öllum sínum aðgerðum og
toppaði góðan leik með því að verja
vítaspyrnu.
Varnarmenn
Guðmann Þórisson Breiðablik.
Tapaði ekki skallabolta gegn grönn-
unum í HK og lék varnarleikinn gríð-
arlega vel. Stór og sterkur miðvörður
sem kallar ekki allt ömmu sína.
Arnór Aðalsteinsson Breiðablik.
Ungur, efnilegur vinstri bakvörður
sem er einnig með öflugan vinstri fót
og góðar fyrirgjafir. Lék vel í grann-
aslagnum og verður forvitnilegt að
fylgjast með honum það sem eftir er
af mótinu.
Guðmundur Mete Keflavík. Það
er ekki að sjá að Guðmundur hafi
misst af byrjuninni á mótinu vegna
meiðsla. Stöðugur í sínum leik og
tapaði varla einvígi gegn Fylki.
Guðjón Antoníusarson Kefla-
vík. Vanmetinn leikmaður. Sterkur
varnarlega og kemur á óvart í sókn-
arleiknum. Gerir ekki mörg mistök
á vellinum og er stendur alltaf fyrir
sínu.
Miðjumenn
Baldur Bett Valur. Lék gríðarlega
vel gegn sínum gömlu félögum í FH
og átti miðjuna með húð og hári.
Arnar Grétarsson Breiðablik. Ró-
legur á boltanum og stjórnaði sínu
liði eins og herforingi. Var allt í öllu
í spili Breiðabliks og lagði upp tvö
mörk.
Bjarni Guðjónsson ÍA. Bjarni hef-
ur dregið vagn Skagamanna í sumar
á löngum köflum. Kominn með góða
menn sér við hlið og naut hann sín
vel gegn Víking.
Sóknarmenn
Guðmundur Pétursson KR. Kom
mörgum á óvart að hann skyldi vera
settur í byrjunarliðið gegn Fram en
hann sýndi mátt sinn og megin í
leiknum og barðist vel auk þess að
skora.
Guðmundur Benediktsson Val-
ur. Guðmundur er eins og gott rauð-
vín, verður bara betri með aldrinum.
Skoraði loksins og byggði upp sókn-
arleik Vals með hnitmiðuðum send-
ingum. Svo var lýsing hans í Copa
America skömmu síðar ekki síðri.
Vjekoslav Svadumovic ÍA. Hef-
ur komið eins og stormsveipur inní
íslenska boltann og skorar reglulega
auk þess að leggja upp færi fyrir sam-
herja sína. Á bara eftir að verða betri
undir handleiðslu Guðjóns Þórðar-
sonar.
Arnór Aðalsteinsson
Guðmundur Pétursson
Baldur Bett
Guðmundur Mete
Bjarni Guðjónsson
Stefán Logi Magnússon
Guðjón AntoníusarsonGuðmann Þórisson
Guðmundur Benediktsson Vjekoslav Svadumovic
Arnar Grétarsson
Áttundu umferð Landsbankadeildar karla
lauk á fimmtudagskvöldið. Níunda umferð
hefst á morgun með tveimur leikjum:
Valsmenn eiga tvo
fulltrúa Valur lék gríðarlega
vel gegn FH en ná einungis
tveimur mönnum inn.
Sterkur í loftinu guðmann Þórisson lék vel í vörninni gegn HK.
Einn af mörgum arnór aðalsteinsson er hér að taka einn af mörgum sprettum
sínum upp vinstri kantinn.
Stormsveipur Vjekoslav Svadumovic
hefur komið eins og stormsveipur inní
íslenska boltann.