Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2007, Qupperneq 23
Menning A Long Way Gone Í haust er væntanleg frá JPV saga Ishmaels Beah, ungs manns frá Síerra Leóne sem þrettán ára gamall var þvingað- ur til þátttöku í borgarastríðinu sem hófst í landinu árið 1991. Bókin heitir á frummálinu A Long Way Gone og hefur hlotið gríðarlega góðar viðtökur og umsagnir vestanhafs, enda í fyrsta skipti sem fyrrverandi barnahermaður segir sögu sína á þennan hátt. Magnús Sigurðs- son þýðir bókina á íslensku. Ragna sýnir í New York Ragna Róbertsdóttir myndlistarkona tekur þátt í sýningunni Agitation and Repose í hinu virta Tanya Bonakdar Gallery í New York. Sýningar- stjórar eru þau Sabine Russ og Gregory Volk. Sýningin stendur frá 26. júní til 17. ágúst. Ljósmyndun DV Menning mánudagur 2. júlí 2007 23 Sýning á myndum sem Páll Stefánsson ljósmyndari tók í Kamerún: Palli í Afríku „Ég hef verið að vinna þó nokk- uð í Afríku fyrir UNESCO við að skrásetja heimsminjar. Þá fæddist þessi hugmynd að gera bók sem sýnir jákvæðu hliðina á Afríku af þeirri einföldu ástæðu að sú mynd sem við Vesturlandabúar höfum af heims- álf- unni er fátækt, stríð og hörmungar. Á ferð- um mínum um Afríku hef ég bara séð allt annað. Ég sé gleði og leik,“ segir Páll Stefánsson ljósmyndari sem vinnur nú að bók um Afríku. Í tengslum við hana fór hann til Kamerún í síðasta mánuði en um helgina opnaði sýningin „Heitt“ í ljósmyndagalleríinu Fótógrafí á Skólavörðustíg þar sem afrakst- ur ferðarinnar er til sýnis. Bókin er hins vegar ekki væntanleg fyrr en 2009. Að sögn Páls sjást krakkar í fót- bolta hvert sem litið er í Afríku og er það útgangspunktur bókarinn- ar. „Knattspyrnan í Afríku fannst mér svo góður samnefnari til þess að búa til bók sem sýnir hina hlið- ina á álfunni. Afrískir knattspyrnu- menn hafa líka heldur betur verið að sækja í sig veðrið. Við sjáum það til dæmis að í byrjunarliði Chel- sea eru sex Afríkumenn.“ Aðspurð- ur hvað heilli mest við heimsálf- una segir Páll það vera þessa gleði og ryþma. „Og þetta er náttúrlega allt annar heimur. Það er hollt öll- um að ferðast og fyrir mér er ennþá hollara þegar maður sér menningu sem er svo frábrugðin okkar. Það gefur manni meira.“ Páll segir langt frá því að hann sé kominn með allt efni í bókina og á því eftir að fara margoft til Afríku á næstu tveimur árum. Og hann tek- ur myndir í mörgum löndum. „Bók- in á að vera þverskurður af Afríku - menningarlega, sögulega, gróð- urfarslega. Knattspyrnan bindur þetta svo saman.“ Sýningin stendur til 4. ágúst. kristjanh@dv.is „Tilraunin er að tvinna saman fegurð og hrylling því listin hef- ur fagurfræði sem tungumál og snertir mann þar af leiðandi skyn- rænt. Þess vegna fannst okkur þetta áhugaverð nálgun,“ segir listamað- urinn JBK Ransu, sem heitir réttu nafni Jón Bergmann Kjartansson, en hann og Birgir Snæbjörn Birgis- son opnuðu um helgina sýninguna Hreinn hryllingur í galleríinu Suð- suðvestur í Reykjanesbæ. Í sýningu þeirra félaga skar- ast fagurfræðilegar og siðferðis- legar spurningar um hreinleikann og segir Ransu að þjóðernishyggja snúist til að mynda um hreinleika „Annars vegar er hugmyndin um að til dæmis manneskja sé hreinni en einhver eða eitthvað annað og þá yfir það hafin. Hins vegar er það hugmyndin um einhvern einn sameinaðan og hreinan kjarna sem er þá meira þessi fagurfræði í list- inni. Þetta er svona grunnurinn að sýningunni.“ Ljóshærðir drengir og svastikur Birgir býður meðal annars upp á myndir af ljóshærðum drengj- um með blá augu og hvítar postul- ínsstyttur af þröstum sem mynda ákveðna tengingu við Jónas Hall- grímsson og Ísland. Ransu er hins vegar með eitt veggmálverk og myndaröð sem hann málaði með sjálflýsandi litum á pólýester- efni. „Ég vinn með hrein form og hreina liti og vinn þá með svastik- una sem form. Það er hrynjandi á milli mynda, ekkert ósvipað því sem þekkist í mínamalisma og geó- metríu. Ég hef unnið svolítið út frá gestalt, eða skynheildarfræði, sem hafði mjög sterk áhrif á geómetrí- una á sínum tíma.“ Upphaf samvinnu Ransu og Birgis má rekja til þess þegar Ransu skrifaði grein um kollega sinn í er- lent tímarit vegna sýningar sem hann var að halda. „Ég hef alltaf verið svo heillaður af þessari tví- greiningu á milli einhvers, eins og fegurðar og hryllings í þessu tilviki, og ég sá þetta mjög sterklega í verk- um Birgis,“ segir Ransu. „Ég spurði hann svo hvort hann hefði áhuga á að vinna með mér sýningu. Hann hafði það þannig að við byrjuðum að undirbúa sýninguna og höfum gert það hægt og rólega undanfar- ið ár.“ Íslendingar ekki saklausir Aðspurður hvort hann hafi aðra sýn á þjóðernishyggju en áður en vinnan með þetta viðfangsefni hófst segist Ransu ekki finna fyr- ir því. „Alla vega ekki þannig að ég geti séð hana eitthvað fallegri. Ég skil hins vegar grunninn um þenn- an hreinleika en hann er auðvitað mistúlkaður í þjóðernishyggju þeg- ar hún fer út í þessar öfgar eins og í nasismanum. Hann er hins vegar ekki eina dæmið,“ segir Ransu og nefnir í því sambandi atburðina í Rúanda á sínum tíma. „Og Íslend- ingar eru svo sem engan veginn saklausir þegar kemur að þjóðern- ishyggju.“ kristjanh@dv.is Sýningin Hreinn hryllingur opnaði í galleríinu Suðsuðvestur í Reykja- nesbæ um helgina: myndList Hreinleiki, HRYLLINGUR OG NASISMI JBK Ransu og Birgir Snæbjörn Birgisson „Hreinleikinn er auðvitað mistúlkaður í þjóðernishyggju þegar hún fer út í þessar öfgar eins og í nasismanum,“ segir ransu. Ein af myndum Páls Fótboltastrákur í Kamerún. Georg Guðni á Akureyri Um helgina var opnuð sumarsýning Listasafnsins á Akureyri en hún er helguð yf- irliti á verkum Georgs Guðna landslagsmálara. Í stað þess að sýna verk Guðna í réttri tíma- röð er hver hinna þriggja sýn- ingarsala safnsins tileinkaður ákveðnu minni sem oft bregður fyrir á ferli Guðna: fjöll, dalir og sjóndeildarhringur. Með því að nálgast verkin út frá þema fremur en tímaröð geta áhorf- endur séð hvernig þau hafa þróast gegnum nýja fagurfræði- lega og gagnrýna linsu. Rafskinna Rafskinna er nafnið á nýju DVD-tímariti, hinu fyrsta sinn- ar tegundar á Íslandi. Megin- hluti tímaritsins er á mynddiski en auk hans er prentað efni, bæði texti, myndir og önnur fylgigögn. Í tilkynningu um útgáfuna segir: „Sjónritinu Raf- skinna er ætlað að vera öflugt kynningartæki um það sem er efst á baugi í flóru sjónrænna lista á Íslandi hverju sinni og höfða jafnt til Íslendinga og hins sístækkandi hóps erlendra ferðamanna sem sækja landið heim í þeim tilgangi að kynnast listalífi landsins.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.