Kjarninn - 23.01.2014, Side 50

Kjarninn - 23.01.2014, Side 50
45/46 Viðtal hjálpar, því þangað til eru þau hreinlega í lífshættu,“ segir Lilja. „Ég verð líka oft fokill þegar ég heyri fólk gera lítið úr þessu þegar verið er að lýsa eftir hinu og þessu barninu. Þetta séu bara vandræðakrakkar sem eigi ekki að veita þessa miklu athygli með því að láta lýsa eftir þeim í fjölmiðlum. Lögreglan lýsir til að mynda oft ekki eftir þessum börnum fyrr en eftir tvo til þrjá daga, en sá tími fyrir barn í neyslu er auðvitað lífshættulegur tími. Það skortir verulega á skilning á því hversu alvarlegri stöðu þessi börn eru í.“ börnin sem verða út undan Á vef samtakanna, olnbogabornin.is, má finna helstu stefnu- mál þeirra. Þar er meðal annars kallað eftir því að forvarnar- starf gegn áhættuhegðun ungmenna verði bætt, unnin verði sérhæfð vímuefnaúrræði fyrir ungmenni, samvinna við for- eldra og aðra aðstandendur verði efld til muna, ráðist verði í þverfaglegt starf vegna ungmenna með áhættuhegðun og eftirfylgni með ungmennum eftir meðferð verði aukin, sem og skilvirkni í dómskerfinu og samvinna við barnaverndar- yfirvöld. „Við þurfum að huga sérstaklega að geðheilbrigðismálum þessa hóps. Það skortir verulega á úrræði í þeim efnum fyrir börnin okkar. Um leið og þau verða átján ára detta þau inn á geðdeild sem meðhöndlar fíknivandann um leið, en þangað til eru afar fá áhrifarík úrræði í boði fyrir þau,“ segir Lilja. „Við völdum þetta nafn á samtökin af því að olnboga- börnin eru börnin sem detta ofan í glufurnar í kerfinu. Úrræðin sem þó eru í boði gagnast vissulega sumum, en stór hópur þarf sérhæfðari úrræði,“ segir Íris. „Olnbogabörnin eru börnin sem lenda úti á kanti og leita þess vegna oft í neyslu fíkniefna. Þau passa ekki almennilega inn í hópinn, hafa jafnvel lent í einhverju, en eru velkomin í heim neysl- unnar. Þeim er oft ýtt til hliðar, þau hunsuð og vandamál þeirra ekki viðurkennd.“ Fram undan hjá Olnbogabörnum er að kynna starf sam- takanna og helstu baráttumál fyrir almenningi. Samtökin halda úti áðurnefndri heimasíðu og svo hafa þau komið upp

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.