Kjarninn - 23.01.2014, Side 78

Kjarninn - 23.01.2014, Side 78
70/70 bílar lausnir leiða af sér ný vandamál Að þessu upptöldu verður ekki hjá því komist að minnast á hugsanlega galla við notkun sjálfrennireiða. Sem dæmi má nefna: Hugsanlegar deilur um ábyrgð – hver ber ábyrgðina þegar sjálfrennireið telst vera valdur að umferðaróhappi eða slysi? Ekki er hægt að gera ráð fyrir að þetta verði í öllum tilvikum svart á hvítu. Áreiðanleiki og öryggi tölvu búnaðar – alkunna er að það sem getur bilað mun bila, fyrr eða síðar. Mikilvægt er að sjálfrennireiðin geti greint bilanir í eigin kerfum og brugðist við þannig að ekki hljótist skaði af. Tölvur eru mannanna verk og því einnig á færi manna að brjótast inn í þær. Eins og dæmin sanna er enginn tölvu búnaður fullkomlega öruggur fyrir árás tölvuþrjóta, hver sem tilgangur með slíku innbroti gæti verið. Lélegri bílstjórar – þar sem hinn almenni ökumaður hefur litla eða enga þörf til að stjórna bifreið í daglegu lífi leiðir það að sér að hann er óreyndur öku maður þegar á reynir. Slík tilvik gætu verið akstur utan almenns vegakerfis, akstur þegar sjálfstýringar- og umferðar kerfi bila og svo framvegis. Atvinnuleysi – eftirspurn eftir atvinnubílstjórum minnkar, jafnvel hraðar en þeir hverfa sjálfviljugir af vinnu- markaði. Framtíðin Ekki er gott að spá um hversu hraðfara þessi bylting verður í samgöngum manna. Áhugi fjölda bílaframleiðanda og mikið fjármagn frá bæði þeim og ýmsum stofnunum til verkefna af þessu tagi er góð vísbending um að iðnaðurinn sé að búa sig undir breytingar, fyrr en síðar. google á fullri ferð í sjálfstýringu Toyota Prius-bifreið Google ekur sjálf með aðstoð fjölmargra skynjara og GPS-tækja.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.