Kjarninn - 10.04.2014, Qupperneq 30
25/28 DaNmörk
Skólagangan hófst 5. ágúst 1956, þá var Lars sjö ára en
daginn eftir varð hann átta ára. Hann segir í ævisögu sinni
að vegna reglna um að börn skyldu byrja í skóla þegar þau
væru sjö ára, miðað við fæðingardag en ekki fæðingarár, hafi
hann verið elstur í bekknum og það hafi oft komið sér vel.
Framan af gekk sælgætisverslunin prýðilega en síðan
tók að halla undan fæti. Signe var illa haldin af gigt og auk
þess sótti á hana þunglyndi sem ágerðist hratt. Lars segir í
ævisögu sinni að þegar hann var 12 ára hafi móðir hans verið
orðin óvinnufær og dvalist langtímum saman á sjúkrahúsum.
Börnin bjuggu þó áfram í litla húsinu sem móð-
ir hans hafði keypt, þau stunduðu ýmiss konar
íhlaupavinnu til að afla tekna. Eldri systkinin
hættu í skólanum þegar skyldunáminu lauk,
eftir sjöunda bekk, en fyrir hvatningu skóla-
stjórans hélt Lars áfram og lauk gagnfræða-
prófi árið 1966. Hann hafði mikinn áhuga á að
verða kennari en eldri bróðirinn Hans sagði að
það væri ekki rétta starfið, hann ætti að verða kaupmaður.
Lars fékk starf sem lærlingur í versluninni Magasin H&L í
Thisted, þar voru seldar sængur og koddar, dýnur, gardínur,
kjólaefni og margt fleira. Á þessum tíma kynntist hann
hjúkrunarfræðinemanum Kristine Brunsborg, sem varð
eiginkona hans.
Duglegur og útsjónarsamur starfsmaður
Árin hjá H&L voru lærdómsrík og Lars vakti athygli yfir-
manna sinna fyrir dugnað og útsjónarsemi. Einu sinni gerð-
ist það að Lars var sendur til að líta á rúmdýnur hjá nokkrum
framleiðendum, en þar sá hann meðal annars nokkrar dýnur
sem höfðu orðið fyrir lítilsháttar hnjaski þegar flutningabíll
valt. Lars keypti dýnurnar og margt fleira á mjög lágu verði.
Svo mikið reyndar að það hefði dugað til að fylla verslunina
hjá H&L tíu sinnum. Svo var auglýst að vörur sem sumar
væru eilítið útlitsgallaðar yrðu seldar í versluninni föstudag
og laugardag. Þegar starfsfólkið mætti til vinnu á föstu-
deginum var löng röð fyrir utan búðina og allt seldist upp á
sá hlær best sem síðast hlær
Lars Larsen var harður á
því að gæs yrði að finna í
vörumerki fyrirtækisins, sem
mörgum þótti aðhlátursefni.
Merkið er nú metið á milljarða
danskra króna.