Kjarninn - 05.06.2014, Page 22
16/18 viðskipti
Nýr hlutabréfamarkaður að mótast
Eftir hið ævintýralega hrun hlutabréfamarkaðarins haustið
2008, þegar hann féll nær allur saman samhliða falli Kaup-
þings, Glitnis og Landsbankans, hefur orðið til nýr hluta-
bréfamarkaður þar sem gjörólíkar áherslur heldur en fyrir
hrun einkenna rekstur. Þá var aðgengi að fjármagni gott og
mikill þrýstingur frá fjárfestum á vöxt félaga og stækkun
efnahagsreiknings, ekki síst með skuldsettum yfirtökum.
Nú er öldin önnur. Tryggingafélögin TM, VÍS og Sjóvá hafa
til dæmis litla sem enga vaxtarmöguleika hér á landi nema
með því að stækka markaðshlutdeild á kostnað hlut deildar
samkeppnisaðila. Reyndin hefur verið sú að veigalitlar
breytingar hafa orðið á hlutdeild félaganna. Reksturinn er
í traustum skorðum og er áhersla fremur á arðgreiðslur
til hluthafa. Það sama má segja um N1 og Haga. Vaxtar-
möguleikar eru litlir sem engir en stöðugur rekstur sem
skilar hluthöfum arði er fyrir hendi.
gríðarleg ávöxtun í skjóli fjármagnshafta
Frá hruni hefur markaðsvirði skráðra félaga aukist
mikið, margfaldast raunar í sumum tilvikum. Þannig var
skráningar gengi fyrsta félagsins á markað eftir hrunið,
Haga, 13,5 við skráningu á markað en er nú 45,5. Það sama
má segja um Icelandair, sem var endurskráð á markað á
genginu 2,5 eftir hrunið en gengi félagsins í kauphöllinni
bankarnir skipta markaðinum að milli sín að mestu
Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með
mestu hlutdeildina í maímánuði, eða 27,8% (29,6%
á árinu), Íslandsbanki með 24,0% (19,9% á árinu),
og Landsbankinn með 18,6% (23,4% á árinu).
Viðskipti með skuldabréf námu 92 milljörðum í maí,
sem samsvarar 4,6 milljarða veltu á dag. Þetta er
2% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í apríl námu
4,7 milljörðum á dag), og 54% lækkun á milli ára
(viðskipti í maí 2013 námu 9,9 milljörðum á dag).
Alls námu viðskipti með ríkisbréf 71,9 milljörðum
en viðskipti með íbúðabréf námu 17,8 milljörðum,
að því er segir í yfirliti Kauphallarinnar. Mest voru
viðskipti með RIKB 19 0226, 17,9 milljarðar, RIKS 21
0414, 12,1 milljarður, RIKB 22 1026, 11,2 milljarðar,
HFF150224, 10,3 milljarðar, og RIKB 20 0205, 9,7
milljarðar.
Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu
hlutdeildina 27,2% (21,5% á árinu), Íslandsbanki
með 19,2% (18,5% á árinu) og MP banki með 17,4%
(20,0% á árinu).