Kjarninn - 05.06.2014, Side 66
57/59 LíFsstíLL
um þrjár tegundir sveppa sem hafa verið hvað vinsælastar
undanfarin ár: reishi, shiitake og maitake. Allir eiga þeir það
sameiginlegt að þykja styrkja ónæmiskerfið og hafa verið
töluvert rannsakaðir í tengslum við krabbameinsmeðferðir.
reishi (Ganoderma lucidum)
Í Kína á öldum áður þótti reishi-sveppurinn auka langlífi,
en hann var sjaldgæfur og því fengu eingöngu keisarinn og
hirð hans að njóta hans. Í Japan er notkun reishi samhliða
annarri krabbameinsmeðferð viðurkennd af japanska heil-
brigðisráðuneytinu, en reishi-sveppurinn er talinn auka áhrif
hefðbundinnar lyfjameðferðar við krabbameini og draga úr
aukaverkunum hennar. Reishi er einnig talinn hafa jafnvægis-
stillandi áhrif á ónæmiskerfið og hefur verið notaður gegn
sjálfsofnæmissjúkdómum eins og liðagigt, MS og lúpus og
einnig lifrarbólgu B og C, vefjagigt, HIV/AIDS og herpes vírus.
Ũ styrkir og kemur jafnvægi á ónæmiskerfið
Ũ langvarandi bronkítis, astmi og hósti
Ũ styrkir hjarta- og æðakerfi
Ũ hár blóðþrýstingur, hátt kólesteról
Ũ styrkir og verndar lifur
Ũ svefnleysi, stress, kvíði
Ũ bakteríu-, sveppa- og vírusdrepandi
Ũ hár blóðsykur
Ũ krabbamein
„Í dag eru sveppir
hins vegar
ræktaðir í tug-
þúsunda tonna
tali ár hvert bæði
til manneldis og í
fæðubótarefni.“