Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 3
Einar Hjörleifsson Kvaran.
1859 — 6. desember — 1929.
Ein ei- sú mynd úr íslenzkri náttúru,
sem jafnan setur hug- minn og ímyndun-
arafl í hreyfingu, þegar eg minnist henn-
ar; en það er ám. — Hún á upptök sín
einhverstaðar inni á heiðum og óbygðum,
rennur þar ef til vill saman af mörgum
Eekjum og lindum, drögum og vötnum,
svo að uppsprettur hennar verða fleiri en
svo, að frá þeim sé hægt að greina, þegar
hún kemur fram á brúnir hálendisins
fellur hún í þröngu gili, stríð og straum-
hörð, reynir kraftana á stuðlabergsklöpp-
unum og blágrýtishellunum, fellur fram
N.-Kv. XXII. ár. 9,—12. h.
af klettum og björgum í flúð og fossi, þar
sem grængolandi hringiðan sýður og sog-
ar fyrir neðan — en sólarúði og friðar-
bogi er yfir hverjum fossi, og í djúpi gilj-
anna finnast lygnir hyljir, sem ýmist eru
þunglyndisdökkir eða geislumstafaðir.....
Og áin fellur áfram, nær dalbotninum,
finnur breiðan fai’veg milli gróinna hlíða,
líður áfram, áfrani -— hægt og straum-
þuhgt, miili eyra og engja með einstöku
grunnbroti hér og þar, og faðmar grasi
gróna hólma, unz tilvera hennar hverfur,
rennur út að ósi í fjörð eða flóa. —
Ekki alveg óáþekkur þessari mynd
virðist mér oft lífsferill sumra hæfileika-
og hamingjumanna: Uppruni þeiri’a er að
nokkru leyti þektur, að nokkru ó-
þektur, tilvera lífs þeirra mynd-
ast af samstreymi ótal lækja og
linda frá lífi þjóðarinnar, bernskan líður
venjulega, án þess að mikið sé eftir henni
tekið. En er æskuár taka við, vill farveg-
urinn stundum gerast þröngur, þá ólgar
blóðið og kraftarnir reyna sig á hindrun-
um og torfærum, og á fyrstu fullorðins-
árunum, sem fylgja, stendur oft styrr um
manninn — en æskan á líka sínar kyrðar-
stundir, stundir myrkar af þunglyndi eða
stafaðar björtum geislum drauma og
vona, og yfir baráttu og stríði mannsins
fyrir hugsjónum sínum eða þjóðarinnar,
hvelfist friðarbogi sigra framtíðarinnar.
— Og að síðustu færist aldur yfir mann-
19