Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 4

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 4
146 NÝJAR KVÖLDVÖKUR inn, hann er þá búinn að ná fullum þroska og víðfaðma skilningi á lífi sínu og eðli starfa sinna, þá hægist rásin, yf- irborðið verður lygnara, farvegur lífsins jafn og breiður, stundum getur enn brot- ið á grjóteyrum stríðsins, en að öðru leyti er nú sem hvíli líf og gróður í faðmi hins aldraða manns, — það er gróður velunn- inna verka og í því felst hamingja lífsins. Ef eg ætti að lýsa lífi þess manns, sem er tilefni þessara lína, gæti eg ekki fund- ið aðra mynd betri að líkja því við.... ...Einar Hjörleifsson Kvaran skáld er fæddur í Vallanesi í Suður-Múlasýslu þ. 6. desember 1859. Foreldrar hans voru þau Hjörleifur prófastur Einarsson og fyrri kona hans, Guðlaug Eyjólfsdóttir bónda Jónssonar frá Gíslastöðum Sumarið 1860 fluttust foreldrar hans að Blöndudalshólum í Húnavatnssýslu og þar ólst hann upp til 10 ára aldurs, en þá fékk síra Hjörleifur Goðdali í Skaga- firði og' fluttist þangað árið 1870, þar var svo heimili Einars unz hann fór í lærða skólann í Reykjavík árið 1875; þaðan út- skrifaðist hann 1881 og samsumars sigidi hann til háskólans í Kaupmannahöfn; þar tók hann próf í heimspekilegum for- spjallsvísindum 1882, en að öðru leyti lagði hann stund á stjórnfræði. Sumarið 1885 yfirgaf hann háskólann og fór þá vestur um haf til Ameríku og dvaldi þar 10 næstu ár. — í ársbyrjun 1888 var blaðið »Lögberg« stofnað í Winnipeg, var Einar Kvaran einn af stofnendum þess, og ritstjóri þess var hann alt þar til hann hvarf heim aftur til islands að undanskildum einum þiem vikum. Vorið 1895 lagði hann af stað heim- leiðis aftur til íslands eftir hér um bil 14 ára útivist. Þá gerðist hann meðrit- stjóri »Isafoldar«, sem Björn Jónsson, síðar ráðherra, gaf út, því starfi hélt hann til hausts 1901 að undanskildum vetrinum 1896—97, sem hann dvaldi í Ajaccio á Corsica sér til heilsubótar. Haustið 1901 var blaðið »Norðurland« stofnað á Akureyri og fluttist Einar Kvaran þá þangað og tók við ritstjórn þess. Ritstjóri »Norðurlands« var hann í 8 ár, þá fluttist hann aftur til Reykjavík- ur og tók við ritstjórn »Fjallkonunnar«, sem hann hafði á hendi í tvö ár. — Að þeim tíma liðnum tók hann fyrst til fulls að snúa sér að annarskonar ritstörfum. — í sambandi við blaðamannsstörf Kvarans má einnig nefna tímaritið »Verðand.i«, sem þeir gáfu út í Kaupmannahöfn Bertil O. Þorleifsson, Gestur Pálsson, Hanues Hafstein og Einar H. Kvaran árið 1882. Þar birtist m. a. saga Einars »Upp og niður«. -— Tímarit þetta er að því leyti merkilegt, að það boðar stefnuhvörf þau í bókmentum vorum, er þá voru í vænd- um og síðar verður bent á. Á meðan Einar dvaldi í Winnipeg, höfðu komið út eftir hann tvö lítil rit, »Vonir, söguþáttur frá Vesturheimi« (1890), og »Ljóðmæli« (1898). Áður hafði þó birst eftir hann sagan, »Hvern eiðinn á eg að rjúfa« (1880). Árið 1903 komu út þrjár sögur, »Vestan hafs og austan«, 1908 fyrsta langa skáldsagan »Ofurefli« og sama ár »Smælingjar, fimm sögur«« (prentaðar í Winnipeg), 1911 kom framhald »Ofureflis«, sagan »Gull«, 1913 »Frá ýmsum hliðum, fimm sögur« og leikritið »Lénharður fógeti«, 1915 leikritið »Syndir annara«, 1916 »Sálin vaknar, þáttur úr sögu æsku- manns«, 1918 »Sambýli, saga«, 1919 »Sögur Rannveigar I.«, 1922 »Sögur Rannveigar II.«, 1923 »Sveitasögur gamlar og nýjar« og 1924 »Stuttar sög- ur« (endurprentun. af »!Smælingjar« og »Frá ýmsum hliðum«). Margt af þessum sögum hefir verið þýtt á erlend tungu- mál. — Þýtt hefir og Einar Kvaran ým- islegt af erlendum skáldskap og úr

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.