Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 7

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 7
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 149 Æfintýrið í skóginum. (Saga frá Kaupmannahöfn). Loksins var veturinn liðinn. Loksinsvar loftið orðið hlýtt, skógurinn laufgaður og fuglarnir farnir að kvaka. Loksins hafði fólkið, sem daglega sást á götunum, kast- að vetrarklæðunum, þykkum og þung- lamalegum. Stúlkurnar, sem áður gengu þar hægt og silalega, klæddar þykkum loðfeldum, eða með loðkraga upp fyrir eyru og dökka, þykka hatta, svifu nú urn göturnar ljettar og limamjúkar á Ijósum klæðum, sem mintu á vor og æsku, og í gegnum fötin sáust hinar fögru líkams- línur. Borgin var orðin sem ný. Vetrar- loftið grátt og drungalegt þyngdi ekki lengur skapið. Það hafði grúft yfir manni allan liðlangan veturinn og lagt hömlur á alt lífsfjör og kæti. En nú var vorið kom- ið. Sólin skein í heiði dag eftir dag og 'vakti til lífs og leiks alla þá krafta, sem veturinn hafði drepið í dróma með hrammi sínum. En nú var hann loksins hðinn. Mikið lifandi skelfing var jeg feginn Því, að vorið var komið. Jeg liafði þráð Það síðan á haustnóttum. Mig hafði úreymt um það og yndi þess nætur og daga. Veturinn hafði legið á mjer eins og farg og lamað starfskrafta mína. Hið eina yndi mitt var að »kúra og dreyma«. Jeg hafði líka verið ástfanginn í ungri og fallegri meyju. Jeg sá hana af hendingu llm jólaleytið, og hún hertók hjarta mitt ú samri stundu. Síðan sveif jeg milli Vonar og ótta. Jeg fjekk hjartslátt í hvert Slnn, er jeg sá hana og átti erfitt með að Loma upp nokkru orði í návist hennar, °g fjekk jeg þó annars orð fyrir að vera heldur málugur. Þetta var líka heppileg- asta ástandið, til að vinna ástir ungrar og fjörugrar meyjar. En jeg var svo óg- urlega vitlaus í þann tíma. Jeg leit á hana eins og gyðju, og mjer fanst jeg vera sælastur allra manna, ef hún aðeins leit á mig svona eins og gengur og gerist, jeg tala ekki um ósköpin, ef hún brósti. Jeg hafði hætt mjer til að dansa við hana nokkrum sinnum á »landamótum«, en jeg þorði varla að snerta hana; mjer fanst líkami hennar vera of fíngerður, til þess að annar eins klunni og jeg mætti hand- fjallá hann. Hvernig gat staðið á því, að jeg var svona? Jeg var hissa á því. að jeg skyldi geta verið svona asnalegur. Og jeg skelti allri skuldinni á veturinn, Jeg hugði, að það væri gráa loftið, sagginn og slydduveðrið, sem drægi svo úr mjer þróttinn, að jeg þyrði ekki að náígast takmark helgustu vona minna. Jeg von- aði því og þráðí, að vorið kæmi, með gró- andina, sólskinið, sönginn og hfið. Þá væri færi á að hrinda af mjer drungan- um og reka af sjer slyðruorðið, og sýna, að maður þyrði að gera eitthvað. Jeg hafði komist að rauii um, að Hrefna Ijet sjer ekki standa á sama um mig. Að vísu gat það verið, að hú.n vildi aðeins gera gabb að mjer vegna ófram- færni minnar. En mjer var sama um það. Hún hafði gefið mjer svo mikið undir fótinn, að jeg gerðist öruggari í fram- göngu en áður var. En maí var líka byrj- aður, og þá segja menn, að allir örfist til ásta. í raun réttri var jeg nógu ástfang- inn áður, en tilfinningar mínar gei-ðust nú jarðbundnari en fyrr, og jeg einsetti mjer að gera eitthvað. Þótt það yrði ein- hver árans vitlevsan, var alt betra en aðgerðarleysið.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.