Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 8
150 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Þessi ásetningur minn varð til þess, að jeg bauð henni með mjer í skógarför. Jeg var nú reyndar hissa á, að mjer skyldi detta slík fífldirfska í hug, því að fífl- dirfska var það frá míhií sjónarmiði sieð, og jeg veit ekki enn, hvernig jeg fór að stynja þeirri málaleitun upp við Hrefnu. Jeg gerði það víst meira en í meðaiiagi klaufalega, því að hún skellihló upp í op- ið geðið á mjer. En það gerði nú ekkert, því að hún hjet að koma með mjer.-------- Dagurinn, þegar farið skyldi í skóg- inn, var runninn upp. Þao var sólskin og steikjandi hiti. Maður varð löðursveittur af að labba í hægðum sínum um göturn- ar. Það lá nærri, að hitinn lamaði eins mikið nú og veturinn gerði áður. Hús- veggirnir köstuðu frá sjer brennheitum sólargeislunum og göturnar voru líkast- ar bakaraofnum. Jeg var hinn ánægðasti. Jeg vissi vel, að utan borgar bljes undurþýður blær utan af Sundinu, og hann hresti mann og fjekk mann til að gleyma mollunni og rykinu inni í húsaþrönginni. Jeg var merkilega fimur og fjörugur, þegar við Hrefna stigum út úr eimlest- inni við Klampenborg og bjuggumst til að ganga inn í skóginn. Mjer var líkt innanbrjósts og jeg hefði nú höndlað hamingjuna fyrir fult og alt, og jeg var staðráðinn í að láta ekki færið ganga úr greipum mjer. Hrefna var líka ofur á- nægjuleg á svipinn. Reyndar virtist mjer hún nokkuð hrekkjaleg í augunum, en það gat verið missýning, því að jeg var svo geysilega tortrygginn. Skógurinn ljómaði í hinu fegursta vor- skrúði sínu. Beykilaufið silkimjúkt og Ijósgrænt, hreyfðist ofurhægt í andvar- anum. Hingað og þangað stóðu alblóing- aðir hvítþyrnar og lagði af þeim þægi- legan ilm, og blóm vorsóleyjanna þöktu allan skógsvörðinn. Við Hrefna reikuðum fram og aftur, mösuðum, hlógum og sögðum hvort öðru sögur og dáðumst að vorfegurð skógarins. Svo- mikið hafði jeg aldrei talað við Hrefnu fyrr, en þetta var líka í fyrsta skifti, sem við vorum tvö ein, þá stund að nokkru næmi. Jeg uppgötvaði brátt, að Hrefna var dálítið rómantísk, og það þótti mjer ekki amalegt, því að rómantík og skáld- skapur var hið eina, sem jeg gat talað um af dálitlu fjöri. Dagurinn leið, og jeg var engu nær um hug Hrefnu. Hún hló og flissaði og kom mjer í vandræði alveg eins og vant var. Að vísu sýndust mjer augu hennar blossa stundum alleinkenni- lega, en það gat verið ímyndun. Jeg ætla ekki að orðlengja það meir, að áður en okkur varaði var sólin gengin undir og tekið að skyggja, það er að segja tunglið sá fyrir nægri birtu, til að rekja götu- slóðana, sem lágu um skóginn.------------- — — — Tunglið skein í heiði. Inni í skógarþykninu var samt niðdimt, nema þar sem örmjóir silfurhvítir geislar gátu smogið gegnum blaðasamfellurnar. Fuglasöngurinn þagnaði smátt og smátt, og kyrð og friður færðist yfir. i raklend- um rjóðrum stigu gráhvítir þokumekkir upp frá jörðunni og lögðust síðan yfir hana eins og silfurslæða. Það var þægi- lega svalt. Skógurinn geymdi enn mikið af sólarylnum frá deginum, svo að næt- urkulið fanst ekki að marki. Við Hrefna sátum í grasi vaxinni brekku skamt frá vatni einu. Tungis- geislarnir stöfuðu spegillygnan vatnsflöt- inn, og skógarjaðarinn í kring varpaði kolsvörtum skuggum inn yfir vatnið. Þegar litið var yfir að skógarjaðrinum var sem sæi í órjúfandi varnarmúr og að baki hans leyndist eitthvað dularfult og óendanlegt. Síðustu fuglarnir voru þagn- aðir, en froskarnir kvökuðu ennþá ástar- ljóð sín á vatnsbökkunum. öðru hvoru heyrðist skrjáf í grasinu, það minti á, að alt í kring væri fult af lifandi verum, og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.