Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 10

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 10
152 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og Hrefna þagði líka og hvíldi hreifing- arlaus í örmum mínum. Uglumar voru þagnaðar og skógurinn var kyr og hljóð- ur sem fyr. Hjartað barðist ákaft í brjósti mjer. Jeg var sælli en því verði með orðum lýst. En eitthvað varð jeg að segja þótt mjer virtist næstum synd að rjúfa þögnina. — Hrefna, stundi jeg loksins upp, ertu reið við mig? — Reið, hversvegna ætti jeg að vera það? — Ja, mjer datt svona í hug, að þú hefðir reiðst, af því að jeg kysti þig. — Og þú heldur að jeg hefði ekki látið það í Ijós á nokkurn hátt. Blessað barn getur þú verið. Hún sagði þetta. hálfögr- andi, og mjer varð samstundis ljóst, að hún hafði þráð þessa stund ekki síður en jeg, en óframfærni mín hafði fram að þessu verið sá múrveggur, er hindraði alt samband okkar í milli. En nú var hann hruninn. Nú var marki vona minna náð. Loksins hafði djarfasti draumurinn minn rætst. En eitt var undarlegt. Nú fanst mjer miklu minna til um hlutina en áður. Sælutilfinningin hvarf að miklu leyti við orð Hrefnu. Mjer virtist hinn rómantiski blær næturinnar minka og alt verða svo ítar blendin eiga kjör undir hendingunni; oft við strendur kurlast knör — kannske í lendingunni. undur óskáldlegt. Nú skildi jeg það, að ástin er ekki englasöngur einhvers staðar úti í Ijósvakanum, heldur hvatir og til- finningar jarðneskra vera. Við dvöldum þama lengi. Alt í einu tókum við eftir því, að farið var að birta, og fuglarnir hófu morgunsöng sinn. Rá- dýr og hirtir komu fram úr skógarþykn- inni en stukku brott aftur, er þau urðu okkar vör. Við stóðum upp. Hrefna studdi sig við arm minn. Þannig leidd- umst við inn til borgarinnar og komum þangað náiægt fótaferðartíma. Ár eru liðin. Hrefna er nú kaupmanns- frú einhvers staðar á Norðurlandi, en jeg er enn í Höfn og fæst við ýmsa hluti. Ástaræfintýrin mín eru orðin býsna mörg, ef til vill fleiri en vert er að hafa orð á, en mörg þeirra eru líka gleymd og grafin sem betur fer. En í hvert sinn, sem skógurin fer að grænka, og maísólin hellir geislaflóði sínu yfir borgina, vakna hjá mjer gamlar minningar. Þá dreymir mig stundum um fyrsta, og ef til vill hug- ljúfasta æfintýrið mitt, — æfintýrið í skóginum. St. Steindórsson frá HlöðuTn. Bezt mun þýða og létta lund, lífs þó stríð sé blandið: rækta í hlíð og græða á grund grein sem prýði landið. Jón Jónsson Skagfirðingur. Lausar vísur.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.