Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 12

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 12
154 NÝJAR KVÖLDVÖKUR tel eg það gæfu mína, því nú er mjer Ijóst, að það hvorki er auður né áhyggju- leysi, sem gerir það að verkum, að mað- urinn við enda lífs síns getur litið yfir það, sem liðið er, með glöðum hug, heldur er það samvinna heila og handar og með- vitundin um að hafa verið sjálfum sér trúr. — Eg var nærri því tuttugu og tveggja ára, þegar eg kom heim aftur til Hatch- stead, og þó eg naumast geti sagt, að eg hafi tekið miklum framförum í tiginna manna siðum, þá hafði eg það í fórum mínum nú, sem vel hefði getað freistað einhvers spjátrungsins til að óska sér hins sama í staðinn fyrir fjaðrir sínar og skraut. — Eg átti nú þrjú þúsund pund sterling í verksmiðju frænda míns sáluga í Norwich, og það var nóg til þess að gefa mér ríkulegar og vissar árlegar tekjur. Þetta gerði auðvitað Símon Dal talsvert virðingarverðari og þýðingarmeiri per- sónu í augum fjölskyldu sinnar og ann- ara þorpsbúa, en sami Símon hafði verið þrem árum áður. Nú gat eg farið til Lundúna; og öll þau gæði sem hin mikla borg gat látið í té. lét ímyndunarafl mitt umsvifalaust falla mér í skaut. Systur mínar aðvöruðu mig og gáfu mér ótal heilræði í gleði sinni, móðir mín bar nú ekki áhyggjur út af neinu öðru en því, að eg mundi láta soll- inn í borginni koma mér til að gleyma öllu því góða, sem hún hafði innrætt mér, og presturinn — hann klóraði sér á nef- inu og horfði á mig með augum, sem svo greinilega töluðu um spádóminn hennar Betty Nasroth, að eg gat ekki stilt mig um að skellihlægja. Allir litu á mig með svo mikilli virð- ingu, að það beinlínis var hætta á að eg færi að líta stórt á mig, en til þess að af- stýra þeirri hættu var ekkert ráð betra en að heimsækja Quinton lávarð, sem þá bjó heima á gózi sínu. Þegar eg stóð aug- liti til auglitis við hann, fór allur upp- þembingur fljótlega úr mér, og eg varð eins og eg átti að mér. Hjá honum var eg ekkert stórmenni; og enda þótt lávarð- ur minn tæki mér fjarska vingjarnlega að vanda, þá fann eg það, að hann hafði minna að segja um auðæfi þau, er eg hafði erft, en um hitt, hversu mjög mér var áfátt í allri framgöngu. Þó ráðlagði hann mér að fara til Lundúna, vegna þess, sagði hann, að þar sem maðurinn yrði að gefa olnbogaskot og venja sig við að taka olnbogaskotum allrar veraldar, lærði hann jafnframt að virða og meta það manngildi, sem hann ætti sjálfur, og þá lærði hann þann sannleika, að það, að teljast mikill maður heima í sinni sveit, væri stundum harla lítils virði, þegar út í veröldina kæmi. Eg var dálítið niðurlútur, þegar eg þakkaði honum öll þessi heilræði; og svo herti eg upp hugann og spurði hann, hvernig mistress Barböru liði. »Henni líður nú fremur vel«, svai’aði hann bros- andi — »og hún er orðin mesta hefðar- mey. Skáld-fíflin em meira að segja far- in að yrkja um hana kvæði. — En hún er góð stúlka, Símon«. »Það er eg líka sannfærður um, lávarð- ur minn!« hrópaði eg. »Það er fremur djarfur maður, sem þorir að vera viss um að nokkur sé það nú á dögum«, svaraði hann þurlega, »en samt er svo guði fyrir að þakka, að heiðarlegar manneskjur eru tih... Líttu á, Símon, hérna er afskrift af kvæði, sem henni var sent nýlega«. Hann kastaði pappírsmiða til mín. Eg leit sem snöggvast á hann og las orð eins og »glær ís«, »snjór, sem aldrei þiðnar«, »Venus«, »Díana« — og þar fram eftir götunum. »Efnið virðist dálítið undarlegt, lá- varður minn«, mælti eg. »0, já, ekki al- veg laust við það«, hann hló. »En passaðu þig nú, Símon, að þú aldrei ritir neitt, sem er verra!« »Má eg fá þann heiður, að

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.