Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 13

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 13
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 155 heimsækja mistress Barböru, lávarður minn?« spurði eg. »Við sjáum nú til, þegar þú kemur«, svaraði hann. — »Já, eg verð að sjá í hvaða félagsskap þú verð- ur. Segðu mér t. d. hverja aðra þú hefir hugsað þér að heimsækja, þegar þú kem- ur til Lundúna?« Hann leit fast á mig og hnyklaði brýrnar, en bros hans var ekki óvingjarnlegt. Eg hitnaði allur og fann að eg roðnaði upp í hársrætur. — »Eg þekki mjög fáa í Lundúnum, lávarður minn«, stamaði eg — »og engan sérlega vel«. »Nei, engan vel«, tók hann upp eft- ir mér, »það er satt«. Hrukkan milli brúna hans dýpkaði og brosið hvarf. Bráðlega brosti hann þó aftur, stóð á fæt- ur og klappaði mér á öxlina. »Þú ert góð- ur piltur, Símon«, sagði hann, »jafnvel þótt góðum Guði hafi þóknast að gera þig dálítið einfaldan. — En Guð varðveiti mig — hverjum ætti líka að geta dottið í hug að unglingar séu spekingar? Farðu til Lundúna og reyndu að kynnast fleira fólki — og um fram alt, lærðu að þekkja þá betur sem þú þekkir. — Farðu ávalt að ráði þínu eins og sómir heiðarlegum manni — og mundu það, Símon, að hvernig sem konungurinn annars kann að vera, þá er liann þó konungurinn«. Hann lagði sérstaka áherzlu á þessi síðustu orð, sem hann sagði urn leið og hann fylgdi mér til dyranna. »Hvað gat komið honum til þess að segja þetta um konunginn ?« sagði eg við sjálfan mig á leiðinni heim, því þrátt fyrir að allir — einnig úti um sveitir landsins — vissu vek að konungurinn lét setja menn í fangelsi fyrir engar sakir, þá fanst mer, að lávarðurinn hlyti að hafa haft ein- hverja sérstaka ástæðu til að aðvara mig. Og þegar ekki var tekið tillit til þess, sem Betty gamla hafði rausað — og það gerði lávarðurinn áreiðanlega ekki — hvað gat e8 þá haft að gera með það, hvernig eða hvað kóngurinn var fyrir utan, að hann var konungur landsins? Um þessar mundir voru talsverðar æs- ingar víðsvegar í landinu út af því, að hinn voldugi ráðherra og fágæti ritsnill- ingur, Clarendon jarl, hafði verið svift- ur öllum embættum fyrir ofsóknir fjand- manna sinna. Veitingahúsið var sam- komustaður þorpsbúa, og þangað drifu þeir saman, í hvert skifti, sem von var á póstinum frá Lundúnum, til þess að ræða nýjungarnar. Sannast að segja hafði eg engan áhuga fyrir slíkum málum, en af hreinu og beinu iðjuleysi gekk eg þó á fundina með gömlu körlunum, hlustaði á kappræður þeirra, og undraðist með sjálfum mjer yfir því, að málefni, scm ekkert snertu okkur eins og við vorum í sveit komnir, skyldu geta fylt þá með hita og ofsa. Þannig atvikaðist það, að eg einum tveim dögum eftir að eg hafði talað við Quniton lávarð, sat mitt á meðal þorps- búa í veitingahúsinu, »Konungur og kó- róna«, með ölkrús fyrir framan mig, og hlýddi á ræður manna; pósturinn kom þá að dvrunum, sté af hestinum og til undrunar bæði fyrir sjálfan mig og aðra kom hann rakleiðis til mín með gríðar- stórt innsiglað skjal. Nú var það mjög sjaldgæít, að eg fengi bréf með póstin- um, en það merkilegasta var þó, að mað- urinn sagði, að sér bæri ekkert gjald fyr- ir bréfið, það væri konunglegt embættis- bréf og því gjaldfrítt. Hann talaði frem- ur lágt, og hávaði var mikill alt í kring, en á einhvern hátt náði þó nafn konungs- ins eyra prestsins. Hann stökk á fætur, hljóp til mín og hrópaði: »Hvað var hann að segja um kónginn, Símon?« Hann sagði, að þetta stóra bréf væri komið til mín sem konunglegt embættisbréf«, svar- aði eg, »og að eg þessvegna ætti ekki að borga neitt fyrir það«. Eg sneri bréfinu 'T 20*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.