Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 18

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 18
160 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og mjög fáar hennar líkar í siðprýði«. Eg flýtti mér þá að láta þess getið, að eg þekti Barböru frá fornu fari og væri vin- ur hennar. Hann hló og svaraðí: »Ef það er tilætlun yðar að verða eitthvað meira en vinur hennar, þá verðið þér að hraða yður, því hana vantar ekki háttstandandi biðla — sem stendur er hér einn mjög tiginn herramaður, sem andvarpar eftir ástum hennar svo hátt, að það heyrist yf- ir alla borgina!« Eg hlustaði á þessi tíð- indi með athygli. Eg var stoltur hennar vegna, en fann þó talsvert til afbrýðisemi, þó eg léti ekki á neinu bera og var í þann veginn að spyrja félaga minn, hvort hann hefði aldrei heyrt getið um neina, sem héti Cydaria, þegar hann alveg óvænt sneri samtalinu í aðra átt og spurði kæruleysislega: »Eg býst við, að þér telj- ið yður til meðlima ensku kirkjunnar?« »Auðvitað!« svaraði eg brosandi og dá- lítið undrandi. »Þér haldið þó ekki, að eg sé annaðhvort prédikari eða páfatrúar?« »Afsakið, afsakið, ef spurning mín hefir móðgað yður«, mælti hann hlægjandi, »en það eru svo margir, sem hafa undarlegar skoðanir á trúarlegum efnum nú á dög- um«. »Því miður«, svaraði eg alvarlega, »landið hefir líka fengið að kenna á því«. »Já, og líklega fær það að kenna á því enn«, sagði hann eins og dreymandi. Eft- ir stundarþögn fór hann svo að lýsa líf- inu, eins og það gekk í lífvarðarsveit konungsins, þar sem eg átti að vera, og að lokum mælti hann: »Afsakið forvitni mína, en hver hjálpaði yður til að kom- ast að? Á þessum tímum er það svo sjald- gæft að tillit sé tekið til verðleika manns- ins sjálfs einvörðungu«. Eg var í þann veginn að segja honum upp alla söguna, en eg hætti við það, fyr- irvarð mig einhvernveginn ósjálfrátt — þá vissi eg ekki, hversu margir menn áttu upphefð sína konum eingöngu að þakka. Eg sagði honum því sögu um vin, sem ekki vildi láta nafns síns getið; og eftir að við enn um stund höfðum rætt um ó- viðkomandi efni, notaði eg dálitla þögn, sem varð, til þes að koma fram með hina mikilvægustu spurningu mína: »Ekkí vænti eg að þér hafið heyrt getið um stúlku, sem gengur undir nafninu Cy- daria?« — Eg er hræddur um að eg hafi roðnað. »Cydaria? Hvar hefi eg nú heyrt það nafn? Nei, eg þekki enga — en þó...« hann þagnaði við, svo skelti hann á lærið og hrópaði: »Jú, nú veit eg — eg var viss um að eg hefði heyrt það áður. Það er úr leikriti — já, úr »Keisarinn á Indlandi«. Eg ímynda mér að þessi stúlka yðar hafi gengið undir dulnefni«. »Mér hefir dottið það í hug líka«, sagði eg og reyndi að leyna vonbrigðum mínum. Hann leit snöggvast forvitnis- og rannsóknaraug- um til mín. En hann reyndi ekki til að hafa neitt meira upp úr mér. Við fórum nú að nálgast Joörgina og hugur minn fyltist svo af öllu, sem fyrir augun bar, og því sem eg mundi eiga 1 vændum, að það var ekki einu sinni rúm fyrir Cydariu. Það þýðir ekkert að reyna til að lýsa slíku. Hver og einn hlýtur að muna þær undarlegu tilfinningar, sem. gagntóku hann, þegar hann í fyrsta sinn á æfinni sá stórborg, — þessar endalausu húsaraðir og fólksstraumurinn á götun- um. — Það gerði mig þögulan — og eg gleymdi félaga mínum, þangað til mér varð litið á hann og sá, að hann virtí undrun mína fyrir sér með ánægjubrosi; svo fór hann að benda mér á og nefna hús og staði, sem við fórum fram hjá, sýndi mér hverfin, sem eldsvoðinn mikli hafði herjað og benti mér á, hversu skjótlega þau voru bygð upp aftur, en undrun mín og aðdáun uxu stöðugt. »Já«, mælti hann, »þessi borg hefir marga fjársjóði að geyma fyrir þann, er finnur lykilinn að þeim«. Bráðlega náðum við gestgjafahúsi

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.