Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Síða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Síða 23
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 165 sem Darrell skýrði mér frá. Eg sat við hliðina á honum og hann sagði mér nú það, sem hann vissi um hana; það var í raun og veru lítið annað, en hið rétta nafn hennar; en það nafn var þekt af allri þjóðinni, það var sungið í vísum og dregið fram og aftur í þvaðri almenn- ings. Stundum heyrðist það einnig nefnt í sambandi við mál, sem mikils vörðuðu fyrir velferð ríkisins, því á þessum und- arlegu tímum virtist heimurinn vera eins og leiksvið í höndum djöfulsins. Voldug ríki :— já, og heilög kirkja háðu baráttu sína á bak við slör leikkonunnar, eða tóku andlit fallegrar stúlku fyrir bandamann. ... Lafði Castlemaine og Nelly Gwyn.... höfðum við ekki öll sömun lesið um þær og heyrt og hneykslast. — Sjálfur prest- urinn heima hafði minst á Nelly við mig, en hann vildi samt ekki dæma hana hart, því Nelly var mótmælendatrúar. — Af sömu ástæðum hefði eg getað fyrirgefið henni mikið, því að undanteknum Darreil vini mínum, hataði eg páfatrúarmenn meira en nokkra aðra menn, nema ef vera skyldi hina ofstækisfullu trúboða.... Já, eg mundi hafa fyrirgefið Nelly Gwyn alt, dáðst að fegurð hennar, hlegið að fyndni hennar — eg hafði satt að segja hugsað mér að fá tækifæri til þess alls, þegar eg kæmi til borgarjnnar, því eg var léttúðugur, eins og flestir unglingar, og mundi ekki hafa forðast leikhúsið. En þá hafði eg ekki vitað, að eg spriklaði sjálf- ur í netinu. — En gat eg fyrirgefið henni nú — reiði mína, og blygðun — hjarta- sárið mitt, brostna ástardrauma — og að hún hafði gert mig að undrum í aug- um manna? Eg gat fyrirgefið henni alt, það sem ’hún var nú.... En gat eg fyrir- gefið lienni, að hún hafði einu sinni ver- ið Cydaria mín? »Já, úr því sem nú er komið er ekkert undanfæri, þér verðið að berjast«, mælti Darrell, »þótt þér hefðuð ekki á réttu að standa«. Hann tók blíðlega í hendina á mér og andvarpaði. »Já, eg verð að bei-j- ast«, sagði eg — »og á eftir — ef það þá verður nokkuð á eftir — verð eg að fara til Whitehalk. »Til að taka við stöðunni?« spurði hann. »Til að afsala mér henni, mr. Darrelk, svaraði eg dálítið hátíð- lega. »Þér haldið þó ekki, að eg vilji taka við henni eftir þetta?« Hann þrýsti hönd minni og sagði með innilegu brosi: »Þér eruð úr sveitinni. — Ekki einn af tíu mundu hafa látið þetta á sig fá«. »Já, eg er úr sveitinnk, svaraði eg. — »Það var í sveitinni, sem eg þekti Cy- dariu«. S t ö I Heimur mörgum hossa kann hátt í borgarsölum, en heilladrýgsta hamingjan hún býr upp í dölum. k u r. Ræða þar við rekk og snót raddir náttúrunnar, þar er landsins þrifa rót þar eru heilsubrunnar. Jón Jónsson Skagfirðingur.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.