Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 25

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 25
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 167 Ljóða sig sem túlk, þegar þorparinn alt í einu leit fram í dómsalinn. Hann hafði sjeð dauðatákn fjelagsins og hann hætti. iSvo hnje hann niður í stólinn og reri fram og aftur, snöktandi og hveinandi. Enginn megnaði að draga úr honum orð framar. En atburður þessi hafði haft sín áhrif. Það virtist ómögulegt að efast um sök fanganna og það því fremur, sem það sannaðist að Maruffi hafði leigt búðar- holu Larubios og lagt á ráðin með morðið. Smátt og smátt skýrðist málið í smáu og stóru og ástæðan fyrir morðinu var lýðum ljós — allir vissu um starf Don- ellys í Mafia málinu. Jafnvel Balke, sem hafði verið mjög svartsýnn í unphafi málsins varð að viðurkenna að hið ame- riska rjettarfar hefði sýnt dugnað sinn. Allan þennan tíma hafði kunningsskap- ur þeirra Vittoriu haldist óbreyttur. Þær Oliveta biðu ætíð fullar eftirvæntingar eftir frjettunum úr rjettarsalnum, en hún forðaðist að vera ein með honum. Hann sá alls ekki Myru Nell; hún hafði alt í einu brugðið sjer í heimsókn til ættingja í Mokile. Af öllum þeim sem fylgdu yfirheyrsl- unum af logandi áhuga, var Bernie Dreux ef til vill áfjáðastur. Hann talaði ekki um annað. Þegar sækjandinn hafði staðið sig vel var hann himinn lifandi glaður, en Þegar verjandinn fjekk orðið og tók að Verja sakborningana af snild þá varð hann mállaus af bræði. Hann tók vörn hans sem persónulega móðgun. »Heyrðu, þeir reyna að gera þig að lygara! Það er ekki tilætlun laganna að leyfilegt sje að efast um orð heiðurs- ^anna. Ef jeg væri dómarinnn, mundi leg hætta yfirheyrzlum og láta lögreglu- stjórann hengja alla hina ákærðu ásamt verjendum þeirra.« »Þeir verða ekki látnir lausir.« Lernie hristi höfuðið þunglyndislega: »Menn segja, að það sje reynt að múta kviðdómnum. »Því get eg tæplega trúað«. »Jeg et svarið, að þetta er satt«. Þótt Blake reyndi í lengstu lög að trúa ekki þessum kviksögum, heyrði hann þær loks svo oft og frá svo mörgum, að hann fór að gerast órólegur. Allur bærinn beið með mestu eftir- væntingu eftir síðustu yfirheyrslunum og alt landið fylgdi með athygli þessu máli, sem smátt og smátt fjekk alþjóðaþýðingu. Síðasta daginn sátu þeir Bernie og Blake saman. Þegar sækjandinn hafði endað ræðu sína, hrópaði Dreux sigri- hrósandi: »Nú höfum við sigrað«. »En þegar verjandinn hafði lokið máli sínu, sneri litli maðurinn sjer að sessu- naut sínum og mælti í reiði: »Guð minn góður! Þeir eru sama sem lausir. Bara að kviðdómurinn verði nú ekki lengi að ákveða sig«. En kviðdómurinn var mjög lengi, þrátt fyrir það þótt blöðin og almenningsálitið hefði lýst yfir því, að málið væri einsýnt. Það var fyrst daginn eftir, sem kvið- dómurinn ljet þau boð út ganga, að dóm- urinn væri genginn og rjettarsalurinn fyltist í skyndi. Sagan um Cæsar Maruffi — að hann væri tvær persónur — hafði flogið um alt, allir vissu að hann var hinn hræðilegi Belisario Cardi og jók þetta mjög á aðsóknina. Blake og Bernie voru komnir í sæti sín löngu áður en fangarnir voru færðir inn. Allir horfðu í eftirvæntingu á dyr þær, sem kviðdómurinn átti að ganga inn um. Það heyrðist vagnskrölt, fótatak ut- an dyra og svo komu fangarnir ásamt varðmönnunum. Maruffi gekk á undan, hnarreistur, en Normando síðastur, studdur af tveim lögregluþjónum. Hann var algerlega lamaður af hræðslu; hann gat varla í fæturna stigið og froðufelti af

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.