Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Blaðsíða 28
170 NÝJAR KVÖLDVÖKUR að vilja hennar — eins og jeg í dag ætla að fara að vilja fólksins«. »Vilja fólksins! Þú veist að það hefir engah vilja. Það gerir það sem leiðtogar þess segja að það skuli gera«. »Nafn mitt stendur undir ávarpinu. Mjer þykir leitt, að jeg get ekki uppfylt bæn þína«. »Ætlar þú að láta skjóta þá eins og ó- argadýr í búri?« »Þessir ellefu menn eru ekki lengur menn. Þeir eru sjúkur blettur á þjóðlík- amanum, uppspretta smitunar, sem verð- ur að útrýma. Þeir eru lagaleysi og of- beldi; að gefa þeim frelsi væri glæpur, að fá þeim vopn í hendur væri sama og að auka að nýju á glæpaverk þeirra«. »Það er barn meðal þeirra, viltu líka hafa dauða þess á samvisku þinni?« »Jeg lofaði Gino, að honum skyldi ekki verða gert neitt ilt, og það loforð skal jeg með Guðs hjálp efna«. »Hvernig dettur þjer í hug, að þú get- ir stöðvað tryltan múginn og fengið hann til að þyrma lífi eins fórnardýrsins?« Hann ypti öxlum. »Þú mátt ekki taka þátt í þessari slátrun«, hrópaði hún. »Þú gerir það fyrir mig!« »Og jeg get ekki gert það sem þú biður um«. Hún horfði á hann mjög æst. Hún var náhvít í framan. »Þú hefir sagt að þú elskaðir mig. Geturðu ekki gert þetta fyr- ir mig? Jeg er aðeins kona, jeg get ekki þolað að hugsa til þess, að þú takir þátt í þessu hræðilega blóðbaðk. »Margherita!« hrópaði hann. »Geturðu ekki sjeð, að jeg á einskis úrkosta? Jeg get ekki gefið eftir þótt í húfi værir þú sjálf og ást þín«. »Jeg gæti ekki snert þá hendi, sem blettuð væri af blóði varnarlausra manna — ekki einu sinni í vinsemd, skilurðu?« »Jeg skil!« Hann var náfölur. Hún skalf af æsingi og fálmaði eftir dyrunum, en hann stóð eins og steinn og horfði á eftir henni. »Vertu sæl!« sagði hann. »Vertu sæll!« mælti hún hljóðlega. »Jeg hefi gert það sem jeg gat. Þú ert maður, og verður að gera það sem þjer finst rjettast. En Guð varðveiti þig fyrir þess- um blóðsúthellingum«. Löngu áður en tíminn kom, fyltust nærliggjandi götur við líkneskjuna af fólki. Allir menn gengu fram hjá skrif- stofum sínum og búðum var lokað. öll umferð hætti umhverfis líkneskjuna og gluggar, veggsvalir og þök húsanna voru full af fólki. Það var indæll morgunn; brennheitt sólskin, og blóm og runnar ilmuðu. Mannfjöldinn virtist heldur eigi vera í því skapi, að hann hefði blóðsúthellingar í hyggju. Aðallega voru þarna löghlýðnir borgarar, sem heilsuðu hver öðrum mjög vinalega. í alvarlegum, gáfulegum andlit- um þeirra var eigi unt að sjá grimd eða villimensku. Þegar klukkan sló 10, sáust nokkrir menn brjóta sjer braut að líkn- eskjunni og var þeim hvarvetna tekið með hrópum. Var Norvin Blake einn af þeim. Þegar einn af mönnum þessum steig upp á fótstall líkneskjunnar og fór að tala, datt alt í dúnalogn. Það var Black- ,mar dómari og heyrðist til hans yfir alt torgið. Hann rakti ástæðurnar fyrir þessum fundi og sagði sögu La Mafia í New Or- leans. »Svo langt er nú komið«, mælti hann »að við erum neyddir til að verja okkur sjálfir. Þegar lögin bregðast verður al- menningur að grípa til sinna ráða. Fólk- ið hefir verið kallað saman ekki í leynd og fyrir lokuðum dyrum, heldur í hjarta bæjarins um hábjartan dag, til þess að ákveða hvað við sem heiðarlegir menn eigum að gera til þess að frelsa líf vort og

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.