Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 31

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Qupperneq 31
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 173 dyrnar. En eikardyrnar stóðust árásirn- ar og eftir stutta ráðstöfun fóru þeir að litlum hliðardyrum, sem voi’u á múrnum beint á móti þar sem stúlkurnar voru. Þær voru alls ekki eins traustar eins og stærri dyrnar og þótt þeim væri loka með slagbröndum og lásum, ljetu þær undan og einn af öðrum hurfu mennirnir inn. Aðeins tveir urðu eftir og sneru baki að dyrunum til þess að hindra að múgurinn træðist inn. »Komdu, við skulum fara. Við erum búnar að sjá nóg«, hrópaði Vittoria og reyndi að draga Olivetu með sjer ,inn í húsið. En hún vildi ekki fara, og virtist alls ekki heyra, að við hana væri talað, hún horfði starandi hræðsluaugum á hin- ar brotnu dyr. Hún hvíslaði í sífellu ó- skiljanlegum orðum og fingur hennar þrifu um pilana í grindunum eins og járnklær. »Komdu!« stundi Vittoria. »Við fórum ekki hingað til að sjá þessa hræðilegu sjón! Oliveta, hlífðu sjálfri þjer!« f kyrð þeirri sem nú var orðin, varð rödd herin- ar svo há og skerandi, að menn á næ-tu veggsvölum sneru sjer við og horfðu for- vitnislega á hana. Nokkur stund leið í grafarþöng, svo beyrðust högg frá fangelsinu. MilJi þeirra heyrðust ópin í föngunum. Einhver sagði: »Nú eru þeir í göngunum. Hitt tekur ekki langan tíma«. Stuttu síðar heyrðust drunur eins og af neðanjarðarsprengingu og endurtók þetta sig hvað eftir annað. Við skothríð þessa þyrptist múgurinn ^neð hásum gleðihrópum að hinum þrönga inngangi, en þar eð vörðurinn hindraði mngöngu, ljetu menn sjer lynda að æpa gleðióp við hvert skot. Allar götur um- bverfis fangelsið voru eins og bylgjandi haf. Menn sveifluðu handleggjunum og septu og konur og börn grjetu af æsingi og eftirvæntingu, veífuðu svuntum og höttum. Meðan á þessum hræðilegu, ómannúð- legu látum stóð, megnuðu stúlkurnar ekki að hreyfa legg nje lið. Norvin Blake var ef til vill sá eini, sem gert hafði sjer Ijóst hve langt æstur múgur manna getur gengið og fjekk hon- um það mikillar áhyggju. Þessvegna skip- aði hann sjer í brjóst fylkingar, til þess að geta sefað æsing fjelaga sinna. Bernie Dreux hafði með ræðu sinni losað hann við að taka að sjer leiðtoga- starfið og var hann honum mjög þakk- látur. Hann hafði fylgt vini sínum til þess að vernda hann og hjálpa honum ef á þyrfti að halda, en litli maðurinn reyndist ágætlega hæfur til að spjara sig sjálfur. Það var hann sem fyrstur fór yfir þröskuld fangelsisins og gerði sig þannig að skotspæni ef til hefði komið. Blake hafði elt hann og komið að honum með skammbyssuna við enni fangavarð- arins, kúgandi hann til að láta lykla dyfl- issunnar af hendi. Inni í fangelsinu mætti þeim aftur ný hindrun — járnslegnar dyr ■— og meðan þeir fengust við að brjóta þær upp, heyrðu þeir hurðaskelli, fótatak flýjandi manna og hræðsluhróp, sem var sönnun þess, að föngunum hafði verið slept laus- um, svo þeir gætu forðað sjer eins og best þeir gætu á þessari hættustundu. Glundroðinn var enn meiri innan dyra en utan. Það voru ekki einasta Sikiley- ingarnir sem báðu hástöfum fyrir frelsi sálar sinnar, heldur einnág hinir fang- arnir, sem nú hjeldu að dagur hefndar- innar væri kominn og æptu og kveinuðu. Menn og konur, blámenn og hvítir, þutu fram og aftur um gangana í leit eftir ör- uggum felustöðum. Hræðsla er smitandi; öll byggingin sauð og logaði af ofsafenginni hræðslu. Sumir fjellu á knje og báðust fyrir og

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.