Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 36

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 36
.178 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Það var komið rökkur þegar Margher- ita Ginini var búin að búa niður farang- ur sinn. Dagstofan var alveg húsgagna- laus og ekkert í henni nema kassar og kofort dreifð um gólfið. Margherita gekk út að glugganum og leit út á götuna. Hún hugsaði með sorg um það, að nú þegar Oliveta færi heim, mundi líf sitt verða lokað innan þröngra, kaldra og grárra klaustursmúra; hún mundi aðeins sjá sjúkdóm og raunir kringum sig. — Klukka ein í nærliggj- andi klaustri tók að slá og fanst henni þá sem kæmi kökkur í háls sjer. Hún fór ó- sjálfrátt að skjálfa. Raddir barnanna neðan af götunni virtust henni háð eitt í sinri garð. Hún mintist þess nú, að hún hefði sjeð Noi’vin Blake leika sjer við börn. Það var barið að dyrum, og hún geklc þreytulega fram að dyrunum til að ljúka upp, en hrökk saman, er hún sá hver það var sem kom. Töfrar rökkursins höfðu fært henni hann, þrátt fyrir ótta hans. En hann gat engu orði upp komið og gat tæplega heilsað. Hann horfði undrandi kringúm sig. »Hvað er þetta?« spurði hann. »01iveta fer heim til Sikileyjar. Við verðum að kveðjast«. »Og þú?« »Á morgun — jeg fer í klaustrið«. »Nei, nei«, hrópaði hann, »þú mátt það ekki. Jeg hefi barist stundum saman við sjáífán mig að koma hingað. Elskan mín! Sendu mig ekki burtu fyr en þú hefir heyrt alt. Stundum finst mjer, að það hafa verið mig sem dreymdi, þegar þú viðurkendir, að þú elskaðir mig, því það er svo ótrúlegt. Jeg hefi alt af elskað þig síðan fyrsta daginn á Terranova. Jeg hefi ekki getað talað fyr. Þú baðst mig um að taka ekki þátt í morðunum. Jeg varð að neita þjer. Jeg hefi reynt að verða maður, ekki mín vegna, ekki vegna þess hvað almenningur segði, en vegna þín —« »En hvað um Myru Nell?« »Myra Nell er gift!« Hún horfði á hann full af undrun og hamingju. »Já«, endurtók hann, »hún er gift. Hún hefir verið gift síðan á grímudansleikn- um. En eg vissi það ekki. Jeg hefi ekki getað komið til þín fyr, jeg var bundinn vegna þess hræðilega misskilnings. Og nú ej- jeg hræddur —«. »Hvað ertu hræddur við?« heyrði hún sjálfa sig segja. Hamingja augnabliksins var svo mikil að hún ljek sjer að henni til þess að missa einskis af henni. Hún sagði ekki það, sem lá á vörum henni. »Getur þú elskað mig þrátt fyrir hug- leysi mitt við Terranova? Jeg gæti skilið, að þú ekki gætir gleymt því, en — jeg elska þig — jeg hefi reynt svo mikið til að verða þín verðugur jeg gat ekkí gert það, sem þú baðst mig um um dag- in, en Guði sje lof að hendur mínar eru hreinar«. Hann rjetti fram hendurnar og honum til undrunar gekk hún til hans og þrýsti þeim báðum að hjarta sjer og þá fyrst skildi hann, að hann var bænheyrður. Raddir barnanna bárust upp til þeirra í angandi, kyrlátu rökkrinu og þau tóku alls ekki eftir Olivetu, fyr en hún stóð hjá þeim. »Guð veri lofaður!« sagði Oliveta um leið og hún rjetti þeim hendurnar. »Það var eitthvað sem sagði mjer, að jeg mundi ekki fara ein heim til Sikileyjar«. Endir.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.