Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 43

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Page 43
NÝJAR KVÖLDVÖKiUR 185 og það, sem hann sér, lítur hann með samúð og skilningi höfundarins. Þriðja og síðasta sagan, »Mannleg náttúra«, er skemtisaga — en um leið talsvert meira en venjulega er skilið við skemtisögu. Hún lýsir, eins og reyndar alt, sem Hagalín ritar, hinni djúpu sam- úð hans með og skilningi á einmitt mann- legri náttúru, hún er leikur hraustleik- ans á takmörkum lífs og dauða. Allar lýsingar hennar eru ágætar, samtöl öll eðlileg, en hæfilega dregið úr, og skiln- ingurínn á sálarlífi hvers einstaks manns, sem frá er sagt, er glöggur og samræmisfullur. — Það eru ósviknir vestfirzkir sjómenn, og eg býst við að hver og einn, sem einhver kynni hefir af þeim haft, kannist við þá, enda er það óhætt, því enginn þarf að bera kinnroða fyrir þá. — Þótt Guðmundur Hagalín enn sé ungur sem rithöfundur og sem maður, þá eru sögur hans orðnar æði margar og hafa aflað honum vinsælda að verðleikum. Styrkur hans hefir aðallega verið — og er enn — í smásögunni. En þegar á alt er litið, mun hann aldrei hafa náð betri tökum á efnum sínum en einmitt í þess- ari nýju bók, það mun því vera alveg ó- hætt að telja hana hans beztu, enn sem komið er. F. Á. B. Frá bókamarkaðinum. Nýjar bækur eru nú óðum að berast á markaðinn. Þar á meðal allmargar ljóða- bækur. Ný kvæði eru út komin eftir Davíð Stefánsson, en ekki hafa N.-Kv. fengið þau enn þá. En af því, sem N.-Kv. hefir verið sent, kveður mest að nýrri Ijóðabók eftir Jón Magnússon, er nefnist Hjarðir. Áður hefir komið út eftir þenn- an höfund ljóðabókin Bláskógar. Jón Magnússon kveður flest vel og er á framfaraskeiði. í bókmentayfirliti þ. á., er birtast mun í byrjun næsta árg. N.- Kv., verður ritað nánar um þessa bók hans. Nýjar sögur eru og komnar á markaðinn eftir Jakob Thorarensen, er nefnast Fleygar stundir. Á þær verður og minst nánar seinna. Stafrofskver eftir Egil kennara Þor- láksson er nýútkomið. Er það með mörg- um myndum, nál. 60 að tölu. Letrið er mjög stórt, miklu stærra en á öðrum staf- rofskverum. Myndafjöldinn og stærð let- ursins hefir mikið að segja, Til þess að auðvelt sé að kenna börnum að lesa. Er kverið að öllu hið álitlegasta og líklegt til að ná miklum vinsældum. Þá eru og að koma á markaðinn Rit- reglur eftir Freystein Gunnarsson, mjög skýrar og ítarlegar. Verða þær að sjálf- sögðu teknar fyrir kenslubók í alla skóla. En líka verða þær nauðsynleg handbók. Freysteinn hefir og í smíðum nýja Staf- setningarorðabók, sem á að koma út í vet- ur, enda er nú orðin brýn þörf fyrir slíka bók. í þessum mánuði á að byrja að prenta æfisögu Snæbjarnar í Hergilsey, eftir sjálfan hann. Verður sú bók áreið- anlega eftirsótt af öllum lesandi mönn- um, því hún er viðburðarík og hefir að geyma mikinn þjóðlegan fróðleik. 24

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.