Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 45

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1929, Side 45
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 187 60. Luxembourg. Höfuðborg hins litla stórhertogadæmis Lux- embourg á sér æfagamla sögu. Vegna þess að landið liggur milli Belgíu, Þýskalands og Frakk- lands er þar bæði töluð þýska, flæmska og franska, en síðan heimsstyrjöldin leið þó mest hið síðastnefnda. Ibúar alls landsins eru 265. 000 í höfuðborginni. Áður fyr voru við borgina Luxembourg voldugar víggirðingar, sem bygðar voru af hinum franska verkfræðing Vauban á 17. öld, en nú eru þær lagðar niður og þar sem þær voru áður er nú búið að byggja skemtigarða og leggja stræti. — Meðan á heimsstyrjöldinni stóð, var Luxembourg alsett þýskum hersveitum. 61. Tegucigalpa. Hún er höfuðborg í Honduras í Mið-Ameríku, og hefir 35.000 íbúa. — 62. San José. Höfuðborg' í Costa Rica í Mið-Ameríku og hefir 20.000 íbúa. Sex borgir, sem áður hafa verið taldar hjer að framan, nefnilega: San Salvador, Guatemala, San José, Pawama, Managua og Tegucigalpa, eru allar í Mið-Ameríku. Eru jarðskjálftar þar tíðir mjög og húsin þess vegna lág. Helmingur eða meir af íbúunum eru Indíánar eða kyn- blendingar. 63. Reykjavík. er höfuðstaður Islands. Stendur hún við Faxa- ilóa sunnanverðan, á Seltjamamesi norðanverðu. í upphafi bygðist bærinn milli tveggja hæða á Sandeyri milli sjávarins og Tjamarinnar. En bænum óx fiskur um hrygg og stækkaði mikið, varð stór um sig að tiltölu við fólksfjölda og flutti sig þá út á alla vegu. Húsin voru lítil, úr timbri og steini (grásteini), þar til nú á síð- ari árum, að risið hafa upp steinbyggingar, og sumar þeirra all-stórar, úr steinsteypu, sem nú er orðið aðalbyggingarefni, þegar hús eru reist I Reykjavík. í miðjum bænum er Austurvöllur. Er það fer- hymdur grasflötur, og á honum miðjum er standmynd úr eir af myndhöggvaranum Thor- valdsen, gefin hingað af Kaupmannahafnarbæ á þúsundára-afmæli landsins 1874. Rétt hjá Aust- urvelli er dómkirkjan úr múrsteini, bygð 1847. 1 henni ,er skírnarfontur úr marmara eftir Thorvaldsen, hið mesta listaverk. Til vinstri handar kirkjunni, þegar inn er gengið, er minn- ismerki úr steini yfir sálmaskáldið Hallgrím Pétursson, en til hægri líkan úr eir á stein- stöpli af Jóni biskup Vídalín. — Rétt hjá dóm- kirkjunni er Alþingishúsið. Er það stór bygg- ing úr höggnum grásteini. Af öðrum opinberum byggingum má nefna Safnhúsið, sem er stór og mikil bygging úr steini, stendur það við Hverfisgötu rétt fyrir ofan Arnarhól. Þar er Landsbókasafnið með 116,000 prentaðra bóka og 7500 handrit, Náttúrugripasafnið, Fornmenja- safnið og Þjóðskjalasafnið. Er nú hús þetta að verða helzt til lítið fyrír þessi söfn öll, því þau hafa vaxið mjög á síðustu árum. — Málverka- safn það, er landið á, er í Alþingishúsinu. — Þá má nefna Landsspítalann og Bamaskólann nýja, sem nú er langt komið að byggja. Standa bæði þessi hús í Skólavörðu-holtinu, annað sunnan og austan, hitt norðan og austan í því. Barnaskól- inn er líklega stærsta bygging landsins, og kost- ar um 1 milj. kr. — Stjómarráðshúsið er frem- ur lág bygging úr steini, stendur það milli Hverfisgötu og Laugavegs. Fyrir framan það eru standmyndir úr eir af Jóni Sigurðssyni og Kristjáni konungi 9. Einnig er Landsbanki Is- lands mikil og stór steinbygging og Latínu- skólinn (Mentaskólinn) stór bygging úr timbri. — Af stórbyggingum einstakra manna og fje- laga má nefna hús Þorsteins Schevings lyfsala á horninu á Austurstræti og Pósthússtræti, Eimskipafjelgashúsið, hús Sambands ísl. Sam- vinnufjelaga, Laugavegsapotek, hið nýja hótel Jóhannesar Jósefssonar, hús danska sendiherr- ans o. m. fl. Reykjavík er elsta bygð landsins, sem menn hafa sögur af, því að Ingólfur Amarson, fyrsti landnámsmaður á Islandi, reisti þar bæ sinn

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.