Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Page 22

Búskapur hins opinbera 1992-1993 - 01.04.1994, Page 22
króna. Um 16,2% útgjaldanna voru Qármöguð af heimilunum, en þáttur heimilanna í kostnaði heilbrigðisþjónustunnar hefur farið vaxandi allra síðustu árin. Þá má lesa að á föstu verði hafa heilbrigðisútgjöldin vaxið um tæplega 2% síðustu þrjú árin, en á mann hafa þau hins vegar dregist saman um ríflega 1 prósent. 5.3 Almannatryggingar og velferóarntál. Undir þennan málaflokk almannatryggingar6 og velferðarmál falla annars vegar ýmis konar tekjutilfærslur til einstaklinga og samtaka vegna elli, örorku, veikinda, tekjumissis, fæðinga, atvinnuleysis o.fl., og hins vegar ýmiss konar velferðarþjónusta einkum við börn, aldraða og fatlaða. Umsjón með tekjutilfærslum er að mestu í höndum almannatrygginga. Velferðarþjónusta við böm og aldraða er hins vegar að mestu á vegum sveitarfélaga og velferðarþjónusta við fatlaða á vegum ríkisins. Tafla 5.7 Útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðamála 1990-1993 í milljónum króna Brt. Hlutfall afVLF 1990 1991 1992 1993 1990 1991 1992 1993 1. Sjúkra-, mæðra- og örorkubætur 1.685 1.802 1.820 1.901 0,48 0,47 0,47 0,48 2. Elli-, örorku- og ekkjulífeyrir 11.151 12.791 13.516 14.443 3,15 3,33 3,53 3,63 3. Atvinnuleysisbætur 1.191 1.064 2.004 2.649 0,34 0,28 0,52 0,67 4. Dagvistun, dvalarheimili o.þ.h. 3.178 3.888 4.316 4.583 0,90 1,01 U3 1,15 5. Málefni fatlaðra 1.772 1.973 2.092 2.180 0,50 0,51 0,55 0,55 6. Önnur félagsmál 2.878 3.268 3.487 3.065 0,81 0,85 0,91 0,77 Almannatrygg. og velfcrðarmál 21.856 24.786 27.234 28.821 6,17 6,45 7,11 7,25 í töflu 5.7 er að finna yfirlit yfir útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála á árunum 1990-1993. Þar má lesa að rúmlega 28,8 milljarðar króna fara til þessa málaflokks á árinu 1993, eða um 18% af útgjöldum hins opinbera. Þá sést að útgjöldin hafa aukist verulega síðustu árin, en þau mældust 7,25% af landsframleiðslu árið 1993 en voru 6,17% af landsframleiðslu þremur árum áður. Þessi aukning skýrist fyrst og fremst af auknum bótagreiðslum vegna aukins atvinnuleysis og auknum greiðslum vegna Qölgunar elli- og örorkulífeyrisþega. Tæplega þrír Qórðu hlutar þessara útgjalda eru tekjutilfærslur til heimilanna. Um 23% eru samneysluútgjöld í ýmsu formi og afgangurinn er Qárfestingarútgjöld. Tekjutilfærslur hins opinbera til velferðarmála voru rúmlega 21 milljarður króna á árinu 1993 eða rúmlega 5,3% af landsframleiðslu. Þar af fóru ríflega tveir þriðju hlutar til elli-, örorku- og ekkjulífeyrisþega eða um 141/2 milljarður króna7. í sjúkra-, mæðra- og örorkubætur fóru um 1,9 milljarðar króna, eða um tíundi hluti tilfærslnanna, og í atvinnuleysistryggingar ríflega 2,6 milljarðar króna. Samneysla hins opinbera í velferðarmálum var rúmlega 6 milljarðar króna á árinu 1993. Þar af var samneysla sveitarfélaga um tveir þriðju hlutar, sem var að mestu í formi umönnunar við annars 6 Hugtakið "almannatryggingar", eins og það er notað hér, er mun þrengra hugtak en í hinni venjulegu merkingu. Hér nær það einungis til beinna tekjutilfærslna til einstaklinga og samtaka, en ekki til þeirrar margvíslegu þjónustu sem hið opinbera veitir og sem fellur undir almannatryggingakerfið, eins og niðurgreiðslur á lyfjakostnaði og greiðslur á ýmis konar sjúkraþjónustu. 7 Sjá töflu 6.3 í töfluviðauka. 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Búskapur hins opinbera 1992-1993

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búskapur hins opinbera 1992-1993
https://timarit.is/publication/1005

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.