Þjóðhagsreikningar 1945-1992 - 01.08.1994, Blaðsíða 94
magnvísitala byggð á tekjum strætisvagna- og hópferðafyrirtækja og verðvísitölum
þessara liða úr framfærsluvísitölu.
Atvinnugrein 713, aðrir fólksflutningar á landi, nær yfir leigubíla og bílaleigur.
Magnvísitala fyrir þessa atvinnugrein er einkum byggð á staðvirðingu framleiðsluvirðis
og er þá byggt á verðvísitölum undirliða úr vísitölu framfærslukostnaðar.
Með svipuðum hætti var atvinnugrein 714, vöruflutningar á Iandi, staðvirt sam-
kvæmt útseldum taxta vörubifreiðastjóra. Sum árin sýndi þessi staðvirðing afar óeðli-
legar sveiflur og vék verulega frá öðrum vísbendingum. Þau ár var höfð hliðsjón af
öðrum mælikvörðum eins og staðvirtum aðstöðugjaldsstofni og ársverkum.
Fyrir atvinnugrein 715, flutninga á sjó, eru ekki tiltækar upplýsingar um verðþróun
flutningataxta. Frá skráðum töxtum eru veittir margvíslegir afslættir sem erfítt er að
meta. Því var ákveðið að nota einhvern almennan verðmælikvarða fyrir greinina og
varð verðvísitala landsframleiðslu fyrir valinu. Sú vísitala er notuð til þess að staðvirða
framleiðsluvirðið en auk þess eru notaðar tvær aðrar magnvísitölur en það eru magn-
vísitölur vöruútflutnings og vöruinnflutnings eins og þessar vísitölur eru metnar í utan-
ríkisviðskiptunum. Tekið er meðaltal þessara þriggja magnvísitalna.
Magnvísitala fyrir atvinnugrein 716, rekstur hafna og vita, er fengin með samvigtun
á fimm magnvísitölum. En það eru vísitölur aflaverðmætis, vísitala sjávarafurðafram-
leiðslu, vísitala olíuinnflutnings og vísitala vöruútflutnings og vöru-innflutnings. Sam-
vigtunin er byggð á nokkurri vitneskju um tekjur hafnanna af þessum afurðaflokkum.
Magnvísitala fyrir atvinnugrein 717, flugrekstur, var áður fengin með tvöfaldri stað-
virðingu en vegna margvíslegrar óvissu við þá útreikninga hefur verið horfið frá henni
og vísitalan eftir 1980 er reiknuð með öðrum hætti. Nú er framleiðsluvirði í greininni
meðal annars staðvirt eftir þeim verðvísitölum sem notaðar eru í einkaneyslu. Að-
greindar eru verðvísitölur fyrir innanlandsflug, millilandaflug og leiguflug og fram-
leiðsluvirðið er aðgreint í þessa þætti efitir því sem tök eru á. Einnig er höfð hliðsjón af
líklegri verðbreytingu á tekjum í dollurum sem reiknaðar eru yfir í íslenskar krónur.
Magnvísitala fyrir atvinnugrein 718, rekstur flugvalla, er talin vera sú sama og fyrir
flugrekstur.
Magnvísitala fyrir atvinnugrein 719, ferðaskrifstofur, var lengst af reiknuð sem
vegið meðaltal af Qölda erlendra ferðamanna og komum íslendinga firá útlöndum.
Vogimar voru þannig að fjöldi erlendra ferðamanna hafði vogina 80% en hinn liðurinn
20%. Síðustu árin hefur einnig verið tekið mið af framleiðsluvirði sem staðvirt er með
vísitölu vöru og þjónustu.
Geymslustarfsemi, atvinnugrein 720, er staðvirt samkvæmt meðaltali ársverka og
staðvirts launakostnaðar.
6.4.13 Rekstur pósts ogsíma (atv.gr. 72)
Magnvísitala íyrir atvinnugrein 730, rekstur pósts og síma, er byggð á staðvirðingu
teknanna. Frá hagdeild Pósts og síma fengust ítarlegar sundurliðanir á póst- og sím-
tekjum og verðvísitölur fyrir sömu liði. A grundvelli þess efnis voru tekjumar staðvirtar
til verðlags ársins 1980.
92