Búskapur hins opinbera 1993-1994 - 01.03.1995, Side 22

Búskapur hins opinbera 1993-1994 - 01.03.1995, Side 22
5.3 Almannatryggingar og velferðarmál Undir þennan málaflokk almannatryggingar6 og velferdarmál falla annars vegar ýmis konar tekjutilfærslur til einstaklinga og samtaka vegna elli, örorku, veikinda, tekjumissis, fæðinga, atvinnuleysis o.fl., og hins vegar ýmiss konar velferðarþjónusta einkum við börn, aldraða og fatlaða. Umsjón með tekjutilfærslum er að mestu í höndum almannatrygginga. Velferðarþjónusta við börn og aldraða er hins vegar að mestu á vegum sveitarfélaga og velferðarþjónusta við fatlaða á vegum ríkisins. Tafla 5.7 Útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála 1991-1994 1991 í milljónum króna 1992 1993 Brt. 1994 1991 Hlutfall af VLF 1992 1993 1994 1. Sjúkra-, mæðra- og örorkubætur 1.802 1.820 1.901 1.897 0,45 0,46 0,46 0,44 2. EIIi-, örorku- og ekkjulífeyrir 12.791 13.516 14.579 15.125 3,22 3,40 3,54 3,51 3. Atvinnuleysisbætur 1.064 2.004 2.872 3.600 0,27 0,50 0,70 0,84 4. Bama-, vaxta- og húsnæðisbætur 7.364 7.304 7.652 7.437 1,86 1,84 1,86 1,73 5. Dagvistun, dvalarheimili o.þ.h. 3.888 4.316 4.528 4.616 0,98 1,08 1,10 1,07 6. Málefni fatlaðra 1.973 2.092 2.230 2.149 0,50 0,53 0,54 0,50 7. Önnur félagsmál 3.268 3.487 3.331 3.425 0.82 0.88 0.81 0.80 Almannatrvgg. og velferðarmál 32.150 34.538 37.093 38,248 8.11 8.68 9.Q1 8.89 í töflu 5.7 er að fmna yfirlit yfir útgjöld hins opinbera til almannatrygginga og velferðarmála á árunum 1991-1994. Þar má lesa að rúmlega 38,2 milljarðar króna fara til þessa málaflokks á árinu 1994, eða um 22% af útgjöldum hins opinbera. Þá sést að útgjöldin hafa aukist verulega síðustu árin, en þau mældust um 9% af landsframleiðslu árið 1994 en voru vel innan við 8% af landsframleiðslu Qórum árum áður. Þessi aukning skýrist íyrst og fremst af auknum bótagreiðslum vegna aukins atvinnuleysis og auknum greiðslum vegna Qölgunar elli- og örorkulífeyrisþega. Tæplega Qórir fímmtu hlutar þessara útgjalda eru tekjutilfærslur til heimilanna. Um 18% eru sam- neysluútgjöld í ýmsu formi og afgangurinn er Qárfestingarútgjöld. Tekjutilfærslur hins opinbera til velferðarmála voru rúmlega 30 milljarðar króna á árinu 1994 eða um 7% af landsframleiðslu. Þar af fóru um helmingur ti! elli-, örorku- og ekkjulífeyrisþega eða rúmlega 15 milljarðar króna7. I bama-, vaxta- og húsnæðis- bætur fóru um 7V2 milljarður króna eða um fjórðungur tilfærslanna. Sjúkra-, mæðra- og örorkubætur tóku til sín um 1,9 milljarða króna og atvinnuleysistryggingar 3,6 milljarða króna. Samneysla hins opinbera í velferðarmálum var ríflega 6>/2 milljarður króna á árinu 1994. Þar af var samneysla sveitarfélaga um tveir þriðju hlutar, sem var að mestu í formi umönnunar við böm og aldraða, meðal annars með rekstri bama- og elliheimila. Samneysla ríkissjóðs á þessu sviði var að mestu þjónusta við fatlaða. Afgangurinn var samneysla almannatrygginga. Ríflega tveir þriðju hlutar af heildarsamneyslu hins opinbera í velferðarmálum er launakostnaður. Fjárfesting hins 6 Hugtakið "almannatryggingar", eins og það er notað hér, er mun þrengra hugtak en í hinni venjulegu merkingu. Hér nær það einungis til beinna tekjutilfærslna til eínstaklinga og samtaka, en ekki til þeirrar margvíslegu þjónustu sem hið opinbera veitir og sem fellur undir almannatryggingakerfið, eins og niðurgreiðslur á lyfjakostnaði og greiðslur á ýmis konar sjúkraþjónustu. 7 Sjá töflu 6.3 í töfluviðauka.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Búskapur hins opinbera 1993-1994

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búskapur hins opinbera 1993-1994
https://timarit.is/publication/1007

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.