Búskapur hins opinbera 1995-1996 - 01.11.1997, Page 26
7. Alþjóðasamanburður
í þessum hluta verður stuttlega Qallað um afkoma og umsvif hins opinbera á Islandi
og í öðrum OECD-ríkjum. Tekjuafkoma segir til um hversu vel tekjur hins opinbera
nægja fyrir rekstrar- og fjárfestingarútgjöldum þess. Sé um tekjuhaila að ræða þarf hið
opinbera fjármagn (nettó) frá öðrum aðilum hagkerfisins.
Á mynd 7.111 má sjá að tekjuafkoma OECD-ríkja versnaði verulega fyrri hluta
þessa áratugar, en viðsnúningur varð þó á árinu 1994 er tekjuhallinn mældist 3,6% af
landsframleiðslu. Árinu áður hafði hann náð hámarki er hann var 4,3% af lands-
framleiðslu. Á síðasta ári er áætlað að tekjuhallinn hafi numið 2,9% af landsfram-
leiðslu. í Evrópulöndum mældist tekjuhallinn mestur árið 1993 er hann varð 6,5% að
meðaltali. í fyrra var hann komin niður í 4,4% af landsframleiðslu. Hér á landi var
tekjuhallinn 1,6% árið 1996 sem er tölvert betra hlutfall en meðaltal OECD-ríkja.
Athyglisverð er þróun tekjuafkomunnar á Norðurlöndum, en hún var jákvæð um 1,4%
af landsframleiðslu árið 1990 en mældist hins vegar neikvæð um 6% að meðaltali árið
1993 og á síðasta ári aðeins um 0,7% af landsframleiðslu. Af OECD-ríkjum skilaði
aðeins Noregur tekjuafgangi á árinu 1996.
Umsvif hins opinbera í OECD-ríkjunum hafa aukist verulega síðustu áratugina. Á
mynd 7.212 má meðal annars lesa að heildarútgjöld hins opinbera í þessum löndum
mældust að meðaltali 40,3% af landsframleiðslu á árinu 1996 en rétt rúmlega 28%
þremur áratugum fyrr. Hér á landi jukust heildarútgjöldin úr tæpum 33% af
landsframleiðslu í ríflega 38% á sama tíma og á öðrum Norðurlöndum úr 28% af
landsframleiðslu í rúmlega 57%12. Þar er því um vel tvöföldun útgjalda að ræða á
þessu þriggja áratuga tímabili mælt á þennan hátt. I Bandaríkjunum voru umsvif hins
opinbera hvað jöfnust yfir tímabilið en þau jukust úr 27% af landsframleiðslu í um
331/2%. Rétt er þó að nefna í þessu samhengi að frá og með árinu 1994 hafa umsvif
11 Sjá einnig töflu 8.1 í töfluviðauka.
12 Sjá einnig töflu 8.2 í töfluviðauka.
24